Tæp 38% búin að kjósa

Um kl. 08 í morgun, mánudaginn 26. apríl, höfðu 208 manns kosið í formannskjöri BÍ.  Tvö eru í kjöri sem kunnugt er, þau Heimir Már Pétursson og Sigríður Dögg Auðunsdóttir.  Á kjörskrá eru 553 þannig að kjörsóknin er því rétt tæp 38% það sem af er.  Kjörfundur stendur til miðnættis í dag, mánudag, 26. apríl, og er hægt að finna slóð á kosningakerfið í frétt hér fyrir ofan (við hlið myndarinnar).