Reglur og skilmálar vegna orlofshúsa
Orlofshúsasjóður
Úthlutun orlofshúsa
Umgengni og frágangur

1. gr. Nafn sjóðsins og heimili
1.1 Sjóðurinn heitir Orlofshúsasjóður Blaðamannafélags Íslands
1.2 Sjóðurinn er eign Blaðamannafélags Íslands (hér eftir BÍ).
1.3 Heimili hans og varnarþing er í Reykjavík.
2.gr. Verkefni sjóðsins
2.1 Að eiga og reka orlofshúsnæði og skapa á annan hátt aðstöðu til orlofsdvalar sjóðfélaga.
3. gr. Aðild
3.1 Rétt til aðildar að sjóðnum eiga allir félagar í BÍ sem greitt hafa til sjóðsins í næstliðna sex mánuði.
3.2 Stjórn sjóðsins setur nánari reglur um úthlutun.
4. gr. Stjórn og rekstur
4.1 Fulltrúar BÍ í stjórn sjóðsins skulu vera fjórir, þar af einn varamaður og skulu kosnir árlega á aðalfundi BÍ. Stjórn sjóðsins skiptir með sér verkum.
4.2. Stjórn sjóðsins fer með framkvæmdavald í málefnum hans milli aðalfunda, ber ábyrgð á rekstri, fjárhag og eignum sjóðsins.
4.3. Sjóðurinn hefur sjálfstæðan fjárhag og skal honum haldið aðgreindum frá fjárhag BÍ og fjárhag annarra sjóða í eigu eða á vegum BÍ.
4.4. Sjóðurinn greiðir allan kostnað sem af rekstri hans leiðir.
4.5. Daglegur rekstur sjóðsins skal vera á skrifstofu BÍ.
5. gr. Tekjur og ávöxtun eigna
5.1. Tekjur sjóðsins eru:
5.1.1 Samningsbundnar greiðslur atvinnurekenda eins og þær eru ákveðnar í kjarasamningi blaðamanna á hverjum tíma.
5.1.2 Vaxtatekjur og aðrar fjármagnstekjur.
5.2 Eignir sjóðsins skulu aðallega vera orlofshúsnæði. Lausafjáreign skal varðveitt í traustum verðbréfum og bankainnstæðum. Sjóðnum er óheimilt að veita peningalán.
5.3 Stjórn sjóðsins er heimilt að fela utanaðkomandi aðila ávöxtun hans.
6. gr. Ársreikningur og endurskoðun
6.1 Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Ársreikningur sjóðsins skal endurskoðaður af skoðunarmönnum BÍ og löggiltum endurskoðanda eða endurskoðunarstofu. Hann skal lagður fram samhliða reikningum BÍ.
7. gr. Slit sjóðsins
7.1. Nú er BÍ lagt niður án þess að annað sameiginlegt félag blaðamanna komi í þess stað og skal sjóðnum þá slitið. Eignir sjóðsins skulu þá renna til fullgildra félagsmanna í réttu hlutfalli við fjölda þeirra.
7.2 Einstaklingar sem segja sig úr BÍ eða uppfylla ekki lengur skilyrði aðildar eiga ekki tilkall til eigna sjóðsins.
8. gr. Breytingar á reglugerð
8.1. Breytingar á reglugerð þessari öðlast ekki gildi nema þær hafi verið samþykktar á aðalfundi BÍ. Um atkvæðagreiðslu um breytingar á reglugerðinni á aðalfundi BÍ gilda sömu reglur og um lagabreytingar.
9. gr. Nánari starfsreglur
9.1 Sjóðstjórn setur nánari starfsreglur skv. reglugerð þessari.
10. gr. Gildistaka
10.1. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á framhaldsaðalfundi BÍ 4. september 2024
Reglugerð orlofshúsasjóðs Blaðamannafélags Íslands
Reglur um úthlutun orlofshúsa
Sumarmánuðunum þremur, 12-14 vikum, auk páska, skal úthlutað sérstaklega og gilda þá neðangreindar úthlutunarreglur. Á öðrum tímabilum geta virkir félagar í BÍ bókað sig á opnum orlofsvef félagsins, en heimilt er að grípa til takmarkana þar um ef ástæða er til og setja upp punktakerfi vegna úthlutunar.
- Tímasetningar umsóknartímabila skulu auglýstar.
- Forgang hafa þeir sem eru greiðandi félagar í orlofshúsasjóð.
- Úthlutun á orlofshúsum á hverju af þremur orlofssvæðum BÍ er sjálfstæð, þannig að úthlutun á einu svæði hefur ekki áhrif á úthlutun á öðrum svæðum.
- Félagsnúmer ræður úthlutun þar sem félagsnúmerið endurspeglar lengd félagsaðildar.
- Félagsnúmer víkur fyrir hærra númeri séu styttra en sex ár frá síðustu úthlutun á hverju orlofssvæði fyrir sig.
Samþykkt á fundi stjórnar orlofshúsasjóðs 30. sept. 2026. Reglur gilda til 30. sept 2026.
Frekari upplýsingar um úthlutanir
Páskaúthlutun
- Opnað er fyrir umsóknir fyrir páskaúthlutun 15. janúar eða fyrsta virka dag þar á eftir.
- Umsóknarfresti lýkur 1. mars og fer úthlutun fram í vikunni á eftir. Úthlutun telst staðfest eftir að greiðsla hefur borist.
- Sótt er um á orlofshúsavefnum og fá þeir félagsmenn sem fá úthlutað tölvupóst.
Sumarúthlutun
- Opnað er fyrir umsóknir fyrir sumarúthlutun 15. janúar eða fyrsta virka dag þar á eftir.
- Umsóknarfresti lýkur 10. mars og fer úthlutun fram í vikunni á eftir. Úthlutun telst staðfest eftir að greiðsla hefur borist.
- Sótt er um á orlofshúsavefnum og fá þeir félagsmenn sem fá úthlutað tölvupóst.
Vetrarleiga
- Fyrir tímabilið frá janúar til loka maí (fyrir utan páskaleyfi) er opnað fyrir úthlutun fyrsta virka dag septembermánaðar. Umsóknir um vetrarleigu eru afgreiddar eftir því sem þær berast – um þær gildir því reglan „fyrstur kemur fyrstur fær“.
- Fyrir tímabilið frá september til desember er opnað fyrir úthlutun fyrsta virka dag í maí.
- Úthlutun telst staðfest eftir að greiðsla hefur borist.
- Sótt er um á orlofshúsavefnum og fá þeir félagsmenn sem fá úthlutað tölvupóst.


Ábyrgð leigjanda
- Leigjandi ber ábyrgð á eigninni og öllum búnaði hennar meðan á leigutíma stendur.
- Leigjandi skuldbindur sig til að bæta allt tjón sem verða kann af hans völdum, eða af völdum þeirra sem dvelja í eigninni á leigutímanum.
- Leigjanda ber að tilkynna allar skemmdir sem kunna að verða strax til umsjónarmanns eða félagsins.
- Leigjandi skal ganga vel um eignina og umhverfi hennar og skila hreinu við brottför. (Sjá reglur um þrif og frágang)
- Óheimilt er að hlaða rafmagnsbíla í innstungum í orlofshúsum BÍ.
- Óheimilt er að dvelja með gæludýr í Litlu- og Stóru-Brekku.
- Einungis leigutaka og gestum hans er heimilt að dvelja í húsinu.
Þrif fyrir brottför
- Tæmið og þrífið ísskáp og frysti.
- Ruslaskápar eiga að vera hreinir og tómir.
- Þrífið eldavél, bakarofn, örbylgjuofn og gasgrill.
- Þrífið baðherbergi og sturtu (einnig sturtugler).
- Ryksugið og skúrið gólf og þurrkið af yfirborðsflötum.
- Þurrkið kám af rúðum, speglum og húsgögnum þar sem það þarf.
- Ef barnarúmið er notað skal það þrifið og brotið saman.
- Þar sem er heitur pottur: Tæmið og þrífið heita pottinn (slanga með heitu vatni í útigeymslu í Brekkuskógi) og festið lok vel.
Frágangur fyrir brottför
- Lokið og læsið öllum gluggum og hurðum og dragið gardínur fyrir glugga.
- Gangið úr skugga um að allir hlutir séu á sínum stað.
- Setjið gasgrill og garðhúsgögn eða sessur í útigeymslu. Tryggið að hurð í útigeymslu sé lokuð.
- Allar sængur og koddar snyrtilega á rúmunum.
- Tryggið að lyklar séu í lyklaboxi.
- Vinsamlegast látið umsjónarmann vita ef gasið fyrir útigrillið klárast.
- Takið með ykkur allt sorp
Umsjónarmaður Stykkishólmi: Agnar Jónasson - 893 7050
Umsjónarmaður Brekkuskógi: Jóhannes Helgason - 892 7190
Umsjónarmaður Akureyri: Bragi V. Bergmann - 896 8456
