Siðareglur blaðamanna

Siðareglur Blaðamannafélags Íslands

Öflug og vönduð blaðamennska, þar sem tjáningarfrelsið er í fyrirrúmi, er forsenda lýðræðis. Hún byggist á faglegum vinnubrögðum sem siðareglum þessum er ætlað að ramma inn. Í þeim er lögð áhersla á að frumskylda blaðamanns er gagnvart almenningi sem á rétt á að fá sannar upplýsingar settar fram á sanngjarnan og heiðarlegan hátt. Blaðamönnum ber að þekkja og fara eftir þessum siðareglum í störfum sínum.

Málsmeðferðarreglur siðanefndar – Hvernig kæra er lögð fram og hvernig siðanefnd fer með hana.

Vinnureglur siðanefndar – Hvernig siðanefnd starfar og vinnur úr málum sem henni berast.



Siðareglur Blaðamannafélags Íslands

1. grein

Blaðamaður hefur sannleikann að leiðarljósi, stendur vörð um tjáningarfrelsið og frjálsa fjölmiðlun og rétt almennings til upplýsinga, svo veita megi nauðsynlegt aðhald í lýðræðisþjóðfélagi.


2. grein

Blaðamaður setur fram upplýsingar á heiðarlegan og sanngjarnan hátt samkvæmt bestu vitund hverju sinni, meðal annars með því að leita andstæðra sjónarmiða þegar við á. Blaðamaður hagræðir ekki staðreyndum og setur ekki fram órökstuddar ásakanir.


3. grein

Blaðamaður leiðréttir rangfærslur sé þess þörf.


4. grein

Blaðamaður lítur svo á að allar upplýsingar sem varða almannahagsmuni eigi að vera aðgengilegar og að hann eigi að hafa fullan rétt til að afla þeirra.


5. grein

Blaðamaður beitir hvorki hótunum né þvingunum til þess að afla upplýsinga.


6. grein

Blaðamaður gerir greinarmun á staðreyndum og skoðunum, gengur úr skugga um áreiðanleika upplýsinga og gætir þess að umfjöllunin sé hlutlæg.


7. grein

Blaðamaður gætir þess að þegar hann vitnar til ummæla eða upplýsinga sem birst hafa opinberlega, þar á meðal á samfélagsmiðlum, sé þess getið hvaðan ummælin voru fengin.


8. grein

Blaðamaður virðir trúnað við heimildarmenn sína.


9. grein

Blaðamaður þiggur ekki mútur, gjafir eða fyrirgreiðslu af neinu tagi sem ætlað er að hafa áhrif á umfjöllun hans. Blaðamaður forðast hagsmunaárekstra og gerir grein fyrir tengslum við umfjöllunarefnið ef við á. Blaðamaður tekur ekki þátt í verkefnum sem kynnu að stofna sjálfstæði hans og trúverðugleika í hættu og nýtir ekki upplýsingar í eigin þágu.


10. grein

Blaðamaður gerist ekki sekur um ritstuld.


11. grein

Blaðamaður blandar ekki saman ritstjórnarlegu efni og auglýsingum í myndum og/eða máli.


12. grein

Siðareglur þessar setja ekki hömlur á tjáningarfrelsi blaðamanna. Blaðamaður gætir þess að persónulegar skoðanir hans hafi ekki áhrif á hlutlægni fréttaflutnings.


13. grein

Hver sá sem telur að blaðamaður hafi brotið framangreindar reglur og á hagsmuna að gæta, getur kært ætlað brot til Siðanefndar BÍ samkvæmt sérstökum málsmeðferðarreglum þar um.


Samþykktar á aðalfundi BÍ 23. mars 2023.



English version

Code of Ethics of the Icelandic Union of Journalists

Robust and professional journalism, with freedom of expression as its cornerstone, is essential for democracy. It relies on professional practices, which this code of ethics aims to define. Emphasis is placed on the journalist's primary duty to the public, who have the right to receive truthful information presented in a fair and honest manner. Journalists are expected to know and adhere to this code in their work.


Article 1 A journalist is guided by the truth, defends freedom of expression and free media, and upholds the public's right to information to ensure the necessary accountability in a democratic society.


Article 2 A journalist presents information honestly and fairly to the best of their knowledge, including seeking opposing viewpoints when appropriate. A journalist does not manipulate facts or present unfounded accusations.


Article 3 A journalist corrects inaccuracies when necessary.


Article 4 A journalist views all information relevant to public interest as accessible and has the

full right to obtain it.


Article 5 A journalist does not use threats or coercion to obtain information.


Article 6 A journalist distinguishes between facts and opinions, verifies the reliability of information, and ensures that coverage remains objective.


Article 7 When citing comments or information that have been publicly shared, including on social media, the journalist must specify the source of the statements.


Article 8 A journalist respects the confidentiality of their sources.


Article 9 A journalist does not accept bribes, gifts, or favours intended to influence their coverage. Journalists avoid conflicts of interest and must disclose any relevant connections to the subject matter when necessary. Journalists do not participate in activities that could compromise their independence and credibility and do not exploit information for personal gain.


Article 10 A journalist does not commit plagiarism.


Article 11 A journalist does not mix editorial content with advertising, whether in images and/or text.


Article 12 This code does not restrict journalists' freedom of expression. However, a journalist ensures that their personal opinions do not affect the objectivity of news reporting.


Article 13 Anyone who believes that a journalist has violated the above rules and has a vested interest may file a complaint with the Ethics Committee in accordance with specific procedural rules.


Approved at the Annual General Meeting of the Icelandic Union of Journalists on 23 March 2023.



í gildi 1991-2023

Eldri útgáfa siðareglna blaðamanna

Eftirfarandi siðareglur Blaðamannafélags Íslands voru í gildi frá samþykkt þeirra á aðalfundi félagsins árið 1991 þar til nýjar reglur voru samþykktar á aðalfundi árið 2023.


Í starfi sínu hafa blaðamenn allra fjölmiðla jafnan í huga grundvallarreglur mannlegra samskipta og rétt almennings til upplýsinga, tjáningarfrelsis og gagnrýni.


1. grein Blaðamaður leitast við að gera ekkert það sem til vanvirðu má telja fyrir stétt sína eða stéttarfélag, blað eða fréttastofu. Honum ber að forðast hvaðeina sem rýrt gæti álit almennings á starf blaðamanns eða skert hagsmuni stéttarinnar. Blaðamaður skal jafnan sýna drengskap í skiptum sínum við starfsfélaga.


2. grein Blaðamanni er ljós persónuleg ábyrgð á öllu sem hann skrifar. Hann hefur í huga að almennt er litið á hann sem blaðamann þó að hann komi fram utan síns eiginlega starfssviðs, í riti eða ræðu. Blaðamaður virðir nauðsynlegan trúnað við heimildarmenn sína.


3. grein Blaðamaður vandar upplýsingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu svo sem kostur er og sýnir fyllstu tillitssemi í vandasömum málum. Hann forðast allt sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu.


4. grein Það telst mjög alvarlegt brot þiggi blaðamaður mútur eða hafi í hótunum vegna birtingar efnis. Blaðamenn skulu hafa ríkt í huga hvenær almennt öryggi borgaranna, sérstakir hagsmunir almennings eða almannaheill krefst nafnbirtingar. Í frásögnum af dóms- og refsimálum skulu blaðamenn virða þá meginreglu laga að hver maður er talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð.


5. grein Blaðamaður varast að lenda í hagsmunaágreiningi, til dæmis með því að flytja fréttir eða frásagnir af fyrirtækjum eða hagsmunasamtökum þar sem hann á sjálfur aðild. Hann skal fyrst og síðast gæta hagsmuna lesenda og sóma blaðamannastéttarinnar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur í nafni starfs síns. Blaðamaður hefur í skrifum sínum sannfæringu sína að leiðarljósi. Hann gætir þess að rugla ekki saman ritstjórnarlegu efni, sem hefur augljóst upplýsinga- og fræðslugildi, og auglýsingum í myndum og/eða máli. Siðareglur þessar setja ekki hömlur á tjáningarfrelsi blaðamanna sem skrifa undir fullu nafni afmarkaða þætti í fjölmiðlum, til dæmis gagnrýni, þar sem persónulegar skoðanir höfundar eru í fyrirrúmi.


6. grein Hver sá sem telur að blaðamaður hafi brotið framangreindar reglur og á hagsmuna að gæta, getur kært ætlað brot til Siðanefndar BÍ innan tveggja mánaða frá birtingu, enda sé mál vegna birtingarinnar ekki rekið fyrir almennum dómstólum á sama tíma. Áður skal hann þó leita leiðréttingar mála sinna hjá viðkomandi fjölmiðli. Þó getur Siðanefnd úrskurðað um undanþágur frá leiðréttingarkröfum vegna annarra aðstæðna.

Siðanefndin tekur kæruna fyrir á fundi innan viku og kveður upp rökstuddan úrskurð svo fljótt sem kostur er. Taki Siðanefnd kærumál til efnislegrar athugunar skal hún kanna heildarumfjöllun um málið í hinum kærða fjölmiðli. Kærða skal gefinn kostur á að gera grein fyrir sjónarmiði sínu.

Siðanefnd greinir brot í flokka eftir eðli þeirra:

  • a) ámælisvert
  • b) alvarlegt
  • c) mjög alvarlegt

Úrskurði Siðanefndar verður ekki áfrýjað. Úrskurð Siðanefndar ásamt rökstuðningi skal birta í heild í Félagstíðindum BÍ svo fljótt sem verða má. Úrskurð Siðanefndar skal senda viðkomandi fjölmiðli við fyrsta hentugleika og með ósk um birtingu ef um brot samkvæmt skilgreiningu b) og c) er að ræða. Þremur dögum seinna skal senda úrskurðinn öðrum fjölmiðlum.

Meginniðurstaða nefndarinnar skal birt orðrétt. Við framsetningu frétta af úrskurðum Siðanefndar sýna blaðamenn alla þá aðgát sem reglur þessar ætlast til, sbr. 1. og 2. grein að framan.

Nú telur stjórn BÍ að gengnum úrskurði Siðanefndar að brot sé svo alvarlegt að frekari ráðstafana sé þörf, getur hún þá borið undir félagsfund tillögu um vítur á viðkomandi blaðamann, enda sé þeirrar ætlunar getið í fundarboði.

Nú bera ummæli ekki með sér hver sé höfundur þeirra eða viðkomandi blaðamaður er utan BÍ, gengur þá úrskurður svo sem ritstjóri og/eða ábyrgðarmaður eigi beina aðild að. Þótt enginn þessara aðila sé í BÍ getur Siðanefnd allt að einu lagt fram rökstutt álit um kæruefni.

Samþykkt með síðustu breytingum á aðalfundi BÍ 1991.