Þegar stjórnendur bregðast

Grein frá Hjálmari Jónssyni, formanni BÍ:

Ég hef verið mjög hugsi yfir fyrsta verkfalli blaðamanna í bráðum 42 ár og hversu illa tókst til með framkvæmdina þær fjórar klukkustundir sem það stóð yfir á þeim ágæta vinnustað Morgunblaðinu.  Ég undanskil Ríkisútvarpið að svo komnu og trúi því, þar til annað kemur í ljós, að það hafi verið mistök sem rekja megi til ókunnugleika, að verktaki þar var látinn ganga í störf fastra starfsmanna meðan á verkfallinu stóð.

Ég er sérstaklega hugsi yfir þeirri fyrirlitningu gagnvart aðgerðum undirmanna þeirra, sem byggja á þeim sjálfsögðu mannréttindum að geta farið í verkfall, sem skín í gegnum þær aðgerðir sem stjórnendur Árvakurs beittu sé fyrir til þess að brjóta niður löglega boðaða vinnustöðvun, og hversu óskiljanlegt það er að tefla samstarfsfólki gegn hvert öðru með þeim hætti sem gert var.  Þar var sannarlega fórnað meiri hagsmunum fyrir minni og sannar endanlega, að mínu viti, að þeir stjórnendur sem stjórn og eigendur fyrirtækisins hafa valið til þessa ábyrgðarfulla starfs eru engan vegin starfi sínu vaxnir, því miður.

Orðstýr fjölmiðlafyrirtækis er verðmætasta eign þess og í þann aldarfjórðung sem ég vann á Morgunblaðinu kom aldrei til greina að afsláttur væri gefinn í þeim efnum.  Ég er afskaplega stoltur af þessum tíma mínum á Morgunblaðinu og tel að framlag þess til íslenskrar menningar, fréttaumfjöllunar  og umræðuhefðar sé ómetanlegt, enda kom blaðið út í yfir 50 þúsund eintökum og var þar af leiðandi daglegur gestur á langflestum heimilum í landinu.

Morgunblaðið er sem betur fer enn frábært blað og mbl.is frábær fréttavefur, enda sama fagfólkið sem vinnur þar, margt hvert, sem vann þar þegar ég var þar innan dyra.   Yfirlýsing um 20 blaðamanna á mbl.is segir allt sem segja þarf um þessa ömurlegu uppákomu.  Það er ekki skrýtið að venjulegu rétthugsandi fólki sé misboðið þegar gengið er í störf þess þegar  það er í löglega boðaðri vinnustöðvun, sem samþykkt var með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.

Ég ætla ekki einu sinni að reyna að skilja það innræti sem liggur svona aðgerðum og framkomu í garð samstarfsmanna til grundvallar.  Það er mér einfaldlega óskiljanlegt.  Ekki síst í ljósi þess að ég hef að minnsta kosti í þrígang í aðdraganda verkfalls skrifað þessu fólki og óskað eftir að við færum yfir hugsanleg ágreiningsefni um framkvæmd verkfallsins, þannig að það gæti farið fram með sóma.  Engin svör frá Árvakri og RÚV.  Hjá Fréttablaðinu og Sýn var framkvæmdin til fyrirmyndar.  Það hefur hins vegar augljóslega verið erfitt að horfa upp á mbl.is í loftinu vegna verkfallsbrota á sama tíma og visir.is og frettabladid.is voru það ekki.  Ég hlýt að velta því fyrir mér hvort eigendur þessara ágætu fyrirtækja, sem virtu boðaða vinnustöðvun starfsmanna sinna, og Ríkisútvarpsins, sem er í eigu almennings, geti hugsað sér að vera í kompaníi með verkfallsbrjótum.  Ef þessi fyrirtæki ætla að halda samstarfi sínu við Árvakur áfram, þurfa þau þá ekki að samræma afstöðu sína til framkvæmdar vinnustöðvana?!

 

Hjálmar Jónsson, formaður BÍ