Þekktu rétt þinn

Einn mikilvægasti þátturinn í starfsemi Blaðamannafélags Íslands er að semja um kaup og kjör fyrir félagsmenn sína. Aðalkjarasamningur BÍ er gerður við  Samtök atvinnulífsins og miðast sérsamningar við aðra miðla við hann að stærstum hluta. Þó er vikið frá samningnum í fáeinum tilvikum. BÍ gætir þess að launagreiðendur virði réttindi félagsmanna en sömuleiðis er mikilvægt að blaðamenn þekki réttindi sín.


Hér finnur þú nokkur mikilvæg atriði sem gott er að þekkja um laun, vinnutíma, orlof og önnur réttindi blaðamanna. Upplýsingarnar eru settar fram til leiðbeiningar, en kjarasamningurinn sjálfur gildir ef vafi leikur á skilgreiningu.


Algengar spurningar

Smelltu á spurningu til að sjá svarið.

Laun og greiðslur

Er ég að fá greidd rétt laun?

Lágmarkslaun blaðamanna ráðast af launaflokki, starfsaldri og gildandi launatöflu. Því er mikilvægt að bera launaseðilinn saman við töflu viðkomandi árs og vita hvaða flokkur á við.

Launatöflur fyrir 2024-2027

Hvað eru desember- og orlofsuppbót háar?

Fastráðið starfsfólk sem hefur unnið í eitt ár fær desemberuppbót, sem greiðist í síðasta lagi 15. desember, og orlofsuppbót, sem greiðist í síðasta lagi 15. júlí. Upphæðirnar miðast við fullt starf en greiðast hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Desemberuppbót er 114.000 kr. árið 2026 og 118.000 kr. árið 2027. Orlofsuppbót er 62.000 kr. á orlofsárinu sem hófst 1. maí 2026 og 64.000 kr. á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2027.

Kjarasamningur BÍ, gr. 1.5–1.6

Hvað fæ ég greitt fyrir vinnu á rauðum dögum?

Almennir frídagar og stórhátíðardagar skerða ekki föst laun. Ef þú ert ekki í vaktavinnu áttu frí þessa daga þegar þeir falla á virkan dag. Vinnir þú á almennum frídegi á að greiða yfirvinnu fyrir vinnuna og tvöfalt yfirvinnukaup fyrir vinnu á stórhátíðardegi. Engin frídagabæting kemur til viðbótar.

Í vaktavinnu er frídagur samkvæmt vaktskrá sem fellur á rauðan dag frá mánudegi til föstudags bættur með öðrum frídegi. Vinna vaktavinnufólks á stórhátíðum greiðist með yfirvinnukaupi auk fastra launa.

Stórhátíðardagar eru nýársdagur, föstudagurinn langi, páskadagur, hvítasunnudagur, 17. júní, aðfangadagur, jóladagur og gamlársdagur.

Kjarasamningur BÍ, gr. 2.9

Áskriftir, net og sími

Já. Þú átt rétt á endurgreiðslu vegna tiltekins starfstengds kostnaðar, m.a. síma, nets og fjölmiðlaáskrifta. Blaðamanni er heldur ekki skylt að leggja til eigin vinnutæki. Ef það er gert að ósk vinnuveitanda á að greiða sérstaklega fyrir það.

Kjarasamningur BÍ, 7. kafli, gr. 7.1-7.4

Vinnutími og hvíld

Er ég að vinna yfirvinnu?

Vinna utan dagvinnutíma telst yfirvinna, nema samið hafi verið sérstaklega um vaktavinnu. Dagvinnutími blaðamanna er almennt frá kl 7:00 til 19:00, mánudaga til föstudaga.

Kjarasamningur BÍ, 2. kafli, gr. 2.1-2.4

Má greiða fyrir yfirvinnu með fríi?

Meginreglan er að greitt sé fyrir yfirvinnu. Ef samið er um frí í stað greiðslu þarf annað hvort að greiða mun dag- og yfirvinnukaups við næstu útborgun eða miða frítökuna við verðgildi unninna yfirvinnutíma. Uppsöfnuð frítaka á að koma fram á launaseðli.


Kjarasamningur BÍ, gr. 2.5

Yfirvinna greidd með frítöku

Kjarasamningur gerir ráð fyrir að yfirvinna sé greidd. Þó er leyfilegt að gera skriflegt samkomulag að yfirvinna sé greidd með frítöku. Það skal gert þannig að frítímar skulu vera jafn margir og unnir yfirvinnutímar en mismunur á launum í dagvinnu og yfirvinnu skal greiddur út með næsta launaseðli. Þá mætti einnig gera samkomulag um að yfirvinnutímar séu allir teknir út í fríi, en þá skal reikna hvern unninn yfirvinnutíma sem 1,8 tíma í dagvinnu.

Til þess að finna út muninn á tímakaupi dagvinnu og yfirvinnu skal taka heildarmánaðarlaun án vaktaálags og deila með 160. Þá fæst út tímakaup í dagvinnu. Tímakaup yfirvinnu er 1,0385% af samningsbundnum mánaðarlaunum. Framkvæmd útreikninga hefur verið sú að tímakaup yfirvinnu reiknast út frá heildarlaunum með vaktaálagi. Mánaðarlaun sem greidd eru samkvæmt launatöflu eru gefin upp í töflu með og án álags. Til að finna út mánaðarlaun dagvinnu hjá þeim sem ekki eru á taxtalaunum og vinna reglubundnar helgarvaktir skal taka heildarmánaðarlaun og deila með 1,21 (21% vaktaálag gildir þegar fólk vinnur einhverjar helgarvaktir).

Hér er dæmi:

Blaðamaður með kr. 753.010 í mánaðarlaun með vaktaálagi er með kr. 622.322 í grunnlaun skv. launatöflu. Tímakaup dagvinnu er því 622.322/160= 3.890 kr. Tímakaup yfirvinnu er 753.010x1,0385/100=7.820 kr. Mismunurinn á dagvinnu og yfirvinnu er því kr. 3.930. Fyrir hvern unninn yfirvinnutíma ætti því að greiða kr. 3.930 auk þess sem 1 klst reiknast í frítöku. Ef öll yfirvinna er tekin út í frí skal reikna 1,8 klukkustundir í frítöku fyrir hverja unna yfirvinnustund.

Á ég að fá eitthvað greitt fyrir útkall?

Já. Ef blaðamaður er kallaður út utan venjulegs dagvinnutíma á hann að fá greitt að lágmarki sem fjórar klukkustundir í yfirvinnu.

Kjarasamningur BÍ, gr. 2.6

Hversu mikla hvíld á ég rétt á?

Á hverjum sólarhring áttu rétt á að minnsta kosti 11 klst. samfelldri hvíld og vinnutími má ekki fara umfram 13 klst. Þá áttu rétt á að minnsta kosti einum frídegi í viku.

Ef þú ert beðin/n um að mæta áður en 11 klst. hvíld er náð myndast frítökuréttur, 1½ klst. í dagvinnu fyrir hverja klukkustund sem hvíldin skerðist. Uppsafnaður frítökuréttur á að koma fram á launaseðli og er gerður upp við starfslok.

Kjarasamningur BÍ, gr. 2.13

Orlof og leyfi

Hvað á ég rétt á löngu sumarfríi?

Blaðamenn eiga að lágmarki 24 orlofsdaga. Orlofsréttur eykst með starfsaldri og sérstakar reglur gilda meðal annars um vetrarleyfi, lengri starfsaldur og orlof sem veitt er utan sumarorlofstímabils.Kjarasamningur BÍ, 4. kafli, gr. 4.1

Hvenær á ég rétt á þriggja mánaða leyfi?

Blaðamenn sem hafa unnið óslitið í 5 ár hjá sama útgefanda eiga rétt á þriggja mánaða leyfi á fullum launum og eru sumar- og vetrarleyfi ársins innifalin. Leyfið fæst aftur eftir 10 ára starf og síðan á 4 ára fresti. Fullt þriggja mánaða leyfi er 65 dagar.

Sami réttur gildir um blaðamenn í hlutastarfi og tími í fæðingarorlofi telst með þegar starfstíminn er metinn. Fæðingarorlof seinkar því ekki leyfinu.

Samkomulag við útgefanda ræður hvenær leyfið er tekið. Ef þú segir upp fellur rétturinn niður, en ef þér er sagt upp á að greiða þér það sem þú átt inni. Ef þú ræður þig á annan miðil eftir að minnsta kosti 5 ára samfellt starf heldur þú áunnum rétti.

Kjarasamningur BÍ, gr. 4.3

Fæ ég orlof af yfirvinnu og vaktaálagi?

Já. Greiða skal orlofslaun af yfirvinnu og vaktaálagi: 10,17% hjá þeim sem eiga 24 daga orlofsrétt, 11,59% hjá þeim sem eiga 27 daga og 12,55% hjá þeim sem eiga 29 daga.

Ef vaktaálag er greitt ofan á grunnlaun er ekki nóg að halda aðeins grunnlaunum í sumarfríi. Orlof af vaktaálaginu þarf líka að greiða, til dæmis með því að reikna orlof jafnóðum af öllum launum og greiða það út þegar orlofið hefst.

Kjarasamningur BÍ, gr. 4.2

Hvað ef ég veikist í sumarfríi?

Ef þú veikist svo alvarlega í orlofi innanlands að þú getur ekki notið þess áttu rétt á uppbótarorlofi jafnlengi og veikindin vara. Sama gildir ef veikindi innan EES-svæðisins leiða til sjúkrahúsvistar.

Skilyrðin eru að þú tilkynnir veikindin til vinnuveitanda strax á fyrsta degi, að veikindin standi lengur en 3 sólarhringa innanlands eða 6 sólarhringa innan EES og að þú leggir fram læknisvottorð.

Kjarasamningur BÍ, gr. 4.4

Hvað verður um ótekið orlof þegar ég hætti?

Ótekið orlof frá fyrra orlofsári má nýta til 30. apríl árið eftir. Ef þú hættir fyrir þann tíma á að gera það orlof upp við starfslok, samkvæmt dómi Hæstaréttar í máli nr. 148/2009.

Orlof frá eldri orlofsárum flyst hins vegar ekki á milli ára og vinnuveitanda er ekki skylt að greiða það út.

Lög um orlof nr. 30/1987

Veikindi og fæðingarorlof

Hvað á ég rétt á löngu veikindaleyfi?

Veikindaréttur fer eftir starfsaldri. Fastráðnir blaðamenn eiga rétt á launum í veikindum í ákveðinn tíma og rétturinn lengist eftir fimm og tíu ára starf.

Kjarasamningur BÍ, 6. kafli, gr. 6.1-6.1.3


Ávinn ég mér orlof þegar ég er veik/ur?

Já, á meðan þú færð greidd veikindalaun. Þá færðu orlofslaun og ávinnur þér rétt til orlofs.

Þegar veikindarétturinn er tæmdur hættir þú að ávinna þér orlofslaun, en rétturinn til að taka orlof heldur sér. Það orlof er þá í eðli sínu launalaust.

Kjarasamningur BÍ, 6. kafli

Lög um orlof nr. 30/1987

Hvað ef barnið mitt veikist?

Foreldri má verja allt að 12 dögum á hverju 12 mánaða tímabili til að annast veik börn yngri en 13 ára, enda verði annarri umönnun ekki við komið. Á fyrsta starfsári ávinnast tveir dagar fyrir hvern unninn mánuð.

Sama gildir um börn yngri en 16 ára í alvarlegum tilvikum sem leiða til sjúkrahúsvistar í að minnsta kosti einn dag. Þú heldur dagvinnulaunum og vaktaálagi þar sem það á við. Rétturinn nær einnig til fósturforeldra og forráðamanna.

Kjarasamningur BÍ, gr. 6.3

Telst fæðingarorlof til starfstíma?

Já. Fæðingarorlof reiknast til starfstíma við mat á starfstengdum réttindum, svo sem rétti til orlofstöku, starfsaldurshækkana, veikindaréttar, uppsagnarfrests og þriggja mánaða leyfis. Það gefur þó ekki rétt til orlofslauna fyrir tímabilið.

Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast allt að 6 mánuðir í fæðingarorlofi til starfstíma við útreikning desember- og orlofsuppbótar.

Kjarasamningur BÍ, gr. 1.6.1

Lög um fæðingar- og foreldraorlof nr. 144/2020, 14. gr.

Ráðning og uppsögn

Hvað er reynslutími?

Fyrstu 4 mánuðir í starfi teljast reynslutími og eftir 4 mánaða samfellt starf ert þú fastráðin/n. Á reynslutíma er uppsagnarfrestur ein vika og veikindaréttur ein vika fyrir hvern unninn mánuð.

Við fastráðningu færðu laun greidd fyrirfram og endurgreiðslu kostnaðar samkvæmt 7. kafla kjarasamningsins.

Kjarasamningur BÍ, gr. 3.1 og 6.1

Á ég rétt á skriflegum ráðningarsamningi?

Já. Ef ráðið er til lengri tíma en eins mánaðar og að meðaltali meira en 8 klst. á viku á að gera skriflegan ráðningarsamning eða staðfesta ráðningu skriflega í síðasta lagi tveimur mánuðum eftir að starf hefst.

Í samningnum á meðal annars að koma fram launaflokkur og starfsaldursþrep, hvort um vaktavinnu sé að ræða, starfsheiti, uppsagnarfrestur, vinnutími, orlofsréttur, vetrarorlof og þriggja mánaða leyfi, endurgreiðsla kostnaðar, lífeyrissjóður og tryggingar.

Kjarasamningur BÍ, gr. 3.1.1

Hvernig virkar uppsagnarfrestur?

Fastráðnir blaðamenn eiga almennt rétt á þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Uppsagnarfrestur getur lengst eftir langan starfsaldur og eftir aldri starfsmanns.

Kjarasamningur BÍ, 3. kafli, gr. 3.1-3.3

Er ég tryggð/ur í starfi?

Já. Útgefanda ber að kaupa slysatryggingu, sem tryggir gegn tímabundnum starfsorkumissi, varanlegri örorku og dauða af völdum slyss, og hóplíftryggingu fyrir fastráðna blaðamenn. Tryggingarnar gilda allan sólarhringinn, í starfi og utan þess.

Útgefandi greiðir 2/3 hluta iðgjaldsins og blaðamaður 1/3. Slysatryggingin nær einnig til áhættu sem fylgir starfinu, til dæmis við fréttaöflun af náttúruhamförum eða óeirðum.

Kjarasamningur BÍ, 10. kafli

Höfundaréttur

Hver á höfundarréttinn að efninu mínu?

Efni sem starfsfólk ritstjórnar vinnur, svo sem texti, myndir og teikningar, fellur undir höfundalög. Vilji útgefandi fá framseljanlegan afnotarétt af efninu þarf að semja um það og óheimilt er að breyta áður unnu efni án samþykkis höfundar.

Semja þarf sérstaklega um samnýtingu efnis á fleiri en einum miðli sama útgefanda og um sölu efnis til þriðja aðila. Tekjum af slíkri sölu skal að jafnaði skipt til helminga að frádregnum kostnaði.

Kjarasamningur BÍ, 12. kafli