Siðanefnd BÍ

Fimm fulltrúar eiga sæti í Siðanefnd BÍ. Þar af eru þrír fulltrúar kjörnir á aðalfundi BÍ ár hvert, einn er tilnefndur af útgefendum og einn af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.


Nefndarmenn Siðanefndar BÍ starfsárið 2026–2027
Pálmi Jónasson, formaður

Valgerður Anna Jóhannsdóttir, varaformaður

Oddur Ástráðsson, meðstjórnandi

Ásgeir Þór Árnason, fulltrúi útgefenda

Emma Björg Eyjólfsdóttir, fulltrúi Siðfræðistofnunar


Auðunn Arnórsson, varamaður

Brynhildur Ólafsdóttir, varamaður

Friðrik Þór Guðmundsson, varamaður


Aðsetur Siðanefndar er á skrifstofu BÍ og erindi til hennar skulu send á netfangið sidanefnd@press.is

Málsmeðferðarreglur – Hvernig kæra er lögð fram og hvernig siðanefnd fer með hana.

Vinnureglur siðanefndar – Hvernig siðanefnd starfar og vinnur úr málum sem henni berast.


hvernig METUR SIÐANEFND MÁLin SEM BERAST?

Reglur um málsmeðferð

Hver sá sem telur að blaðamaður hafi brotið framangreindar reglur og á hagsmuna að gæta, getur kært ætlað brot til Siðanefndar BÍ innan tveggja mánaða frá birtingu, enda sé mál vegna birtingarinnar ekki rekið fyrir almennum dómstólum á sama tíma. Áður skal hann þó leita leiðréttingar mála sinna hjá viðkomandi fjölmiðli. Þó getur Siðanefnd úrskurðað um undanþágur frá leiðréttingarkröfum vegna annarra aðstæðna.


Kærur til Siðanefndar skulu vera skriflegar og berast skrifstofu Blaðamannafélags Íslands. Kæruefni skal vera afmarkað með augljósum hætti. Afrit af kærðri umfjöllun prentmiðils eða eftirrit kærðs efnis (eða virk vefslóð) í útvarpi, sjónvarpi eða vefmiðli skal fylgja kæru.

Siðanefndin tekur kæruna fyrir á fundi innan tveggja vikna.


Taki Siðanefnd kærumál til efnislegrar athugunar skal hún kanna heildarumfjöllun um málið í hinum kærða fjölmiðli. Kærða skal gefinn kostur á að gera grein fyrir sjónarmiði sínu.

Siðanefnd kveður upp rökstuddan úrskurð svo fljótt sem kostur er.


Siðanefnd greinir brot í flokka eftir eðli þeirra:

  • a) ámælisvert
  • b) alvarlegt
  • c) mjög alvarlegt


Úrskurði Siðanefndar verður ekki áfrýjað. Úrskurð Siðanefndar ásamt rökstuðningi skal birta í heild á vef Blaðamannafélagsins svo fljótt sem verða má. Úrskurð Siðanefndar skal senda viðkomandi fjölmiðli við fyrsta hentugleika og með ósk um birtingu ef um brot samkvæmt skilgreiningu b) og c) er að ræða. Þremur dögum seinna skal senda úrskurðinn öðrum fjölmiðlum.


Meginniðurstaða nefndarinnar skal birt orðrétt. Við framsetningu frétta af úrskurðum Siðanefndar sýna blaðamenn alla þá aðgát sem siðareglur BÍ ætlast til.

Nú telur stjórn BÍ að gengnum úrskurði Siðanefndar að brot sé svo alvarlegt að frekari ráðstafana sé þörf, getur hún þá borið undir félagsfund tillögu um vítur á viðkomandi blaðamann, enda sé þeirrar ætlunar getið í fundarboði.


Nú bera ummæli ekki með sér hver sé höfundur þeirra eða viðkomandi blaðamaður er utan BÍ, gengur þá úrskurður svo sem ritstjóri og/eða ábyrgðarmaður eigi beina aðild að. Þótt enginn þessara aðila sé í BÍ getur Siðanefnd allt að einu lagt fram rökstutt álit um kæruefni.


Samþykkt á aðalfundi BÍ 23. mars 2023.


EFTIR HVAÐA REGLUM VINNUR SIÐANEFND?

Vinnureglur siðanefndar

  1. Hlutverk siðanefndar er að úrskurða um kærur sem henni berast um brot á siðareglum Blaðamannafélags Íslands eins og þær eru á hverjum tíma.

  2. Siðanefnd skal halda gjörðabók.

  3. Kærur til siðanefndar skulu vera skriflegar og berast skrifstofu Blaðamannafélags Íslands með þar til gerðu kærueyðublaði. Kæruefni skal vera afmarkað með augljósum hætti. Afrit af kærðri blaðagrein, mynd eða eftirrit kærðs efnis af vef, í útvarpi og sjónvarpi skal fylgja kæru.

  4. Skrifstofa Blaðamannafélags Íslands sendir afrit kæru og meðfylgjandi gagna til allra siðanefndarmanna. Ef nefndin ákveður að senda málið til andsvara er afrit kærunnar sent til þess blaðamanns eða fjölmiðils sem kærður er.

  5. Siðanefnd tekur mál fyrir í þeirri röð sem þau berast. Ef mál berast samtímis ræður dagsetning.

  6. Siðanefnd kannar hvort einhver nefndarmanna sé vanhæfur að fjalla um kærumálið vegna tengsla við kæranda eða kærða. Úrskurður nefndarinnar er endanlegur.

  7. Við upphaf málsmeðferðar kannar siðanefnd hvort þeim kröfum, sem siðareglur gera til kærenda, hafi verið fullnægt. Sé svo ekki skal kæru vísað frá og kæranda skýrt skriflega frá orsökum frávísunar.

  8. Siðanefnd skal óska eftir skriflegri greinargerð frá kærðu og getur leitað nánari skriflegra viðbragða frá aðilum máls eða boðið þeim að skýra mál sitt á fundum nefndarinnar, telji hún þess þörf.

  9. Siðanefnd ákveður hverjir aðrir skulu koma fyrir nefndina og hvaða viðbótargagna skuli aflað.

  10. Kæranda er heimilt að draga kæru sína til baka hvenær sem er áður en siðanefnd hefur undirritað úrskurð sinn.

  11. Siðanefnd kveður upp rökstuddan, skriflegan úrskurð. Þegar um er að ræða brot á siðareglum skal viðkomandi grein tilgreind.

  12. Siðanefnd ritar fullskipuð undir úrskurði. Sératkvæði skulu birt með úrskurði meirihlutans.

  13. Siðanefnd nafngreinir ekki í úrskurði sínum kæranda eða aðra aðila máls sem eiga um sárt að binda, ef hún telur að nafnbirting valdi þeim auknum sársauka.

  14. Siðanefnd úrskurðar í kærumálum eftir ákvæðum siðareglna eins og þær eru á hverjum tíma og hefur eftir því sem við á hliðsjón af fordæmum í eldri úrskurðum.

  15. Siðanefnd fer með gögn mála, önnur en kæru og úrskurð nefndarinnar, sem trúnaðarmál og fjallar ekki um einstök mál opinberlega.

  16. Sé óafgreiddu kærumáli fyrir siðanefnd skotið til dómstóls, vísar nefndin málinu samstundis frá, á hvaða stigi sem málið kann að vera innan siðanefndar.