Blaðaljósmyndarafélag Íslands

Myndir ársins

Myndir ársins er árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands, deildar innan Blaðamannafélags Íslands. Á sýningunni eru bestu frétta- og blaðaljósmyndir liðins árs, valdar af óháðri dómnefnd úr innsendum myndum íslenskra blaðaljósmyndara.

Verðlaun eru veitt fyrir mynd ársins og fréttamynd ársins. Myndunum er skipt í sex flokka: fréttir, daglegt líf, íþróttir, portrett, umhverfi og myndaraðir.

Sýningin Myndir ársins 2025 stóð yfir í Ljósmyndasafni Reykjavíkur frá 11. apríl til 17. maí 2026. Þar voru sýndar 104 myndir eftir 16 blaðaljósmyndara, valdar úr yfir 600 innsendum myndum. Bók með öllum myndum sýningarinnar kom einnig út.

Blaðvarpið – merki hlaðvarps Blaðamannafélags Íslands