Áfrýjendur skutu máli til Hæstaréttar og gerðu kröfu um að ummæli í 17 tölublöðum Þjóðviljans yrðu gerð dauð og ómerk, að Svavar Gestsson yrði dæmdur til refsingar, miskabóta og að kosta birtingu dómsins. Ummælin vörðuðu hópinn Varið land. Svavar krafðist sýknu. Svavar var ábyrgðarmaður blaðsins, en greinarnar sem um ræðir voru ekki skrifaðar undir höfundarnafni, að undanskildri einni sem var auðkennd með stöfunum ÞH, en sú auðkenning taldist ekki nægileg og Svavar því talinn ábyrgur allra ummælana. Ummælin voru gerð dauð og ómerk, Svavar dæmdur til greiðslu sektar, málskostnaðar og birtingu dómsins. Bograrþing Reykjavíkur dæmdi til efnislega sömu niðurstöðu.
Niðurstaða dóms | Bótaupphæð | Bótaupphæð (framreiknuð til 2013) | Málskostnaður | Hver er ábyrgur | Dómur undirréttar (hvaða ?) |
Sekt | 74000 | 125372,72 | 200000 | Svavar Gestsson, ábyrgðarmaður | Dómur Bæjarþings Reykjavíkur óraskaður að öðru leiti en fjárhæðum |