Trúnaðarmenn
Trúnaðarmenn eru kosnir á sínum vinnustöðum.
Hlutverk trúnaðarmanna Blaðamannafélags Íslands
Trúnaðarmenn eru tengiliðir milli starfsfólks og atvinnurekenda annars vegar og milli atvinnurekanda og stéttarfélags (BÍ) hins vegar. Trúnaðarmaður er því fulltrúi BÍ á hverjum vinnustað. Í kjarasamningi BÍ er mælt fyrir um rétt starfsmanna til að kjósa trúnaðarmann en þar sem starfa fimm til fimmtíu manns er hægt að kjósa einn trúnaðarmann og tvo ef starfsmenn eru fleiri en fimmtíu. Í dag starfa trúnaðarmenn á öllum helstu vinnustöðum blaðamanna.
Meðal verkefna trúnaðarmanna er að:
- Fylgjast með því að atvinnurekandi fari að kjarasamningum, lögum og reglum sem varða starfskjör og réttindi starfsmanna.
- Greina hvaða ákvæði kjarasamninga og reglna mætti breyta til að bæta starfskjör eða einfalda framkvæmd þeirra og koma tillögum þess efnis á framfæri við BÍ, m.a. í tengslum við undirbúning kröfugerða fyrir kjarasamninga.
- Taka við kvörtunum starfsmanna og vera málsvari þeirra gagnvart atvinnurekanda.
- Starfa sem tengiliður stéttarfélagsins á vinnustað, miðla upplýsingum milli félagsins og starfsmanna, kynna stefnu BÍ og verkefni þess.
- Veita nýjum starfsmönnum upplýsingar um starfskjör, réttindi og starfsemi stéttarfélagsins og aðstoða þá við að átta sig á aðstæðum.
Stuðningur og ráðgjöf
BÍ styður trúnaðarmenn sína með ráðgjöf og fræðslu til að þeir geti sinnt störfum sínum af fagmennsku. Trúnaðarmenn BÍ eru ómissandi fyrir starfsemi félagsins og öryggi félagsmanna. Þeir stuðla að faglegum og sanngjörnum samskiptum á vinnustað og tryggja að hagsmunir blaðamanna séu virtir í samstarfi við skrifstofu félagsins.
2026-2027
Trúnaðarmenn vinnustaða
TRÚNAÐARMENN
MORGUNBLAÐIÐ
SÓLRÚN LILJA RAGNARSDÓTTIR OG SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR
DV
ERLA DÓRA MAGNÚSDÓTTIR
SÝN
SILJA RÚN SIGURBJÖRNSDÓTTIR
BIRTINGUR
NANNA ÓSK JÓNSDÓTTIR
VIÐSKIPTABLAÐIÐ
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON
RÚV
ANNA LILJA ÞÓRISDÓTTIR OG RAGNAR SANTOS
FF Á RÚV
HALLGRÍMUR INDRIÐASON
VB
HELGI STEINAR GUNNLAUGSSON
BÆNDABLAÐIÐ
SIGURÐUR MÁR HARÐARSON
HEIMILDIN
VALUR GRETTISSON
