Salur fyrir félagsmenn

Síðumúli 23 - 108 Reykjavík

Salur BÍ að Síðumúla 23 er til útleigu fyrir félagsmenn. Salurinn tekur 60 í sæti. 

Verð á þjónustu

Leiga fyrir sal er kr. 80.000. Að auki þarf að greiða umsjónarmanni salarins kr. 8.500 á tímann á meðan á viðveru stendur og kr. 15.000 fyrir þrif.

Frágangur

Leigutaki raðar sjálfur upp borðum og gengur frá þeim að notkun lokinni. Skila þarf salnum með sömu uppröðun og tekið var við honum. 

Aðbúnaður

Í salnum er hljóðkerfi fyrir fundi og tveir myndvarpar. Ekki er leyfilegt að festa neitt á veggi né hengja í loft. 

Fundur í sal BÍ: fundarstjóri í pontu og fólk við fundarborð með fartölvur fyrir framan sýningartjald
Bjartur salur BÍ í Síðumúla með setusvæði og borðum
Félagsmenn spjalla yfir kaffi í sal BÍ á föstudagskaffi
Setustofa með sófum og stólum í sal BÍ í Síðumúla