Umsókn um aðild að BÍ
Félagar geta verið öll þau sem hafa frétta- eða blaðamennsku að aðalstarfi, það er að miðla upplýsingum, skoðunum og hugmyndum til almennings í gegnum fjölmiðla, óháð því hvort um er að ræða dagblöð, vikublöð, sértímarit, landshlutablöð, vefmiðla, útvarps- eða sjónvarpsstöðvar eða aðra fjölmiðla, svo fremi sem staðið er skil á tilskildum gjöldum til félagsins og sjóða þess.
Á meðal þeirra sem samkvæmt þessu geta verið félagar eru blaðamenn, fréttamenn, útlitsteiknarar, prófarkalesarar, handritalesarar, ljósmyndarar, ritstjórar, ritstjórnarfulltrúar, fréttastjórar, dagskrárgerðarfólk, hljóð- og tökumenn, tækni- og aðstoðarfólk í frétta- eða blaðamennsku og hvert það annað starfsfólk fjölmiðla sem sinna upplýsingamiðlun og störfum sem tengjast frétta- eða blaðamennsku. Upptalning þessi er sett fram í dæmaskyni, en er ekki tæmandi. Háskólanemar í blaðamennsku geta einnig verið félagar.
Hægt er að velja um fulla aðild, fagaðild, lífeyrisaðild eða nemaaðild.
Frekari upplýsingar um mánaðarlegar greiðslur og réttindi er að finna hér. Lífeyrisþegar, öryrkjar og nemar eru undanskildir greiðslu félags- og iðgjalda og eiga þar af leiðandi ekki rétt á styrkjum úr sjóðum félagsins.

Aðildarkostir
Full aðild
Félagar sem hafa blaðamennsku að aðalstarfi þar sem tiltekið hlutfall er greitt af launum í sjóði félagsins skv. kjarasamningi.
Fagaðild
Félagar geta einnig verið þau sem starfa sjálfstætt að frétta- eða blaðamennsku. Slík aðild telst vera fagaðild og skulu slíkir félagar njóta félagsréttinda, en ekki eiga rétt á greiðslum úr sjóðum félagsins.
Nemaaðild
Lífeyrisaðild
Félagsmaður, sem kominn er á eftirlaun og er ekki lengur í fullu starfi eða býr við örorku, getur óskað eftir áframhaldandi aðild að félaginu og nýtur þá áfram félagsréttinda, en á ekki rétt á greiðslum úr sjóðum félagsins eða kosningarétt um kjaratengd málefni.
Umsókn um aðild
Takk fyrir umsóknina. Við höfum samband við þig eins fljótt og auðið er.
Ekki tókst að senda umsóknina. Reyndu aftur síðar eða sendu póst á bi@press.is.
