Blaðamannaverðlaun

Verðlaunagripur Blaðamannaverðlaunanna í hendi með vinnuhanska

Til viðurkenningar fyrir framúrskarandi frammistöðu og gott fordæmi í íslenskri fjölmiðlun veitir Blaðamannafélag Íslands Blaðamannaverðlaun ársins á hverju ári. Verðlaunin greinast í fernt og eru hverju sinni kennd við viðkomandi ár:


- Rannsóknarblaðamennska ársins
- Besta umfjöllun ársins
- Blaðamannaverðlaun ársins
- Viðtal ársins


Veitt eru heiðursskjöl fyrir hvern flokk, minjagripur og vegleg peningaverðlaun sem stjórn Blaðamannafélags Íslands ákveður. Viðurkenningarnar eru veittar á hverju ári í öllum flokkum, svo fremi dómnefnd telji að tilnefningarnar séu þess virði. 


Vinningshafar – Allir sem hlotið hafa Blaðamannaverðlaun BÍ.

Reglugerð – Reglugerð Blaðamannaverðlauna BÍ.