Launatöflur

launatöflur


Launatafla samkvæmt nýjum kjarasamningi (gildir frá 1.1.2027)

Flokkur Byrjunarlaun Eftir 4 mán Eftir 1 ár Eftir 3 ár Eftir 5 ár Eftir 7 ár Eftir 10 ár Eftir 13 ár Eftir 16 ár
1. flokkur 556.250 581.435 596.546 612.563 629.806 642.558 655.693 661.176 674.915
2. flokkur 635.147 646.824 658.938 671.506 674.455 683.620 697.319 711.854
3. flokkur 646.824 658.938 671.506 674.455 683.620 697.319 711.854
Með 15% vaktaálagi
Flokkur Byrjunarlaun Eftir 4 mán Eftir 1 ár Eftir 3 ár Eftir 5 ár Eftir 7 ár Eftir 10 ár Eftir 13 ár Eftir 16 ár
1. flokkur 639.687 668.650 686.028 704.448 724.277 738.942 754.047 760.352 776.152
2. flokkur 730.419 743.848 757.779 772.232 775.624 786.163 801.917 818.632
3. flokkur 743.848 757.779 772.232 775.624 786.163 801.917 818.632
Með 21% vaktaálagi
Flokkur Byrjunarlaun Eftir 4 mán Eftir 1 ár Eftir 3 ár Eftir 5 ár Eftir 7 ár Eftir 10 ár Eftir 13 ár Eftir 16 ár
1. flokkur 673.062 703.536 721.821 741.202 762.065 777.496 793.389 800.023 816.647
2. flokkur 768.528 782.657 797.315 812.523 816.091 827.180 843.756 861.343
3. flokkur 782.657 797.315 812.523 816.091 827.180 843.756 861.343

Ákvæði um röðun í launaflokka samkvæmt kjarasamningi BÍ

Flokkur 1

Almennir blaðamenn.


Flokkur 2

Blaðamenn með háskólapróf, BA, BS, eða starfsreynslu/sérmenntun, sem vinnuveitandi leggur að jöfnu. Sumarstarf er metið til starfsaldurs. Ef einstaklingur vinnur við blaðamennsku yfir sumartímann, t.d. á meðan hann er í námi og hefur síðan fullt starf á fjölmiðli, fær hann sumarmánuðina metna sem starfsaldur. Það á þó aðeins við, ef hann ræður sig til starfa á sama fjölmiðli allan tímann sem lausamaður og síðan sem fastráðinn. Greiðslur samkvæmt 7. kafla samnings BÍ hefjast við fastráðningu.

 

Flokkur 3

Blaðamenn með MA, MS, MBA eða starfsreynslu /sérmenntun sem vinnuveitandi leggur að jöfnu. 

Vaktaálag

Samkvæmt grein 2.3 í kjarasamningi BÍ og SA.

15% á grunnlaun. Greiða skal 15% vaktaálag sé unnið eftir vaktafyrirkomulagi skv. grein 2.2.1. Reglubundnar vaktir á virkum dögum en ekki um helgar.

21% á grunnlaun. Greiða skal 21% vaktaálag sé unnið eftir vaktafyrirkomulagi skv. grein 2.2.3. Reglubundnar vaktir um helgar.

Starfsmenn í hlutastarfi: Blaðamaður og/eða prófarkalesari í hlutastarfi fái greiddar hlutfallslega sömu álagsgreiðslur sbr. ákvæði greinar 2.3.1.

Greinar 2.2.1 og 2.2.3 sem vísað er til

2.2.1. Vaktavinna. Heimilt er að taka upp reglubundna vaktavinnu, samkvæmt samkomulagi aðila á hverjum vinnustað og skal gerður samningur þar að lútandi við hvern vinnuhóp svo sem ljósmyndara, íþróttafréttamenn og blaðamenn á innlendum og erlendum fréttadeildum.

2.2.3. Helgarvaktir. Heimilt er að semja um reglubundna vaktavinnu um helgar. Gilda um þær sömu reglur og vaktir virka daga hvað lengd varðar. Frídagur á virkum degi kemur í stað unnins helgardags. Frídagur skal tekinn í vikunni eftir helgarvinnu í samráði við vinnuveitanda.

Kjarasamningur BÍ og SA í heild →