Blaðamannafélag Íslands og Rannsóknasetur um fjölmiðlun og boðskipti við Háskóla Íslands boða til málþings um opinbera styrki til einkarekinna fjölmiðla mánudaginn 7. febrúar kl. 10-12 í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands, Síðumúla 23. Málþinginu verður einnig streymt á vef Blaðamannafélagsins, press.is.
Opinberar styrkveitingar til einkarekinna fjölmiðla hófust árið 2020 en fyrirkomulag fjölmiðlastyrkja er frábrugðið því sem viðgengst hjá hinum Norðurlöndunum en jafnan er lögð áhersla á að slíkur stuðningur stuðli að fjölbreytni miðla og sjálfstæði. Gestafyrirlesari málþingsins er Ida Willig, prófessor í fjölmiðlafræðum við Hróarskelduháskóla, en hún kom að smíði dönsku reglanna um styrki til einkarekinna fjölmiðla þar í landi.
Dagskrá:
Opnunarávarp Sigríðar Daggar Auðunsdóttur, formanns Blaðamannafélags Íslands
Ávarp flytur Lilja Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra
Erindi:
Ida Willig, prófessor í fjölmiðlafræðum Hróarskelduháskóla, fjallar um fjölmiðlastyrki í Danmörku
Valgerður A. Jóhansdóttir, lektor og umsjónarmaður með meistarnámi í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands, greinir frá niðurstöðum úr könnun á meðal íslenskra blaða- og fréttamanna til starfsins.
Þátttakendur í pallborðsumræðum:
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans
Þórhallur Gunnarsson, framkæmdastjóri hjá Sýn
Valgerður A. Jóhannsdóttir, lektor og umsjónarmaður með meistarnámi í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands
Birgir Guðmundsson, prófessor í fjölmiðlafræðum Háskólanum á Akureyri, er umræðustjóri
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Málþinginu verður einnig streymt á heimasíðu Blaðamannafélagsins, www.press.is
Rannsóknasetur um fjölmiðlun og boðskipti og Blaðamannafélag Íslands í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála