Blaðaljósmyndari merktur PRESS við störf á vegi við hraun í eldgosi

Um Blaðamannafélag Íslands

Öflug blaðamennska fyrir upplýst samfélag

BÍ er fag- og stéttarfélag blaðamanna á Íslandi. Félagið gætir hagsmuna félagsmanna með þjónustu, ráðgjöf og kjarasamningum. BÍ stendur vörð um tjáningarfrelsi, frelsi fjölmiðla og sinnir hagsmunagæslu stéttarinnar. Það er eitt elsta stéttarfélag landsins og telur meira en 600 félaga.


BÍ gætir hagsmuna blaðamanna

BÍ sinnir ráðgjöf, fræðslu, kjarasamningsgerð, þjónustu og alþjóðasamstarfi fyrir hönd blaðamanna á Íslandi.

Hagsmunagæsla

BÍ stendur vörð um hagsmuni blaðamanna og talar fyrir hönd stéttarinnar við hagsmunaaðila

Kjarabarátta

Félagið berst fyrir bættum kjörum blaðamanna við gerð kjarasamninga og sinnir eftirfylgni með framkvæmd

Alþjóðasamskipti

BÍ gegnir nú formennsku í Samtökum Norrænna blaðamannafélaga og er aðili að Evrópusambandi blaðamanna.

Ráðgjöf og þjónusta

BÍ veitir félögum stuðning, ráðgjöf og þjónustu varðandi réttindi þeirra og kjör á vinnumarkaði

Styrkir og sjóðir

Félagsmenn geta sótt um styrki í sjóði BÍ vegna ýmissa útgjalda og fengið upplýsingar um orlofsréttindi

Fræðsla og viðburðir

BÍ heldur reglulega viðburði og námskeið fyrir félaga þar sem fagið og málefni líðandi stundar eru sett á oddinn


Stjórn og starfsfólk

Stjórnir og nefndir félagsins, starfsfólk skrifstofu og trúnaðarmenn á vinnustöðum.

Nánar →

Undirdeildir BÍ

Þrjár undirdeildir starfa innan BÍ: Blaðaljósmyndarafélag Íslands, Félag fréttamanna og Deild miðlunar og samskipta.

Nánar um undirdeildirnar →

Síðumúlasalurinn

Félagsmenn geta fengið salinn í Síðumúla 23 leigðan fyrir veislur, viðburði, fundi og málþing.

Nánar um salinn →

Hafa samband

Síðumúla 23, 108 Reykjavík · 553 9155 · bi@press.is. Opið mán–fim 9–15 og fös 9–13.

Hafa samband →

Lög BÍ

Lög Blaðamannafélags Íslands.

Lesa lögin →

Saga og Blaðamannaminni

Saga félagsins frá stofnun árið 1897 og minningar um blaðamenn.

Saga BÍ · Blaðamannaminni



Vertu með

Sæktu um aðild að félaginu og skráðu þig á póstlistann okkar