Styrktarsjóður

Styrktarsjóður BÍ veitir sjóðfélögum styrki vegna kostnaðar vegna heilbrigðisþjónustu og heilsueflingar. Atvinnurekendur greiða 1% ofan á laun félagsmanna sem iðgjald í sjóðinn.


Styrktarsjóður greiðir meðal annars út sjúkradagpeninga til sjóðfélaga sem verða fyrir tekjumissi vegna veikinda eða slysa. Allt félagsfólk í BÍ, sem greitt hefur verið af til styrktarsjóðs í sex mánuði, telst til sjóðfélaga og getur fengið úthlutað styrkjum úr sjóðnum.


Hér finnur þú nánari upplýsingar um rétt þinn til styrkja, umsóknarferlið og úthlutunarreglur.

Hver á rétt?

Almennt eiga þeir rétt sem greitt hefur verið fyrir í Styrktarsjóð í að minnsta kosti sex mánuði. Þetta getur átt við bæði fastráðna blaðamenn og sjálfstætt starfandi eða lausamenn, ef iðgjöld hafa verið greidd samkvæmt reglum sjóðsins.

Ef þú ert í vafa um rétt þinn er best að hafa samband við skrifstofu BÍ áður en sótt er um.

Úthlutunarreglur →

Sjúkradagpeningar sjálfstætt starfandi →

Svona sækir þú um

  1. Skoðaðu hvaða styrkir eru í boði og reglurnar sem um þá gilda.
  2. Hafðu fullgildar greiðslukvittanir tilbúnar, og önnur gögn sem við eiga.
  3. Sæktu um rafrænt í gegnum örugga gátt (Signet) með rafrænum skilríkjum.

Sækja um styrk →

Spurningar? bi@press.is

Styrkir í boði

Listinn hér birtist sjálfkrafa úr síðunni Styrkir og sjóðir (línurnar „Upphæð:“ undir hverjum styrk).

Yfirlit yfir alla styrki →

Styrkir úr styrktarsjóði geta meðal annars verið vegna

forvarnarskoðana
Krabbameins- og hjartaskoðanir.
Allt að 50% kostnaðar.
sjúkradagpeninga
Greitt er allt að 80% af grunni inngreiðslna í allt að þrjá mánuði
heilsueflingar
Allt að 50% kostnaðar að hámarki 20.000 kr. á ári
sálfræðiþjónustu
Allt að 15 skipti á ári.
Hámark 112.500 krónur
augnheilsu
Gleraugu: 40.000 kr. þriðja hvert ár. Meðferð er 75.000 kr. á auga
dánarbóta og andláts
Vegna andláts sjóðfélaga eða barns.
Styrkur 400.000 kr.
heyrnartækja
Allt að 50% kostnaðar.
Hámark 200.000 kr. á 4 ára fresti.
göngugreiningar og innleggja
Allt að 75% kostnaðar.
Hámark 20.000 kr.
sjúkraþjálfunar og nudds
Allt að 50% kostnaðar.
Hámark 30.000 kr á ári
komu nýrra fjölskyldumeðlima
Fæðing/ættleiðing: 150.000 kr. Tæknifrjóvgun er 160.000 kr. að hámarki
tannlækninga af heilsufarsástæðum
50% af kostnaði umfram 200.000 kr.
Hámark 200.000 kr.
endurhæfingar og dvalar á stofnun
Allt að 50% kostnaðar.
Hámark 150.000 kr. á 48 mánaða fresti.

Helstu upplýsingar um styrki og réttindi sjóðsfélaga

Hver á rétt á styrk?

Hvaða gögn þurfa að fylgja?

Hvað er styrkt og hversu mikið?

Hvernig eru styrkir greiddir?

Sjúkradagpeningar

Lausamenn og sjálfstætt starfandi

Nánari reglur

Viltu sækja um styrk til Styrktarsjóðs?


Umsóknarferlið er á rafrænu formi og einfalt í notkun. Þú finnur allar upplýsingar um hvaða gögn þú þarft með umsókninni í umsóknarferlinu.