Orlofskostir BÍ

Félagsmenn BÍ geta leigt orlofshús félagsins allt árið og fá afslátt hjá um 30 ferðaþjónustufyrirtækjum um land allt. Frekari upplýsingar, bókanir og kaup er að finna á bókunarvefnum.


Reglur um úthlutun orlofshúsa – Reglugerð orlofshúsasjóðs BÍ

Orlofshús BÍ í Brekkuskógi í kvöldsól, séð úr lofti

Stórbætt Litla-Brekka

Litla-Brekka er annað tveggja orlofshúsa BÍ í Bláskógabyggð. Húsið var nýverið tekið alveg í gegn og byggt var við það. Húsið er nú með þremur svefnherbergjum og nýjum heitum potti auk nýs eldhúss og baðherbergis. Litla-Brekka er í norðurenda orlofshúsabyggðarinnar í Brekkuskógi og er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík.

📍Vallárvegur 4 - 806 Selfoss

70 M2

3 SVEFNHERBERGI

8 SVEFNPLÁSS

Orlofshúsið Litla-Brekka í Brekkuskógi
Stofa í orlofshúsinu Litlu-Brekku

VERÐSKRÁ LITLU-BREKKU:

DAGGJALD: 10.470 - HELGI: 24.900 - VIKA: 34.900 - VIÐBÓTARDAGUR: 4.500

Sólarlag í Brekkuskógi

Fleiri fríðindi og orlofskostir

Félagar í BÍ njóta ýmissa fríðinda þegar kemur að orlofskostum og afþreyingu. Félagsmenn fá afslátt af gjafabréfum Icelandair, gistingu á hótelum um allt land, skipulagðri afþreyingu hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum og Veiðikortinu. Allar upplýsingar, bókanir og kaup er að finna á bókunarvefnum.