nýjar reglur um blaðamannaskírteini
Ef þú þarft passa þá sækirðu um hann
Blaðamannaskírteini eru nú aðeins gefin út til þeirra félagsmanna sem sækja sérstaklega um þau. Hingað til hafa félagsmenn getað nálgast skírteini sjálfkrafa í upphafi hvers árs, en reynslan hefur sýnt að margir hafa ekki haft þörf fyrir þau og því hefur verið prentað umfram þörf. Til að tryggja að blaðamannaskírteinið haldi gildi sínu sem starfsskírteini fyrir blaðamenn hefur stjórn BÍ ákveðið að félagsmenn fái því ekki lengur sjálfkrafa úthlutað skírteini við skráningu í félagið. Sambærilegt fyrirkomulag er hjá flestum blaðamannafélögum á Norðurlöndum. Félagsmaður getur sótt um blaðamannaskírteini eftir fjögurra mánaða starf við fjölmiðlun, haldi hann áfram störfum í faginu. Skírteinið gildir nú í tvö ár í senn í stað eins árs.
Félagsmenn eru hvattir til að meta hvort þeir hafi þörf fyrir skírteinið vegna starfa sinna og kynna sér siðareglur blaðamanna áður en sótt er um. Umsókn fer fram á mínum síðum á press.is. Með umsókn staðfestir umsækjandi að hann hafi kynnt sér siðareglurnar og þurfi skírteinið sem atvinnutæki. Allt félagsfólk sem sækir um fær skírteinið.
