Vinningshafar Blaðamannaverðlauna

Verðlaunahafar og tilnefningar frá 2003

Blaðamannaverðlaun 2025

Blaðamannaverðlaunin fyrir árið 2025 voru veitt við hátíðlega athöfn í Hafnarhúsi í kvöld. Verðlaununum er ætlað að heiðra framúrskarandi blaðamennsku á Íslandi og voru þau veitt í fjórum flokkum.

Blaðamannaverðlaun ársins hlaut Kjartan Kjartansson hjá Sýn fyrir fréttaskýringar um loftslagsmál á Vísir.is. Dómnefndin nefndi sérstaklega hvernig Kjartan skýrir flókin umfjöllunarefni á mannamáli án þess að afsláttur sé gefinn af fagmennsku. Hann afhjúpaði misskilning stjórnvalda á losunarmarkmiði Íslands í samstarfi við Evrópusambandið, sem leiddi til þess að íslensk stjórnvöld þurftu að endurskoða markmið sín vegna Parísarsamningsins.

Viðtal ársins hlaut Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir hjá Heimildinni fyrir viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Ingibjörg Dögg fylgdi Höllu í lífi og starfi um nokkurra daga skeið og gaf lesandanum nýja og áhugaverða sýn á forsetann og konuna á bak við embættið. Í viðtalinu greindi Halla frá sársaukafullri reynslu í barnæsku og kynferðisofbeldi sem hefur markað líf hennar. Dómnefndin lagði áherslu á mikilvæg skilaboð viðtalsins til þolenda um að kynferðisofbeldi þurfi ekki að skilgreina þá um ókomna tíð.

Umfjöllun ársins hlutu Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson hjá RÚV fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun í þættinum Kveik um afleiðingar alvarlegrar e. coli-matarsýkingar sem upp kom í leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Dómnefndin tók fram að umfjöllunin varpi nýju ljósi á bæði ástæður og afleiðingar smitsins og nýti kosti myndmiðilsins vel.

Rannsóknarblaðamennska ársins hlutu Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson hjá RÚV fyrir umfjöllun í þættinum Kveik um umfangsmiklar njósnaaðgerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að undirlagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Afhjúpað var hvernig fylgst var með fólki sem hugðist leita réttar síns gagnvart Björgólfi, það hlerað og elt af fyrrverandi og þáverandi lögreglumönnum. Umfjöllunin leiddi til athugunar eftirlitsnefndar um störf lögreglu, persónuverndar, dómsmálaráðherra og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á verklagi lögreglu.

Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna 2025 skipuðu Pálmi Jónasson (formaður), Arndís Þorgeirsdóttir, Brynhildur Ólafsdóttir og Steinunn Stefánsdóttir.

Blaðamannafélag Íslands óskar verðlaunahöfunum og þeim tilnefndu innilega til hamingju.

Blaðamannaverðlaun 2024

Freyr Gígja Gunnarsson hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2024, Eva Björk Benediktsdóttir, RÚV, var verðlaunuð fyrir viðtal ársins, Sunna Ósk Logadóttir og Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, Heimildinni, hlutu viðurkenningu fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins og Berghildur Erla Bernharðsdóttir hlaut verðlaun fyrir umfjöllun ársins. Verðlaunin voru afhent í Sykursal Grósku í dag að viðstöddu margmenni.

Hér er að finna rökstuðning dómnefndar:

Rannsóknarblaðamennska ársins 2024

Sunna Ósk Logadóttir og Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, Heimildinni. Fyrir fréttaskýringar um Running Tide. Áhrifamikil umfjöllun sem afhjúpaði skýjaborgir fyrirtækisins Running Tide sem seldi vanhugsaðar lausnir á loftslagsvandanum. Rætt var við fjölda vísindamanna sem gagnrýndu vinnubrögð fyrirtækisins og þá var fjöldamargra gagna aflað við rannsóknina sem vörpuðu ljósi á hvernig bæði stjórnvöld og eftirlitsstofnanir brugðust hlutverki sínu varðandi starfsemi Running Tide. Fyrirtækið hætti starfsemi sinni bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum um það leyti sem umfjöllun Heimildarinnar birtist.

Einnig tilnefnd:

Urður Örlygsdóttir og Arnar Þórisson, RÚV. Fyrir fyrir umfjöllun um mansal á matsölustöðum Quang Le.

Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Árni Þór Theodórsson, RÚV. Fyrir umfjöllun um unga, fatlaða einstaklinga sem vistaðir eru á hjúkrunarheimilum fyrir aldraða því önnur úrræði skortir í heilbrigðiskerfinu.

Viðtal ársins 2024

Eva Björk Benediktsdóttir, RÚV. Fyrir viðtal við Hafdísi Báru Óskarsdóttur sem varð fyrir lífshættulegri líkamsárás af hendi barnsföður síns og fyrrverandi sambýlismanns. Viðmælandinn lýsir því hvernig lögregla brást henni í aðdraganda árásarinnar, en maðurinn hefur nú verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og fleiri brot. Viðmælandi dregur ekkert undan svo úr verður sláandi frásögn, auk þess sem blaðamaður nýtir sjónvarpsmiðilinn á áhrifaríkan hátt.

Einnig tilnefnd:

Erla Hlynsdóttir, Heimildinni. Fyrir viðtal við Agnesi M. Sigurðardóttur, fyrrverandi biskup Íslands.

Kolbeinn Tumi Daðason, fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Fyrir viðtal við Davíð Viðarsson. Án óþarfa málalenginga er sögu hins upprunalega Davíðs Viðarssonar gerð skil.

Umfjöllun ársins 2024

Berghildur Erla Bernharðsdóttir, fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Fyrir sjónvarpsþáttaröðina Vistheimilin. Rannsóknarvinna blaðamannsins skín í gegn í ítarlegum og vönduðum þáttum þar sem viðmælendur stíga fram og ræða þungbæra lífsreynslu, margir hverjir í fyrsta sinn. Fjölmargar aðrar heimildir eru dregnar fram og settar í samhengi. Umfjöllunarefni sem erfitt er að gera myndræn skil en það er leyst á bæði hugmyndaríkan og áhrifamikinn hátt.

Einnig tilnefnd:

Guðrún Hulda Pálsdóttir, Bændablaðinu. Fyrir umfjöllun um einokun á íslenskum markaði með koltvísýring sem er nauðsynlegur í ylrækt.

Pétur Magnússon, RÚV. Fyrir útvarpsþáttaröðina Skaða.

Blaðamannaverðlaun ársins 2024

Freyr Gígja Gunnarsson, RÚV. Fyrir fréttaskýringar í Speglinum. Freyr hefur sýnt einstaka þrautseigju í að krefja stjórnvöld um svör í ýmsum stórum fréttamálum og ítrekað nýtt upplýsingarétt almennings til að draga nýjar upplýsingar fram í dagsljósið og setja þær í samhengi. Kjarnaðist þetta einna helst í umfjöllun Freys um samskipti ráðamanna í aðdraganda þess að brottflutningi Yazan Tamimi var slegið á frest, en málið var síðasti naglinn í líkkistu ríkisstjórnar Framsóknar, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna.

Einnig tilnefnd:

Auður Jónsdóttir, Heimildinni. Fyrir fjölbreytt viðtöl og umfjallanir.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Morgunblaðið og mbl.is. Fyrir umfjöllun um skólakerfi í vanda.

Blaðamannaverðlaun 2023

Heimir Már Pétursson hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2023, Margrét Marteinsdóttir var verðlaunuð fyrir viðtal ársins, Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins og Jóhannes Kr. Kristjánsson, Sævar Guðmundsson og Heimir Bjarnason fyrir umfjöllun ársins. Verðlaunin voru afhent á Kjarvalsstöðum í dag að viðstöddu margmenni. Hér má sjá rökstuðning dómnefndar fyrir valinu:

Viðtal ársins:

Margrét Marteinsdóttir, Heimildinni. Fyrir viðtal við Gyrði Elíasson, rithöfund. Gyrðir hefur í gegnum tíðina forðast kastljós fjölmiðla en í viðtalinu ræðir hann í fyrsta sinn opinskátt um þunglyndi sem hann hefur glímt við í áratugi, og segir það vera vissan þráð í gegnum öll sín verk. Viðtalið er yndislestur og afar vel unnið, þar sem ljóðlist Gyrðis er meðal annars listilega fléttað inn í frásögnina.

Rannsóknarblaðamennska ársins:

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, Heimildinni. Fyrir fréttaskýringar um endurvinnsluferli drykkjarferna sem afhjúpaði að fernur, sem fjölmargir Íslendingar hafa flokkað jafnvel áratugum saman í þeirri trú að þær væru endurunnar, eru brenndar í sementsverksmiðjum á meginlandi Evrópu. Umfjöllun og rannsókn Bjartmars var umfangsmikil og teygði sig til margra landa og hafði margvísleg áhrif, meðal annars þær að breytingar urðu á stjórnendateymi Úrvinnslusjóðs og nýtt verklag var innleitt við endurvinnslu á drykkjarfernum.

Umfjöllun ársins:

Jóhannes Kr. Kristjánsson, Sævar Guðmundsson og Heimir Bjarnason, Reykjavík Media og Purkur kvikmyndagerð, fyrir umfjöllun ársins. Fyrir sjónvarpsþættina Stormur sem fjölluðu um Covid 19-faraldurinn á Íslandi frá hliðum sem ekki höfðu sést áður í fjölmiðlum hér á landi. Mannlegar hliðar faraldursins voru í forgrunni í þáttunum með áhrifamiklum sögum af því hvernig almenningur tókst á við sjúkdóminn og hraða útbreiðslu hans, sem og sögum af þeim sem stóðu í framlínu baráttunnar fjarri ættingjum sínum.

Blaðamannaverðlaun ársins:

Heimir Már Pétursson, fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Fyrir ítarlega og vandaða umfjöllun um kjaramál á árinu, sem kristallaðist í viðtali við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar og Halldór Benjamín Þorbergsson, þáverandi framkvæmdastjóra SA. Deilan var þá komin á algjöran hnút en Heimir Már fékk þau saman í ítarlegt viðtal í beinni útsendingu þar sem þau féllust á að fresta verkföllum og verkbanni ef ný miðlunartillaga yrði lögð fram.

Blaðamannaverðlaun 2022

Blaðamannaverðlaun BÍ fyrir árið 2022 voru veitt við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu þann 10. mars síðastliðinn. Þetta var 20. verðlaunaveitingin frá því stofnað var til þeirra.

Þessi hlutu verðlaunin í flokkunum fjórum:

Viðtal ársins: Lillý Valgerður Pétursdóttir

Umfjöllun ársins: Þorsteinn J. Vilhjálmsson

Rannsóknarblaðamennska ársins: Helgi Seljan

Blaðamannaverðlaun ársins: Sunna Valgerðardóttir

Umsagnir dómnefndar Viðtal ársins 2022:

Lillý Valgerður Pétursdóttir, fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Fyrir viðtal við Arnar Þór Ómarsson og Petru Bergrúnu Axelsdóttur, íbúa á Þórshöfn á Langanesi, um aðdraganda andláts Berglindar Bjargar Arnardóttur, tveggja ára dóttur þeirra, úr Covid-19. Frásögn Arnars og Petru af missinum er átakanleg, en lýsir að auki brotalömum í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Blaðamaðurinn nálgast erfitt viðfangsefni af fágun og sýnir viðmælendum virðingu.

Umfjöllun ársins 2022 Þorsteinn J. Vilhjálmsson.

Fyrir útvarpsþáttaröð á Rás 1 um kennarann og útvarpsmanninn Skeggja Ásbjarnarson og ofbeldi hans gegn börnum í Laugarnesskóla. Þættirnir voru meðal annars byggðir á áhrifamiklum viðtölum við brotaþola kennarans en einnig við aðra sem báru honum vel söguna. Í sex útvarpsþáttum tókst Þorsteini J. að draga upp ljóslifandi mynd af Skeggja, virðingarstöðu hans í samfélaginu og kynferðisbrotum gegn fjölmörgum drengjum, sem og andlegt ofbeldi gagnvart stúlkum í skólanum.

Rannsóknarblaðamennska ársins 2022 Helgi Seljan, Stundinni.

Fyrir fréttaskýringar um Alexander Moshensky, kjörræðismann Íslands í Belarús (Hvíta-Rússlandi), og náin tengsl hans við Alexander Lukashenko, einræðisherra landsins. Rannsókn Helga leiddi meðal annars í ljós að íslensk stjórnvöld áttu mikil samskipti við fulltrúa Evrópuríkja eftir að Moshensky leitaði liðsinnis þeirra vegna boðaðra refsiaðgerða gegn honum en Moshensky er umfangsmikill kaupandi íslenskra sjávarafurða. Í kjölfar fréttaskýringanna var mál Moshenskys tekið upp í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis og utanríkisráðherra kallaður fyrir nefndina.

Blaðamannaverðlaun ársins 2022.

Sunna Valgerðardóttir, RÚV/ fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Fyrir fréttaskýringar á miðlum Sýnar og RÚV. Í Kompási varpaði Sunna nýju ljósi á trúarofbeldi innan sértrúarsöfnuða sem og ýmissa hópa sem fást við andleg málefni, og afleiðingar þess. Þá gaf þáttur hennar um ópíóíðafíkn raunsanna mynd af heimi morfínfíknar. Seinni hluta árs hafði Sunna umsjón með uppbyggingu nýs fréttaskýringaþáttar, Þetta helst, á Rás 1 þar sem efnistök eru fjölþætt og oft nýstárleg.

Þessi voru einnig tilnefnd:

Umfjöllun ársins

Hólmfríður Gísladóttir, Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Samúel Karl Ólason, fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, fyrir Úkraínuvaktina og Ingólfur Bjarni Sigfússon, RÚV, fyrir umfjöllun um flóttafólk frá Sýrlandi.

Rannsóknarblaðamennska ársins:

Guðný Halldórsdóttir og Ingvar Haraldsson, Viðskiptablaðinu, fyrir fréttaskýringar um styrktarsjóð Sonju de Zorilla og Tryggvi Aðalbjörnsson, RÚV, fyrir umfjöllun um öryggismál ferjunnar Baldurs.

Blaðamannaverðlaun ársins:

Bogi Ágústsson, RÚV, fyrir umfjöllun af erlendum vettvangi og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Stöð 2, fyrir þættina Leitin að upprunanum.

Viðtal ársins:

Sólveig Klara Ragnarsdóttir, RÚV, fyrir viðtal við kynsegin ungmenni og foreldra þeirra og Þórarinn Þórarinsson, Fréttablaðinu, fyrir viðtal við Hrafn Jökulsson

Blaðamannaverðlaun 2021

Sunna Karen Sigþórsdóttir, Ásdís Ásgeirsdóttir, Aðalsteinn Kjartansson, Arnar Þór Ingólfsson og Þórður Snær Júlíusson hlutu viðurkenningu á blaðamannaverðlaunum ársins 2021 sem veitt voru þann 1. apríl 2022.

Tilnefningar hlutu eftirtalin:

Viðtal ársins:

Ásdís Ásgeirsdóttir, Morgunblaðinu.

Fyrir viðtal við Óla Björn Pétursson. Hann greinir þar frá grófu kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir á unglingsaldri. Frásögnin er sláandi en afar upplýsandi og sækir á lesandann sem fær raunsanna lýsingu á því hvernig unglingur er ginntur af barnaníðingi. Honum var haldið með hótunum og ofbeldi en tekst svo að losa sig og endurheimta líf sitt.

Björk Eiðsdóttir, Fréttablaðinu.

Fyrir viðtal við Sigríði Gísladóttur sem lýsir barnæsku sinni hjá móður með geðsjúkdóm. Björk fangar í áhrifaríku, persónulegu og vel uppbyggðu viðtali hvernig dóttirin telur kerfið hafa brugðist henni. Þá lýsir hún því hvernig reynsla hennar leiddi til þess að hún lætur til sín taka í baráttu fyrir börn sem búa með foreldrum með geðrænan vanda.

Ingi Freyr Vilhjálmsson, Stundinni.

Fyrir viðtal við Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóra. Ingi Freyr veitir í viðtalinu einstaka og upplýsandi innsýn í hugarheim eins áhrifamesta embættismanns landsins. Viðmælandinn tjáir sig opinskátt um skoðanir sínar á samfélaginu, dómsmál á hendur bankanum og hvernig hann beiti sér í starfi til þess að fjármálakerfið þróist í þær áttir sem hann telur þurfa.

Rannsóknarblaðamennska ársins:

Birgir Olgeirsson, Nadine Guðrún Yaghi ásamt Erlu Björgu Gunnarsdóttur, Stöð 2, Bylgjunni og Vísi.

Fyrir fréttaskýringaþættina Kompás um undirheima Íslands þar sem lýst er baráttu við skatt‑ og bótasvik. Eins þætti þar sem fjallað var um hvernig morð í Rauðagerði bar merki skipulagðrar glæpastarfsemi. Myndefni frá lögreglu og opinskátt viðtal við ekkju þess myrta gáfu innsýn í heim sem oftast er lokaður almenningi.

Aðalheiður Ámundadóttir Fréttablaðinu.

Fyrir fréttaskýringar um dómaframkvæmd Landsréttar í nauðgunarmálum. Tölfræðilegar upplýsingar sem fram koma í skýringunum staðfesta bága stöðu kynferðisbrota innan réttarkerfisins. Þær sýna að af þeim fáu kynferðisbrotamálum sem koma til kasta dómstóla er þriðjungi sakfellinga snúið við áfrýjun og meira en helmingur mildaður. Samantektin leiddi til aðgerða ríkissaksóknara, umræðna á Alþingi og gagnrýni í samfélaginu.

Arnar Þór Ingólfsson og Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum.

Fyrir fréttaskýringar þar sem ljóstrað var upp um óeðlilega hagsmunagæslu svokallaðrar Skæruliðadeildar Samherja. Þær sýndu hvernig fulltrúar þessa stórfyrirtækis reyndu til að mynda að hafa áhrif á formannskjör í stéttarfélagi blaðamanna og kjör á lista Sjálfstæðisflokksins í heimakjördæmi fyrirtækisins. Fréttaskýringarnar gáfu greinagóða mynd af óvönduðum meðölum fjársterks fyrirtækis í hagsmunabaráttu þess

Umfjöllun ársins:

Freyr Rögnvaldsson og Margrét Marteinsdóttir, Stundinni.

Fyrir umfjöllun um harðræði gagnvart börnum á vistheimilum í Eyjafirði um tíu ára skeið til 2007. Sex konur lýstu í viðtölum andlegu og líkamlegu ofbeldi, einkum af hálfu forstöðumanns heimilanna og voru frásagnir þeirra studdar gögnum og vitnisburðum. Umfjöllunin leiddi til þess að ríkisstjórnin fól eftirlitsstofnun félagsþjónustunnar að rannsaka aðstæður barnanna sem þar voru vistuð.

Sunna Karen Sigurþórsdóttir, Stöð 2, Bylgjunni og Vísi.

Fyrir umfjöllun um tilefnislausar lífslokameðferðir af hálfu læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Sunna Karen hóf umfjöllun um málið, fylgdi því eftir og varpaði ljósi á umfang þess. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu, sem og hjá landlækni og í heilbrigðisráðuneytinu. Í kjölfar umfjöllunarinnar var ákveðið að læknirinn skyldi ekki lengur starfa í beinum tengslum við sjúklinga.

Þórdís Arnljótsdóttir, RÚV.

Fyrir fræðandi og skemmtilega umfjöllun um jarðhræringar og eldgos í Fagradalsfjalli. Þórdís nýtti myndefni frá gosstöðvunum vel til að skýra mál sérfræðinga í tengslum við eldsumbrotin. Fréttirnar gáfu áhorfendum lifandi mynd af því sem á gekk við Fagradalsfjall en voru um leið fræðandi og settu eldgosið í skýrt samhengi við önnur eldsumbrot og jarðsögu Íslands.

Blaðamannaverðlaun ársins:

Aðalsteinn Kjartansson, Stundinni.

Fyrir vandaða og afhjúpandi umfjöllun um fjölda mála, svo sem greiningu á eignum og eignatengslum íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja sem dráttur var á hjá ráðuneyti málaflokksins, rannsókn lögregluyfirvalda á Samherja, og um svokallaða skæruliðadeild Samherja, auk aflandsleka í svonefndum Pandóruskjölum. Skrif Aðalsteins hafa haft áhrif á samfélagið og almenna samfélagsumræðu.

Arnhildur Hálfdánardóttir, RÚV.

Fyrir gagnrýna og fræðandi umfjöllun um loftslagsmál. Í Loftslagsdæminu, átta útvarpsþáttum, fylgdi Arnhildur eftir fjórum fjölskyldum sem áttu að minnka kolefnisspor sitt. Birtar voru fréttaskýringar og viðtöl við sérfræðinga. Þá vann Arnhildur fyrir þingkosningarnar í haust afhjúpandi greinaröð um árangur ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem leiddi í ljós að hann var um margt óljós og enn mikið verk óunnið

Berghildur Erla Bernharðsdóttir, fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Fyrir vönduð fréttatengd viðtöl þar sem sjónum er beint að einstaklingum í erfiðum aðstæðum

Blaðamannaverðlaun 2020

4B L A Ð A M A Ð U R I N N • 1 / 2 0 2 1

F É L A G I Ð

Tilnefningar

Umfjöllun ársins

Birta Björnsdóttir og Guðmundur Björn Þorbjörnsson,

RÚV.

Fyrir fjölbreytta, aðgengilega og upplýsandi umfjöllun af erlendum vettvangi sem vakið hefur athygli í þáttunum

Heimskviðum.

Erla Björg Gunnarsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi, Sýn.

Fyrir áhrifamikla og afhjúpandi umfjöllun Kompáss um dulinn vanda kvenna með þroskahömlun sem leiðst hafa út í vændi.

Sunna Ósk Logadóttir, Bára Huld Beck, Þórður Snær

Júlíusson, Arnar Þór Ingólfsson og Jónas Atli

Gunnarsson, Kjarnanum.

Fyrir vandaða og yfirgripsmikla umfjöllun um eldsvoðann á

Bræðraborgarstíg 1 og margháttaðar afleiðingar hans.

Viðtal ársins

Erla Hlynsdóttir, DV,

Fyrir áhrifamikið viðtal við Elísabetu Ronaldsdóttur þar sem lýst er alvarlegu ofbeldi í nánu sambandi.

Hlédís Maren Guðmundsdóttir, Stundinni.

Fyrir viðtal við fjórar ungar íslenskar konur sem eiga rætur að rekja til Asíu og lýsa kynferðislegum kynþáttafordómum í sinn garð allt frá grunnskólaaldri.

Orri Páll Ormarsson, Morgunblaðinu

Fyrir viðtal við Ingva Hrafn Jónsson þar sem hann ræðir um andlát bróður síns og þá ákvörðun hans að þiggja dánaraðstoð.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Aðalsteinn Kjartansson, Helgi Seljan og Stefán

Drengsson, RÚV.

Fyrir fréttaskýringarþátt um afdrif tveggja gámaflutninga‑ skipa sem Eimskip seldi í gegnum millilið til niðurrifs í

Indlandi þvert á evrópsk lög.

Freyr Rögnvaldsson og Bjartmar Oddur Þeyr

Alexandersson, Stundinni.

Fyrir fréttaflutning um plastmengun í Krýsuvík vegna moltudreifingar umhverfisfyrirtækisins Terra sem Samtök atvinnulífsins völdu umhverfisfyrirtæki ársins 2020.

Nadine Guðrún Yaghi, Sýn.

Fyrir að afhjúpa umfangsmikil og afdrifarík mistök sem gerð voru við greiningar á leghálssýnum hjá Leitarstöð

Krabbameinsfélagsins.

Blaðamannaverðlaun ársins

Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir, RÚV

Fyrir umfjöllun um atvinnuleysi þar sem tekið var á sálrænum, félagslegum og fjárhagslegum afleiðingum þess í skugga heimsfaraldurs COVID‑19.

Sunna Karen Sigurþórsdóttir, Sýn

Fyrir yfirgripsmiklar og áhrifaríkar fréttir sem fluttar voru beint af vettvangi af aurskriðunum á Seyðisfirði og afleiðingum þeirra.

Þórhildur Þorkelsdóttir, RÚV

Fyrir vönduð fréttatengd viðtöl þar sem sjónum er beint að einstaklingum í erfiðum aðstæðum.

dómnefndar til blaðamannaverðlauna fyrir árið 2020

Verðlaunagripirnir tilbúnir til afhendingar.

5B L A Ð A M A Ð U R I N N • 1 / 2 0 2 1

F É L A G I Ð

Umfjöllun ársins

Sunna Ósk Logadóttir, Bára Huld Beck, Þórður Snær

Júlíusson, Arnar Þór Ingólfsson og Jónas Atli

Gunnarsson á Kjarnanum

Fyrir umfjöllun um eldsvoðann á Bræðraborgarstíg 1 og margháttaðar afleiðingar hans

Í umfangsmikilli umfjöllun er fjallað af næmni og dýpt um mannskæðan húsbruna á Bræðraborgarstíg 1 í Reykjavík í fyrrasumar. Blaðamennirnir nálgast atburðinn frá ótal hliðum, frá þeim mannlega harmleik sem átti sér stað, yfir í kerfislæga jaðarsetningu og oft á tíðum óboðlegan aðbúnað erlends verkafólks á Íslandi.

Viðtal ársins

Orri Páll Ormarsson á Morgunblaðinu

Fyrir viðtal við Ingva Hrafn Jónsson

Í viðtali Orra Páls við Ingva Hrafn Jónsson undir fyrirsögninni

Vill lögleiða dánaraðstoð er dregin upp ný hlið á annars þjóðþekktum manni. Ingvi Hrafn ræðir bróðurmissi á liðnu ári og þau djúpstæðu áhrif sem ákvörðun bróður hans um að þiggja dánaraðstoð hafði á hann. Í framhaldinu fjallaði

Orri Páll nánar um dánaraðstoð og dýpkaði með umfjöllun sinni umræðu um þetta viðkvæma mál.

Verðlaunahafar Kjarnans með verðlaunagripinn.

Verðlaunahafar

Blaðamannaverðlauna

Eftirfarandi eru nöfn verðlaunahafa Blaðamannaverðlauna BÍ í hverjum flokki verðlaunanna ásamt rökstuðningi dómnefndarinnar.

Blaðamannaverðlaun 2019

Besta umfjöllun

Verðlaunin hlutu þau Alma Mjöll Ólafsdóttir, Jóhann Páll Jóhannsson, Margrét Marteinsdóttir, og Steindór Grétar Jónsson, Stundinni, fyrir umfjöllun um hamfarahlýnun. Rök dómnefndar voru eftirfarandi: „Í yfirgripsmikilli og vandaðri umfjöllun fjalla blaðamenn Stundarinnar um fyrirséðar afleiðingar og birtingarmyndir loftslagsvár hér á landi og víðar, aðgerðir stjórnvalda og viðleitni einstaklinga til þess að vega upp á móti skaðlegum umhverfisáhrifum sem stafað geta af daglegu lífi fólks.“

Viðtal ársins

Verðlaunin hlutu þau Erla Björg Gunnarsdóttir, Nadine Guðrún Yaghi, og Jóhann K. Jóhannsson, Kompási, Fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, fyrir viðtal og umfjöllun um barn sem var lokað inni á heimili með geðveikri móður. Rök dómnefndar voru eftirfarandi: „Vandað viðtal við 17 ára stúlku, Margréti Lillý Einarsdóttur, sem lýsir því hvernig samfélagið brást henni þegar hún á grunnskólaaldri ólst upp ein hjá móður sem átti við bæði geðrænan vanda og fíknivanda að stríða. Viðtalið vakti verðskuldaða athygli og var fylgt eftir með fjölda frétta um stöðu barna í viðkvæmri stöðu, starfsemi barnaverndarnefnda og fleiri þætti og leiddi meðal annars til þess að bæjarstjóri Seltjarnarness baðst formlega afsökunar á því hvernig staðið var að málum í tilviki Margrétar Lillýar.“

Rannsóknarblaðamennska

Verðlaunin hlutu þeir Aðalsteinn Kjartansson, Helgi Seljan, Ingi Freyr Vilhjálmsson og Stefán Drengsson, Kveik og Stundinni, fyrir umfjöllun um Samherjamálið. Rök dómnefndar eru eftirfarandi: „Fá mál vöktu meiri athygli í íslensku samfélagi en umfjöllun Kveiks og Stundarinnar í samvinnu við Al Jazeera og Wikileaks um ásakanir á hendur Samherja um mútugreiðslur í tengslum við starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Umfjöllunin byggði staðhæfingum fyrrum starfsmanns Samherja í Namibíu og miklu magni gagna sem einnig voru gerð aðgengileg almenningi á netinu samhliða birtingu frétta af málinu. Umfjöllunin hefur haft mikil áhrif, bæði hér heima og erlendis.“

Blaðamannaverðlaun ársins

Verðlaunin hlaut Arnar Páll Hauksson, Speglinum, RÚV, fyrir umfjöllun um kjaramál.Rök dómnefndar voru eftirfarandi: „Arnar Páll hefur af djúpri þekkingu og áralangri yfirsýn fjallað um kjaramál með afar vönduðum hætti í ótal fréttum og fréttaskýringum á tímum mikils umróts á vinnumarkaði. Hann hefur fjallað ítarlega um hugmyndir og tillögur sem lagðar hafa verið fram í kjaraviðræðum og flytur iðulega fyrstu fréttir af þróun mála.“

Tilnefningar dómnefndar til verðlauna fyrir árið 2019

Besta umfjöllun

Arnhildur Hálfdánardóttir, RÚV. Fyrir þáttaröðina Loftslagsþerapían. Þættirnir eru vandaðir og yfirgripsmiklir þar sem varpað er nýju ljósi á loftslagsvána með því að skoða snertifleti hennar við það mannlega í samfélaginu, siðferði, tilfinningar, sálfræði, trúarbrögð og pólitík. Um er að ræða persónulega og frumlega nálgun að umfjöllun um eitt stærsta verkefni samtímans.

Alma Mjöll Ólafsdóttir, Jóhann Páll Jóhannsson, Margrét Marteinsdóttir, og Steindór Grétar Jónsson, Stundinni. Fyrir umfjöllun um hamfarahlýnun. Í yfirgripsmikilli og vandaðri umfjöllun fjalla blaðamenn Stundarinnar um fyrirséðar afleiðingar og birtingarmyndir loftslagsvár hér á landi og víðar, aðgerðir stjórnvalda og viðleitni einstaklinga til þess að vega upp á móti skaðlegum umhverfisáhrifum sem stafað geta af daglegu lífi fólks.

Magnús Halldórsson og Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum. Fyrir umfjöllun um efnahagsmál. Í fjölmörgum og upplýsandi fréttaskýringum vörpuðu Magnús og Þórður Snær ljósi á þróun efnahagsmála á umbreytingatímum síðasta árs, þegar samdráttur tók við af alllöngu góðæristímabili. Um er að ræða afar vandaða umfjöllun þar sem efniviður frétta úr viðskipta- og efnahagslífi er greindur og settur fram á skilmerkilegan og skiljanlegan hátt.

Viðtal ársins

Orri Páll Ormarsson, Morgunblaðinu. Fyrir viðtal við Sævar Þór Jónsson lögmann. Í viðtalinu er á næman og nærgætinn hátt fjallað um afar viðkvæmt málefni, kynferðisofbeldi sem viðmælandinn varð fyrir á barnsaldri og þau djúpstæðu áhrif sem atburðurinn hafði á líf hans. Viðtalið, sem er lifandi og lipurlega skrifað, fangar athygli lesandans og heldur henni þar til frásögninni er lokið.

Erla Björg Gunnarsdóttir, Nadine Guðrún Yaghi, og Jóhann K. Jóhannsson, Kompási, Fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Fyrir viðtal og umfjöllun um barn sem var lokað inni á heimili með geðveikri móður. Vandað viðtal við 17 ára stúlku, Margréti Lillý Einarsdóttur, sem lýsir því hvernig samfélagið brást henni þegar hún á grunnskólaaldri ólst upp ein hjá móður sem átti við bæði geðrænan vanda og fíknivanda að stríða. Viðtalið vakti verðskuldaða athygli og var fylgt eftir með fjölda frétta um stöðu barna í viðkvæmri stöðu, starfsemi barnaverndarnefnda og fleiri þætti og leiddi meðal annars til þess að bæjarstjóri Seltjarnarness baðst formlega afsökunar á því hvernig staðið var að málum í tilviki Margrétar Lillýar.

Ari Brynjólfsson, Fréttablaðinu. Fyrir viðtal við fjóra erlenda vagnstjóra. Í lifandi og skemmtilegu viðtali sem fangar og heldur athygli lesenda ræðir Ari við fjóra erlenda vagnstjóra hjá Strætó sem lýsa lífi sínu, starfi og samskiptum við farþega. Viðtalið sýnir manneskjur á bak við störf og þjóðerni. Viðtalið sem vekur lesendur meðal annars til umhugsunar um hvernig hér er komið fram við starfsfólk sem er af erlendu bergi brotið. Tæknileg útfærsla á viðtali við fjóra einstaklinga í senn er afskaplega vel úr hendi leyst.

Rannsóknarblaðamennska

Aðalsteinn Kjartansson og Stefán Drengsson, Kveik. Fyrir umfjöllun um Procar-málið. Afhjúpun Kveiks um að bílaleigan Procar hefði stundað svindl á neytendum með því að færa niður kílómetrastöðu bílaleigubíla áður en þeir voru seldir vakti hörð viðbrögð og sýndi fram á alvarlega brotalöm í viðskiptum með notaða bílaleigubíla. Umfjöllunin byggði á heimildum og öflugri rannsóknarvinnu sem skilaði sér í afhjúpun sem hefur haft afdrifarík áhrif á viðskipti með notaða bíla.

Aðalsteinn Kjartansson, Helgi Seljan, Ingi Freyr Vilhjálmsson og Stefán Drengsson, Kveik og Stundinni. Fyrir umfjöllun um Samherjamálið. Fá mál vöktu meiri athygli í íslensku samfélagi en umfjöllun Kveiks og Stundarinnar í samvinnu við Al Jazeera og Wikileaks um ásakanir á hendur Samherja um mútugreiðslur í tengslum við starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Umfjöllunin byggði staðhæfingum fyrrum starfsmanns Samherja í Namibíu og miklu magni gagna sem einnig voru gerð aðgengileg almenningi á netinu samhliða birtingu frétta af málinu. Umfjöllunin hefur haft mikil áhrif, bæði hér heima og erlendis.

Stefán Einar Stefánsson, Morgunblaðinu. Fyrir bókina „Wow, ris og fall flugfélags“ ásamt fréttum og fréttaskýringum um sama mál í ViðskiptaMogganum. Gjaldþrot Wow air er tvímælalaust eitt stærsta fréttamál síðasta árs og afleiðingar þess gríðarlegar bæði á einstaklinga og efnahagslíf. Í ítarlegum fréttum, fréttaskýringum og bók um málið hefur Stefán Einar dregið fram í margvíslega fleti tengda starfsemi Wow, sögu flugfélagsins og eftirmála gjaldþrotsins. Fréttirnar er vandaðar og ítarlegar, bókin lipurlega skrifuð og upplýsandi um ris og falls flugfélags, sem hafði mikil áhrif á íslenskt þjóðlíf.

Blaðamannaverðlaun ársins

Guðrún Hálfdánardóttir, mbl.is. Fyrir greinaflokkinn Skóli fyrir alla. Um er að ræða yfirgripsmikla röð frétta og fréttaskýringa um stöðu skólamála á Íslandi út frá því sjónarhorni að menntun sé mannréttindi sem allir eigi að njóta. Umfjöllunin varpar ljósi á stöðu mála og veltir upp flötum þar sem úrbóta er þörf, svo sem varðandi skýrleika námskrár og samræmis í vinnuaðferðum á milli, og jafnvel innan einstakra skóla.

Arnar Páll Hauksson, Speglinum, RÚV. Fyrir umfjöllun um kjaramál. Arnar Páll hefur af djúpri þekkingu og áralangri yfirsýn fjallað um kjaramál með afar vönduðum hætti í ótal fréttum og fréttaskýringum á tímum mikils umróts á vinnumarkaði. Hann hefur fjallað ítarlega um hugmyndir og tillögur sem lagðar hafa verið fram í kjaraviðræðum og flytur iðulega fyrstu fréttir af þróun mála.

Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Stundinni. Fyrir vönduð viðtöl og umfjallanir. Í fjölda frétta, fréttaskýringa og viðtala hefur Hólmfríður Helga sýnt afar vönduð vinnubrögð í umfjöllun um margvísleg viðkvæm málefni og brotalamir í íslensku samfélagi. Má þar nefna vandaða umfjöllun um stöðu kvenna frá löndum utan EES sem hafa fest í ofbeldissamböndum hér á landi og upplýsandi viðtöl og umfjöllun um fjölskyldur sem fundið hafa skjól á Íslandi eftir erfiðleika í heimalöndum sínum. Hólmfríður hefur lagt mikið af mörkum við að lyfta röddum og greina frá reynslu fólks sem ekki á jafngreiðan aðgang að fjölmiðlum og margir aðrir.

Blaðamannaverðlaun 2018

Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna 2018

Viðtal ársins

Jóhann Páll Jóhannsson, Stundinni. Fyrir viðtal við Báru Halldórsdóttur sem steig fram í kjölfar þess að hafa tekið upp hatursorðræðu þingmanna á Klausturbar og sent fjölmiðlum til úrvinnslu.

Milla Ósk Magnúsdóttir, RÚV. Fyrir viðtal við hjónin Stefán Þór Gunnarsson og Elísu Rós Jónsdóttur sem misstu son sinn vegna ofneyslu fíkniefna. Hjónin lýsa eigin úrræðaleysi og áfallinu sem fylgdi andlátinu.

Ragnheiður Linnet, Mannlífi. Fyrir viðtal við Merhawit Baryamikael Tesfaslase, ekkju plastbarkaþegans, Andemariam Beyene, um aðdraganda ígræðslunnar og hvernig líf fjölskyldunnar umturnaðist eftir þá örlagaríku aðgerð.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Freyr Rögnvaldsson og Steindór Grétar Jónsson, Stundinni. Fyrir umfjöllunina Landið sem auðmenn eiga sem veitir ríka yfirsýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu innlendra og erlendra auðmanna og innsýn í hverjir þeir eru.

Helgi Seljan, RÚV. Fyrir fréttaskýringu um stöðu erlendra verkamanna og sjálfboðaliða sem hingað koma, búa við bágar aðstæður og eru sviknir um laun.

Ingólfur Bjarni Sigfússon, RÚV. Fyrir fréttaskýringu um vopnaflutninga Air Atlanta og vanhöld Samgöngustofu á því að framfylgja sáttmálum um vopnaflutninga sem Ísland hefur fullgilt.

Umfjöllun ársins

Aðalheiður Ámundadóttir, Fréttablaðinu. Fyrir umfjöllun með fréttum og fréttaskýringum um forsögu, endurupptöku og eftirmála Guðmundar- og Geirfinnsmála.

Guðrún Hálfdánardóttir, Morgunblaðinu/Mbl.is. Fyrir greinaflokkinn Gætt að geðheilbrigði um úrræði og úrræðaleysi þegar kemur að því að hjálpa fólki sem glímir við geðsjúkdóma og/eða fíkn.

Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Stundinni. Fyrir umfjöllun með frásögnum átta kvenna sem opinbera bitleysi nálgunarbanns sem úrræðis í heimilisofbeldismálum.

Blaðamannaverðlaun ársins

Sigríður Halldórsdóttir, RÚV. Fyrir umfjöllun um óábyrga notkun plasts, þar sem sýnt er með sláandi hætti hvernig það mengar umhverfið, neysluvatn okkar og matvæli.

Viktoría Hermannsdóttir og Þórhildur Ólafsdóttir, RÚV. Fyrir útvarpsþáttaröðina Kverkatak þar sem lýst er birtingarmyndum heimilisofbeldis frá sjónarhorni þolenda, aðstandenda þeirra og sérfræðinga.

Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum. Fyrir bókina Kaupthinking sem dregur fram skýra mynd af hugarfari og ólöglegum fjármálagjörningum innan Kaupþings í aðdraganda bankahrunsins og afleiðingum þeirra.

Vinningshafar og rökstuðningur dómnefndar

Viðtal ársins 2018: Ragnheiður Linnet, Mannlífi, hlýtur verðlaunin fyrir viðtal sitt við Merhawit Baryamikael Tesfaslase Hún er ekkja plastbarkaþegans Andemariams Beyene sem var fyrsti maðurinn sem gervibarki var græddur í árið 2011. Í viðtalinu kynnist lesandinn harmleik fjölskyldunnar. Merhawit lýsir aðdraganda aðgerðarinnar og því þegar hún missti mann sinn í einu stærsta svikamáli sem upp hefur komið í læknavísindum áratugum saman. Málið tengist Íslandi með beinum hætti vegna þess að Andemariam var búsettur hér þegar hann veiktist og því sjúklingur íslenskra lækna.

Merhawit greinir frá því hvernig hún stóð upp réttindalaus með þrjú ung börn eftir andlát Andemariams árið 2014.

Viðtalið er vel skrifað og hjartnæmt. Auk þess að greina frá örlögum Merhawit og barnanna veitir það góða innsýn í málið og það sem aflaga fór bæði vísindalega og siðfræðilega.

Rannsóknarblaðamennska ársins 2018: Verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins 2018 hljóta Freyr Rögnvaldsson og Steindór Grétar Jónsson, Stundinni, fyrir umfjöllun sína, Landið sem auðmenn eiga.

Í umfjölluninni birtist eignarhald auðfólks á jörðum á Íslandskorti sem nær yfir heila opnu og veitir skýra yfirsýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu innlendra og erlendra auðmanna. Sumir þeirra hafa safnað að sér fjölda jarða og jafnvel keypt upp jarðir á ákveðnum stöðum á landinu. Þá er eignarhald fjölda jarða í félögum sem stundum hvílir leynd yfir.

Í umfjölluninni eru viðtöl við nokkra þeirra sem hvað umsvifamestir hafa verið í jarðakaupum og veita viðtölin innsýn í margbreytilegar ástæður fólks fyrir því að vilja eignast jarðir á Íslandi.

Framlag þeirra Freys og Steindórs veitir mikilvæga yfirsýn yfir umdeilt mál sem hefur verið mikið til umræðu í samfélaginu.

Umfjöllun ársins 2018: Verðlaun fyrir umfjöllun ársins hlýtur Aðalheiður Ámundadóttir, Fréttablaðinu, fyrir upplýsandi og greinargóð skrif um Guðmundar- og Geirfinnsmál.

Í umfjöllun sinni um endurupptöku og um leið forsögu Guðmundar- og Geirfinnsmála tekst Aðalheiði að fanga kjarna atburða hverju sinni og setja í samhengi.

Auk upplýsandi frétta af gangi dómsmálsins varpaði Aðalheiður í fréttaskýringum ljósi á sögu mannshvarfanna tveggja 1974, rannsókn þeirra á sínum tíma og aðdraganda þess að málin fengust endurupptekin á síðasta ári. Þá fylgdi hún málinu vel eftir þegar Hæstiréttur hafði fellt sinn dóm með umfjöllun um möguleg eftirmál og möguleikanum á því að mannshvörfin upplýsist á endanum.

Skrif Aðalheiðar einkennast af djúpri þekkingu á flókinni og langri sögu sem hún skilar lesendum á skýran og aðgengilegan máta.

Blaðamannaverðlaun ársins 2018: Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum, hlýtur Blaðamannaverðlaun ársins 2018 fyrir heildstæða greiningu á hugarfari og ólöglegum fjármálagjörningum í bókinni Kaupthinking – Bankinn sem átti sig sjálfur.

Umfjöllun Þórðar Snæs dregur upp skýra mynd af ósæmilegu háttarlagi þeirra lykilbankamanna sem leiddu Kaupþing frá einkavæðingu að falli árið 2008. Umfjöllunin er afrakstur áralangrar rannsóknar Þórðar á málinu og víðtækrar heimildavinnu úr bæði opinberum og óopinberum gögnum sem hann komst yfir. Vinna hans á sér fáar hliðstæður.

Bókin sýnir hvernig gera má yfirgripsmikla rannsóknarvinnu til margra ára bæði auðlæsilega og skiljanlega. Hún er áþreifanleg heimild um það traust sem blaðamaður getur áunnið sér og þá þekkingu sem myndast þegar hann helgar sig málefni.

Blaðamannaverðlaun 2017

Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna 2017

Viðtal ársins

Jóhann Páll Jóhannsson, Stundinni

Fyrir áhrifamikið viðtal við Sigurlaugu Hreinsdóttur, móður Birnu Brjánsdóttur, þar sem hún segir frá lífshlaupi dóttur sinnar, missinum, sorginni og viðbrögðum samfélagsins.

Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu

Fyrir einlægt viðtal við Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur þar sem hún lýsir aðkomu og eftirköstum þess að eiginmaður hennar, Sigursteinn Gunnarsson, svipti sig lífi árið 1997.

Viktoría Hermannsdóttir, RÚV

Fyrir viðtal við Árna Jón Árnason í þættinum Á ég bróður á Íslandi? Einstök og falleg innsýn í líf manns þegar hann fær þær fréttir að hann eigi hálfbróður og hittir í fyrsta sinn.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Alma Ómarsdóttir, RÚV.

Fyrir upplýsandi og heildstæða umfjöllun um hverjir hlutu uppreist æru, hverjir væru meðmælendur þeirra og áhrif uppreistarinnar á brotaþola.

Hörður Ægisson, Fréttablaðinu.

Fyrir greinargóða umfjöllun um viðskipti með hlutafé í Arion banka, ekki síst áhrif kaupa þriggja vogunarsjóða í bankanum.

Ingi Freyr Vilhjálmsson, Jóhann Páll Jóhannsson og Jóhannes Kr. Kristjánsson, Stundinni.

Fyrir afhjúpandi umfjöllun um viðskipti Bjarna Benediktssonar og fjölskyldu hans og náin tengsl við Glitni í aðdraganda bankahruns.

Umfjöllun ársins

Jóhann Bjarni Kolbeinsson, RÚV

Fyrir greinargóða umfjöllun um átakanlegar aðstæður þeirra barna sem bjuggu á Kópavogshælinu á árunum 1952-1993, vanrækslu þeirra og ofbeldi sem þau voru beitt.

Kjartan Hreinn Njálsson, Stöð 2/365

Fyrir nýstárlega umfjöllun um CRISPR/Cas9-erfðatæknina og hvernig íslenskir vísindamenn beita henni til að þróa ný lyf og hvaða siðferðilegar spurningar tæknin vekur.

Sunna Ósk Logadóttir, Morgunblaðinu.

Fyrir að reifa skilmerkilega hvernig raforkuþurrð til náinnar framtíðar kallar á ákvarðanir um hvort draga þurfi úr notkun hennar eða virkja meira og ólík sjónarmið þar um.

Blaðamannaverðlaun

Magnús Halldórsson, Þórður Snær Júlíusson og Þórunn Elísabet Bogadóttir, Kjarnanum.

Fyrir greinargóða umfjöllun um tillögur dómsmálaráðherra til Alþingis um skipan í stöður dómara við hið nýja dómsstig Landsrétt.

Ritstjórn, Stundinni.

Fyrir ítarlega umfjöllun um uppreist æru kynferðisbrotamanna, áhrif þess á fórnarlömb mannanna og tregðu stjórnvalda til upplýsingagjafar.

Sigríður Hagalín, RÚV.

Fyrir upplýsandi umfjöllun um konur sem fengu mótmælendur fyrir utan heimili sín í kjölfar hrunsins og mismunandi viðhorf mótmælenda þegar þeir litu til baka.

Vinningshafar og rökstuðningur dómnefndar

Viktoría Hermannsdóttir, RÚV, fyrir viðtal við Árna Jón Árnason í þættinum Á ég bróður á Íslandi?

Viðtalsþáttur Viktoríu er unninn af fagmennsku og góðri tilfinningu fyrir efniviðnum. Í viðtalinu eru hlustendur teknir með í spennandi ferð sem hefst með leit Bandaríkjamannsins David Balsam að bróður sínum hér á landi. Bróðirinn finnst og heitir Árni Jón Árnason.

Í áhrifamiklu viðtali nær Viktoría að draga fram hægláta persónu Árna, sem ekki hefur krafist þess að taka mikið pláss í lífinu. Sambandi Árna við móður sína og systkini hér á á landi er vel lýst, sem og áhrifum þess að alast upp sem ástandsbarn. Um þann hluta hernámsins á Íslandi hefur ekki verið mikið fjallað og er viðtalið frábær viðbót við hina vönduðu þáttaröð, Ástandsbörn, sem Viktoría gerði einnig á síðasta ári.

Alma Ómarsdóttir, RÚV, fyrir rannsóknarblaðamennsku í umfjöllun um uppreist æru

Umfjöllun Ölmu um uppreist æru var heildstæð, þar sem allar hliðar málsins voru kannaðar. Rætt var við fulltrúa aðila sem sótt hafði um uppreist æru, konur sem brotið hafði verið gegn og aðstandendur þeirra og ferli umsóknar útskýrt.

Í samskiptum sínum við framkvæmdavaldið, sem ber ábyrgð á ferlinu, kom Alma hins vegar að lokuðum dyrum, þar sem neitað var að veita upplýsingar um hverjir hefðu fengið samþykktar umsóknir og hverjir veitt hefðu meðmæli með slíkum umsóknum. Ölmu tókst, meðal annars með kæru til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál, að tryggja að öll gögn kæmust upp á yfirborðið og dró þannig fram nýjar upplýsingar sem skiptu verulegu máli fyrir almenning.

Sunna Ósk Logadóttir, Morgunblaðinu, fyrir umfjöllun ársins með greinarflokknum Mátturinn eða dýrðin

Sunna varpaði skýru ljósi á þá stöðu sem uppi er á raforkumarkaði hér á landi. Í greinaflokknum Mátturinn eða dýrðin sést hvernig sífellt fleiri togast á um náttúruauðlindirnar sem eru af skornum skammti. Bent var á áhrif breyttra neysluvenja landsmanna með rafbílavæðingu og að eftirspurn fyrirtækja eftir raforku væri nú meiri en hægt er að afgreiða.

Um leið og þróun þessarar umræðu kom vel fram var bent á hvernig núverandi staða kallar á aðgerðir til að auka orkuframboð eða draga úr notkuninni. Sunna ræddi við tugi manna um stöðuna: íbúa, náttúruverndarsinna, virkjanaaðila, forsvarsmenn stofnana og aðra sem hafa hagsmuni og skoðanir á málinu. Málefnið er mikilvægt, framsetningin skýr og greinargóð, byggð á heimildum sem sóttar voru víða.

Ritstjórn Stundarinnar, Blaðamannaverðlaun ársins fyrir umfjöllun um uppreist æru Umfjöllun Stundarinnar um uppreist æru var vönduð, yfirgripsmikil og heildstæð. Samhliða ítarlegum fréttaskýringum birtust í upphafi umfjöllunarinnar áhrifarík viðtöl Áslaugar Karenar Jóhannsdóttur við fórnarlömb Róberts Downey sem sýndu mikla næmni fyrir umfjöllunarefninu.

Stundin lagði af mörkum mikla frumkvæðisvinnu í þessu máli og greindi fyrst miðla frá því að annar kynferðisbrotamaður, Hjalti Sigurjón Hauksson, hefði fengið uppreist æru samtímis Róbert og að til þess hefði Hjalti hlotið meðmæli frá föður þáverandi forsætisráðherra. Sú uppljóstrun Stundarinnar átti eftir að draga verulegan dilk á eftir sér sem endaði með stjórnarslitum og kosningum.

Blaðamannaverðlaun 2016

Tilnefningar dómnefndar

Viðtal ársins

Auður Ösp Guðmundsdóttir, DV.

Fyrir viðtal við Margréti Fenton um örlög dóttur hennar, Söndru Sigrúnar, sem afplánar nú 37 ára fangelsi fyrir vopnuð rán í Bandaríkjunum.

Helgi Seljan, Kastljósi RÚV.

Fyrir viðtal við hjónin Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur og Karl Olgeirsson um barnsmissi sem þau urðu fyrir vegna mistaka í fæðingu á Landspítalanum.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Stundinni.

Fyrir viðtal við Berglindi Ósk Guðmundsdóttur sem segir sögu systur sinnar, Kristínar Gerðar, sem svipti sig lífi eftir áralanga baráttu við eiturlyfjafíkn og afleiðingar misnotkunar.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Hörður Ægisson, DV.

Fyrir umfjöllun um milljarða bónusgreiðslur slitastjórna Kaupþings og ALMC sem greiddar voru í kjölfar nauðasamninga og samninga um stöðugleikaframlag.

Tryggvi Aðalbjörnsson, RÚV.

Fyrir umfjöllun um brot Brúneggja ehf. gegn dýravernd og svik við neytendur og máttleysi eftirlitsstofnana til að takast á við brotin.

Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum.

Fyrir fréttaskýringar um skiptingu auðs á Íslandi og misskiptingu gæða þrátt fyrir lítinn launamun í alþjóðlegum samanburði .

Umfjöllun ársins

Guðrún Hálfdánardóttir, Mbl.is

Fyrir fréttaskýringar um Sýrland, vaxandi þjóðernishyggju í tengslum við flóttamenn þaðan og lítinn áhuga ráðamanna í Evrópu fyrir að taka á móti þeim.

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Stöð 2

Fyrir þáttaröðina Leitin að upprunanum sem segir sögu þriggja ættleiddra kvenna og árangursríka eftirgrennslan landa á milli um rætur þeirra.

Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu

Fyrir fréttaröð um náttúruperluna Mývatn, þar sem mengun er margfalt yfir viðmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, líkast til af mannavöldum.

Blaðamannaverðlaun ársins

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, RÚV.

Fyrir skilmerkilega umfjöllun um íslensk stjórnmál og vandaðar fréttaskýringar af störfum Alþingis, ekki síst á tímum pólitísks óróa.

Jóhannes Kr. Kristjánsson, Reykjavík Media.

Fyrir ítarlegar rannsóknir á þeim hluta Panamaskjalanna sem vörðuðu íslenska hagsmuni og umfjöllun, í samstarfi við aðra miðla, um mikil viðskipti í skattaskjólum.

Ragnar Axelsson og Orri Páll Ormarsson, Morgunblaðinu.

Fyrir áhrifamikla umfjöllun um áhrif loftslagsbreytinga á Norðurslóðum og sérstaklega hvernig þær breyta lífinu á túndrum Síberíu.

Vinningshafar og rök dómnefndar

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Tryggvi Aðalbjörnsson, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Jóhannes Kr. Kristjánsson fengu Blaðamannaverðlaun BÍ fyrir árið 2016 hvert í einum þeirra fjögurra flokka sem verðlaunin eru veitt í.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Stundinni, fékk verðlaun í flokknum Viðtal ársins 2016 fyrir viðtalið Engillinn sem villtist af leið. Í rökstuðningi dómnefndar segir:

„Viðmælandinn, Berglind Ósk Guðmundsdóttur, rekur örlög systur sinnar, Kristínar Gerðar, sem svipti sig lífi eftir langa og harða baráttu við eiturlyfjafíkn og geðsjúkdóma. Í kjölfar misnotkunar í æsku leiddist Kristín Gerður út í vændi og árum saman glímdi hún við afleiðingar þess; yfirþyrmandi angist, vonleysi og hræðslu.

Ingibjörg Dögg nálgast vandmeðfarinn efnivið af nærgætni og fagmennsku. Hún nær góðu sambandi við viðmælanda sinn og dýpkar frásögnina með heimildavinnu. Þannig styðst Ingibjörg Dögg meðal annars við dagbókarfærslur hinnar látnu systur og nafnlaus viðtöl sem Kristín Gerður veitti í lifanda lífi.

Engillinn sem villtist af leið er áminning um hversu erfitt það er að komast út úr svo erfiðum aðstæðum, hve litla aðstoð er að fá og hvernig kerfið brást Kristínu Gerði á ögurstundu.“

Tryggvi Aðalbjörnsson, RÚV, fékk verðlaunin í flokknum Rannsóknarblaðamennska ársins 2016 fyrir umfjöllun sína um Brúnegg. Í rökstuðningi dómnefndar segir:

„Tryggvi fletti ofan af einu stærsta neytenda- og dýravelferðarmáli undanfarinna ára með umfjöllun sinni um illa meðferð á varphænsnum hjá Brúneggjum. Mánuðum saman safnaði Tryggvi miklum upplýsingum frá Matvælastofnun sem sýndu marg ítrekuð brot Brúneggja á lögum um velferð dýra og reglugerð um velferð alifugla. Einnig sýndu gögnin hvernig neytendur hafa verið blekktir árum saman með merkingum Brúneggja um vistvæna framleiðslu, þrátt fyrir að hafa aldrei uppfyllt reglur um slíkt. Af þessu vissi Matvælastofnun, en upplýsti ekki.

Eftirlitsstofnanir eru mikilvægar stofnanir í nútímasamfélagi en til þess að þær virki sem skyldi þurfa þær að hafa bit þegar á þarf að halda. Það er hlutverk fjölmiðla að upplýsa almenning um brotalamir fyrirtækja og blekkingar. Það er ekki síður mikilvægt að fjölmiðlar upplýsi um máttleysi eftirlitsstofnana þegar að þær bregðast svo hægt sé að krefjast úrbóta.“

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, Stöð 2, fékk verðlaunin í flokknum Umfjöllun ársins 2016 fyrir þáttaröðina Leitin að upprunanum. Í rökstuðningi dómnefndar segir:

„Sigrún uppfyllti ósk þriggja ættleiddra kvenna um að hitta líffræðilegar mæður sínar. Um leið gaf hún landsmönnum einstakt tækifæri til að upplifa tilfinningaríka endurfundi eftir áratuga aðskilnað.

Það sýnir metnað að ráðast í leitina og elju að árangur náðist, enda margra mánaða undirbúningur að baki og vinna sem margir hefðu talið óvinnandi verk. Vandað var til þáttanna og útsjónarsemi sýnd í rannsókn sem náði til ólíkra landa, þar sem fátækrahverfi Srí Lanka og fjallaþorp í Tyrklandi komu við sögu. Upplifun kvennanna var reifuð af virðingu og náðust myndir af einstökum augnablikum í lífi þeirra.

Leit Sigrúnar Óskar að uppruna kvennanna sýnir að blaðamenn geta af litlum efnum áorkað miklu. Verkefnið á sér ekki hliðstæðu hér á landi og er Leitin að upprunanum besta umfjöllun ársins.“

Jóhannes Kr. Kristjánsson, Reykjavík media, fékk verðlaunin í flokknum Blaðamannaverðlaun ársins 2016 fyrir ítarlega rannsókn á Panama-skjölunum. Í rökstuðningi dómnefndar segir:

„Birting Panama-skjalanna á síðasta ári olli gífurlegu umróti hér á landi. Hér urðu ein mestu mótmæli sem um getur, forsætis¬ráðherrann varð að segja af sér, efnt var til þingkosninga fyrr en áætlað var og ný stjórn tók við völdum.

Jóhannes vann einn í marga mánuði í samvinnu við erlenda rann-sóknarblaðamenn að rannsókn á Panama-skjölunum sem margir helstu fjölmiðlar heims birtu fréttir upp úr á sama tíma. Við úrvinnslu fréttanna naut hann samvinnu við sænska sjónvarpið, RÚV, Kastljós, Stundina, Kjarnann og Fréttatímann, sem birtu fjölmargar fréttir byggðar á Panama-skjölunum og frumvinnu Jóhannesar. Auk þess fékk hann Aðalsteinn Kjartansson til liðs við sig stuttu fyrir Kastljós-þáttinn fræga. Allt þetta byggði á vandaðri blaðamennsku, samvinnu margra fjölmiðla og fyrst og fremst mikilli undirbúningsvinnu.

Jóhannes hefur um áraraðir lagt stund á rannsóknarblaðamennsku, sótt fjölmargar ráðstefnur og fundi um efnið og byggt upp tengslanet sem leiddi til þessara frétta.“

Einnig voru afhent verðlaun fyrir Myndir ársins í ýmsum flokkum, en verðlaun fyrir Mynd ársins 2016 fékk Heiða Helgadóttir.

Blaðamannaverðlaun 2015

Tilnefningar dómnefndar fyrir 2015

Viðtal ársins 2015

Helgi Bjarnason, Morgunblaðinu.

Fyrir viðtal við Þröst Leó Gunnarsson um sjóslysið úti af Aðalvík í júlí í fyrrasumar. Þresti Leó tókst fyrir snarræði að bjarga tveimur félögum sínum en sá þriðji fórst. Björgunartæki brugðust gersamlega og fær Helgi einstæðar lýsingar Þrastar Leó á hugarástandi þremenninganna á meðan þeir biðu björgunar.

Reynir Traustason, Stundinni.

Fyrir viðtal við Ástu Kristínu Andrésdóttur hjúkrunarfræðing sem sökuð var um manndráp af gáleysi. Reynir gerir lífshlaupi Ástu Kristínar góð skil og fær viðmælanda til að tala mjög opinskátt um hvernig þessi atburður hefur markað líf hennar, hvernig hún hefur barist við kvíða og reynt að viðhalda lífsviljanum.

Snærós Sindradóttir, Fréttablaðinu.

Fyrir viðtal við Einar Zeppelin Hildarson, ungan mann, sem á að baki afar erfiða lífsreynslu. Einar segir á einlægan hátt frá örlagadeginum þegar mamma hans varð systur hans að bana en sjálfur slapp hann slasaður frá hildarleiknum. Snærós segir áhrifamikla sögu manns og dregur fram mikla þrautseigju, góða mannkosti og kærleika.

Umfjöllun ársins 2015

Gísli Einarsson, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Karl Sigtryggsson og Ragnar Santos, fréttastofu RÚV.

Fyrir umfjöllun um flóttamannavandann sem geisar í Evrópu. Með innlendu sjónarhorni á björgunarstörf áhafnar Týs á Miðjarðarhafi og viðtölum við fórnarlömb á vergangi í Ungverjalandi og Líbanon fengu landsmenn mikilsverða innsýn inn í erfiða ferð flóttamanna í leit að öryggi.

Helgi Seljan, Kastljós RÚV.

Fyrir umfjöllun um nauðganir, áreitni og ofbeldi gagnvart þroskahömluðum konum. Ljóstrað var upp um sinnuleysi yfirvalda sem héldu ekki hlífiskildi yfir konunum, settu ekki reglur um umönnun þeirra og hunsuðu kvartanir. Af virðingu og með áhrifaríkum hætti var saga kvennanna sögð og sjónarmiði þeirra komið á framfæri.

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir, Fréttablaðinu.

Fyrir ítarlega umfjöllun um mansal þar sem fjallað var um umfang og einkenni mansals á Íslandi og bresti í aðgerðaráætlun stjórnvalda. Fréttaskýringaröð þeirra varpaði ljósi á vaxandi mansalsvanda hér á landi þar sem einstaklingar eru misnotaðir í kynferðislegum tilgangi, til nauðungarvinnu eða í glæpastarfsemi.

Blaðamannaverðlaun ársins 2015

Hörður Ægisson, DV.

Fyrir skýra og greinagóða umfjöllun um slitabú föllnu bankana, vogunarsjóðina sem þá keyptu sem og útgöngusamninga þeirra við íslensk stjórnvöld. Hörður hefur upplýst stöðu mála af djúpri þekkingu og nákvæmni í máli sem hefur rík áhrif á þjóðarbúið.

Ingibjörg Kjartansdóttir, Stundinni.

Fyrir fjölbreytta og mikilvæga umfjöllun um kynbundið ofbeldi. Í fjölmörgum greinum gaf Ingibjörg þolendum kynbundins ofbeldis og kynferðisbrota vettvang að tjá sig um sína upplifun af brotunum, upplýsti um hve víða í samfélaginu þessi brot er að finna og hversu erfitt er fyrir fórnarlömb að leita réttlætis vegna þeirra

Sunna Ósk Logadóttir, Morgunblaðið/mbl.is.

Fyrir áhrifamikla umfjöllun um heimsókn sína til Líbanon þar sem hún ræddi við sýrlenska flóttamenn og starfsmenn flóttamannabúða til að kynna sér aðstæður þeirra flóttamanna sem veitt hafði verið hæli á Íslandi.

Rannsóknarblaðamennska ársins 2015

Ingi Freyr Vilhjálmsson, Stundinni.

Fyrir afhjúpandi umfjöllun sína um fjárhagsleg tengsl Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra og eignarhaldsfélags hans OG Capital við fyrirtækið Orka Energy. Í ljós komu verulegir hagsmunaárekstrar vegna samstarfssamnings íslenskra og kínverskra stjórnvalda í orkumálum sem Orka Energy var aðili að og ráðherrann ritaði undir.

Kolbeinn Tumi Daðason 365 miðlum.

Fyrir uppljóstrandi umfjöllun um óánægju lögreglumanna með störf lögreglufulltrúa í fíkniefnadeild og alvarlegar ásakanir samstarfsfélaga hans vegna gruns um tengsl hans við fíkniefnaheiminn. Upphaf umfjöllunarinnar var tálbeituaðgerð við Hótel Frón sem fór út um þúfur.

Magnús Halldórsson Kjarnanum.

Fyrir ítarlega umfjöllun um sölu á hlutum Landsbankans í Borgun í lokuðu söluferli og vísbendingar um að hlutur Landsbankans hafi verið seldur á undirverði m.a. í ljósi arðgreiðslna og því hafi ekki verið gætt að hagsmunum eigenda sem er almenningur í landinu.

Vinningshafar og rök dómnefndar

Blaðamannaverðlaunin 2015 hlutu þau Sunna Ósk Logadóttir á Morgunblaðinu, Snærós Sindradóttir á Fréttablaðinu, Magnús Halldórsson á Kjarnanum og þeir Gísli Einarsson, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Karl Sigtryggsson og Ragnar Santos á RÚV. Verðlaunin og rök dómnefndar eru sem hér segir:

Viðtal ársins 2015

Verðlaunin hlaut Snærós Sindradóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, fyrir áhrifaríkt viðtal við Einar Zeppelin Hildarson. Í viðtalinu segir Einar í fyrsta skipti opinberlega frá örlagadegi í lífi fjölskyldunnar, þegar móðir hans svipti litlu systur hans lífi og gerði atlögu að lífi hans. Einar var aðeins fjórtán ára.

Í rökstuðningi dómnefndar segir:

„Snærós dregur fram átakanlegar lýsingar á aðdraganda og eftirköstum voðaverksins en eins og Einar segir í viðtalinu; þá getur ekkert búið mann undir atburð sem þennan.

Þá gerir Snærós baráttunni við kerfið afar góð skil, bæði hvernig ættingjar Einars höfðu, fyrir voðaverkið, reynt að fá Barnaverndarnefnd til að grípa inn í og veita börnunum aðstoð, og síðar hvernig Einari tókst með tímanum að fyrirgefa móður sinni og verða bandamaður hennar í baráttu við geðheilbrigðiskerfið. Þrautseigja Einars og væntumþykja hans í garð móður sinnar er fallegt leiðarstef í eftirminnilegu viðtali.“

Umfjöllun ársins 2015

Verðlaun fyrir umfjöllun ársins hlutu Gísli Einarsson, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Karl Sigtryggsson og Ragnar Santos, fréttastofu RÚV.

Í rökstuðningi dómnefndar segir:

„Sögur af bjargarlausu fólki á flótta náðu athygli landsmanna þegar innlendu fréttamennirnir sögðu þær milliliðalaust af vettvangi. Fréttirnar af flóttamannavandanum voru sagðar af áhuga og innsæi. Þær sýndu mikilvægi þess að festast ekki innan veggja fréttastofa og bíða fregna erlendra miðla. Þeir Ingólfur, Ragnar, Gísli og Karl nýttu tækifærið ytra til fullnustu.

Fréttamennirnir Ingólfur og Ragnar fönguðu persónulegar raunasögur flóttamanna á vergangi í Evrópu og í flóttamannabúðum í Líbanon. Þeir lýstu blendnum tilfinningum þeirra sem og þeirra 55 flóttamannanna sem voru á leið til Íslands. Fréttirnar kveiktu samkennd þeirra sem sáu.

Gísli og Karl náðu einstökum myndum og sögu um borð í Tý þegar áhöfnin hífði á fjórða hundrað flóttamenn um borð úti frá Líbýu. Aldrei áður hafði svo mörgum verið bjargað um borð í íslenskt varðskip og ómetanlegt að hafa íslenska fréttamenn á staðnum.

Niðurstaðan varð ítarleg umfjöllun sögð annars vegar frá sjónarhorni fólksins sem barðist fyrir betri tilveru og hins vegar íslenskrar áhafnar í fádæma aðstæðum.“

Blaðamannaverðlaun ársins 2015

Blaðamannaverðlaun ársins 2015 hlaut Sunna Ósk Logadóttir, Morgunblaðinu fyrir framúrskarandi umfjöllun um heimsókn sína í flóttamannabúðir í Líbanon, þar sem hún ræddi við sýrlenska flóttamenn og starfsmenn flóttamannabúða.

Í rökstuðningi dómnefndar segir:

„Með umfjöllun sinni, bæði í texta, myndum og myndböndum, kemur Sunna til skila skýrri mynd af hlutskipti þeirra sem tekist hefur að flýja stríðsátökin í Sýrlandi og komast yfir landamærin.

Sérstaklega dregur Sunna upp skýra mynd af aðbúnaði og framtíðarhorfum barna á svæðinu sem eiga erfitt með að skilja af hverju yfirgefa þurfti daglega lífið, vinina og heimilið. Þess í stað lifa þau við örbirgð í flóttamannabúðum þar sem börn eru tekin úr skólum til að vinna og ungar stúlkur eru seldar í hjónaband í mikilli örvæntingu foreldranna þar sem þau reyna að framfleyta fjölskyldunni.

Vönduð umfjöllun Sunnu sýndi skýrt úr hvaða umhverfi og aðstæðum Sýrlenskir flóttamenn á Íslandi koma sem er mikilvæg þekking við móttöku flóttamanna.“

Rannsóknarblaðamennska ársins 2015

Verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins 2015 hlaut Magnús Halldórsson, Kjarnanum, fyrir ítarlega umfjöllun um sölu á hlutum Landsbankans í Borgun, máli sem enn sér ekki fyrir endann á. Í fjölmiðlaumfjöllun um Borgunarmálið hefur Magnús verið leiðandi, hann hefur fylgt því vel og skipulega eftir og dregið fram ýmsar hliðar þess.

Í rökstuðningi dómnefndar segir:

„Umfjöllun Magnúsar vegna arðgreiðslna eigenda Borgunar og um sölu Landsbankans á hlut Sparisjóðs Vestmannaeyja leiddi í ljós sterkar vísbendingar um að hagsmunum almennings hefði ekki verið gætt við söluna á Borgun.

Magnús á drjúgan þátt í því með þolinmæði og þrautseigju að koma málinu á þá hillu sem það er nú og undirstrikar með því skýrt aðhaldshlutverk fjölmiðla í málum sem þessum.“

Verðlaun Blaðaljósmyndarafélagsins fyrir Mynd ársins fékk Eyþór Árnason.

Blaðamannaverðlaun 2014

Tilnefningar dómnefndar vegna ársins 2014

Dómnefnd Blaðamannaverðlauna BÍ tilkynnti um tilnefningar sínar til Blaðamannaverðlauna fyrir árið 2014 viku áður en sjálf verðlaunaafhendingin fór fram þann 28. febrúar. Eins og áður eru tilnefningarnar í fjórum flokkum, og þrjár tilnefningar í hverjum flokki. Tilnefningar dómnefndar eru eftirfarandi:

Viðtal ársins

Indíana Hreinsdóttir, DV. Viðtal við Stefán Hilmarsson. Viðtalið er gott dæmi um hvernig hægt er að skrifa áhugavert viðtal sem sýnir þekktan einstakling í nýju og persónulegu ljósi og segja frá ævi hans og erfiðleikum á áreynslulausan hátt.

Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu. Viðtal við Þorstein J. Vilhjálmsson. Viðtalið er einlægt og afar persónulegt og nær Júlía að draga fram persónuna og sögu Þorsteins á afar næman hátt.

Ólöf Skaftadóttir, Fréttablaðinu. Viðtal við tvíburabræðurna Kára og Halldór Auðar- og Svanssyni. Viðtalið er einstaklega hispurslaust um baráttu þeirra bræðra við geðræna sjúkdóma. Þrátt fyrir erfitt umfjöllunarefni nær Ólöf að viðhalda léttleika í gegnum viðtalið en gefur samt ekkert eftir í raunsönnum lýsingum.

Umfjöllun ársins

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, DV. Umfjöllun um Alzheimer og heilabilun. Með hreinskilnum og áhrifaríkum frásögnum fengu lesendur skýra sýn á það hvernig erfiður og algengur sjúkdómur snertir sjúklingana og fjölskyldur þeirra.

Ritstjórn mbl.is. Umfjöllun um stórbrunann í Skeifunni. Ritstjórn mbl.is nýtti sér alla helstu kosti netsins og færði lesendum skjótt, vel og með myndrænum hætti fréttir af bruna í Skeifunni frá ýmsum sjónarhornum og um leið og þær gerðust.

Sigurður Mikael Jónsson. DV. Umfjöllun um neytendamál. Með frumlegri nálgun og myndrænni framsetningu tókst honum að varpa ljósi á ólíkar hliðar daglegrar neyslu sem hefur mikil áhrif á kjör fólks og heilsu.

Blaðamannaverðlaun ársins

Jóhann Páll Jóhannsson og Jón Bjarki Magnússon, DV. Umfjöllun um lekamálið. Jóhann Páll og Jón Bjarki sýndu einstakt þolgæði við að upplýsa allar hliðar lekamálsins svokallaða og fylgdu málinu vel eftir, þrátt fyrir mikið mótlæti og andstöðu ráðherra sem endaði með afsögn hans.

Magnús Halldórsson, Ægir Þór Eysteinsson og Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum. Umfjöllun um sölu Landsbankans á Borgun. Kjarnamenn drógu fram mikilsverðar upplýsingar um kaupin og hvernig kaupendur voru valdir á bak við luktar dyr og settu það fram á auðskiljanlegan hátt fyrir lesendur.

Viktoría Hermannsdóttir, Fréttablaðinu. Umfjöllun um innflytjendur og áhrifarík viðtöl. Fyrir að varpa ljósi á þær hindranir sem innflytjendur verða fyrir á Íslandi þegar þeir vilja öðlast réttindi til að starfa samkvæmt menntun sinni. Einnig birtust á árinu áhrifarík viðtöl Viktoríu við einstaklinga sem hafa þurft að takast á við erfiðleika.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Garðar Örn Úlfarsson Fréttablaðinu og Þorbjörn Þórðarson Stöð 2. Umfjöllun um flugslysið við Akureyri. Garðar Örn og Þorbjörn birtu myndband sem varpaði nýju ljósi á aðdraganda slyssins. Í kjölfarið fylgdu fréttir sem drógu fram í dagsljósið umgengni og viðhorf forsvarsmanna flugfélagsins til sjúkraflutninganna og hvernig yfirvöld hlupu undir bagga með flugfélaginu.

Helgi Seljan, Kastljósi. Umfjöllun um MS og uppruna vöru. Í umfjöllun sinni uppljóstraði Helgi hvernig MS, sem og önnur fyrirtæki, leyna því fyrir almenningi þegar þau blanda erlendri vöru við íslenska. Einnig benti hann á að embættismaður í ráðuneyti landbúnaðar hefur setið beggja vegna borðsins í mörgum málum sem snerta samkeppni og landbúnað.

Hrund Þórsdóttir, Stöð 2. Umfjöllun um lyfjamistök. Hrund kafaði ofan í andlát eldri manns sem lést rúmri viku eftir að honum var gefinn rangur lyfjaskammtur á heilbrigðisstofnun. Hrund leitaði víða fanga í eftirfylgni með málinu, m.a. með fordæmalitlu viðtali við lækni mannsins sem undraðist afstöðu landlæknis en einnig með mjög skýrri almennri umfjöllun um lyfjamistök, viðbrögð við þeim og hvernig hægt er að takmarka slík mistök.

Vinningshafar og rök dómnefndar

Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélagsins voru afhent í Gerðarsafni í Kópavogi 28. febrúar. Verðlaunahafar voru þau Ólöf Skaftadóttir fyrir viðtal ársins, Helgi Seljan fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins, ritstjórn mbl.is fyrir umfjöllun ársins, og þeir Jón Bjarki Magnússon og Jóhann Páll Jóhannsson hlut blaðamannaverðlaun ársins. Mynd ársins tók Sigtryggur Ari Jóhannsson.

Hér á eftir má lesa rökstuðning dómnefndar fyrir verðlaunaveitingunum.

Viðtal ársins 2014

Verðlaunin hlýtur Ólöf Skaftadóttir, Fréttablaðinu fyrir áhrifarík viðtal við tvíburabræðurna Kára og Halldór Auðar- og Svanssyni. Í viðtalinu lýsa bræðurnir reynslu sinni af geðsjúkdómum af mikilli hreinskilni, annars vegar tólf ára baráttu Kára við að lifa við geðklofa og hins vegar geðrofi Halldórs í kjölfar kannabisneyslu. Með þessu viðtalin nær Ólöf að draga fram mikilvægar raddir þeirra bræðra til að draga úr fordómum gegn geðsjúkdómum sem best næst fram með því að tala við þá sem sjálfir hafa lifað með sjúkdómnum. Fordómaleysi Ólafar og virðing gagnvart viðfangsefninu skín í gegn um textann og lýsir það sér ekki síst í léttleikanum sem einkennir viðtalið, en nær jafnframt að lýsa erfiðleikum við að hætta á geðlyfjum, að takast á við breyttar aðstæður sem fylgja sjúkdómnum og breyttri lífssýn þeirra bræðra. Ekki er hvað síst óvenjulegt að lesa jafn hreinskilið viðtal við stjórnmálamann um persónuleg málefni og þetta viðtal er. .

Rannsóknarblaðamennska ársins

Verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins 2014 hlýtur Helgi Seljan. Í umfjöllun Helga Seljan um uppruna vöru og stöðu búvörumála í landinu sýndi hann fram á hvernig sérhagsmunir bænda, MS og innlendra kjötvinnslna eru varðir á kostnað neytenda. Hann gróf upp hvernig MS, sem og aðrir framleiðendur, blanda erlendri búvöru við þá íslensku og selja án upprunamerkinga – svo hún virðist íslensk.

Helgi lét ekki fregnir af írska smjörinu sem blandað var innlendri vöru nægja, heldur gróf dýpra og lengra. Í ljós kom að írska smjörið í vinsælum innlendum mjólkurvörum var ekki einsdæmi.

Helgi rannsakaði málið frá mörgum hliðum og dró fram í dagsljósið að embættismaður landbúnaðarmála hefði setið beggja vegna borðs og tæki ákvarðanir sem túlka megi í hag fyrrum vinnuveitenda og þessara sérhagsmuna.

Umfjöllun Helga sýnir þá veiku stöðu sem neytendur eru í þegar kemur að uppruna vöru, landbúnaðarvörum almennt og eftirliti með innlendum framleiðendum.

Besta umfjöllun ársins 2014

Verðlaun fyrir bestu umfjöllun ársins hlýtur ritstjórn mbl.is. Netið, snjallsímar og samskiptamiðlar hafa breytt fréttamiðlun. Kröfurnar eru að fólk fái fréttirnar eins fljótt og kostur er, helst um leið og þær gerast en án þess þó að það komi niður á gæðum.

Þegar stórbruni varð í Skeifunni síðasta sumar sýndi ritstjórn HYPERLINK "http://mbl.is/" \t "_blank" mbl.is vel hvernig nýta má alla helstu kosti netsins og tækninnar til að færa lesendum skýra mynd af því sem var að gerast með hnitmiðuðum texta, myndum og myndskeiðum frá dróna úr lofti.

Fréttaflutningurinn byrjaði fljótlega eftir að fyrst varð vart við brunann og stóð yfir þar til yfir lauk. Greint var frá brunanum og áhrifum hans frá fjölmörgum sjónarhornum og með góðu samspili blaðamanna og ljósmyndara sem auk þess notuðust við myndir af vettvangi frá almenningi.

Niðurstaðan var heildstæð og ítarleg umfjöllun sem minnti rækilega á hvað netið er öflugur fréttamiðill.

Blaðamannaverðlaun ársins 2014

Blaðamannaverðlaun ársins 2014 hljóta Jóhann Páll Jóhannsson og Jón Bjarki Magnússon.

Einurð þeirra í lekamálinu svokallaða varð til þess að það skaut ekki aðeins upp kollinum um stundarsakir. Þeir fylgdu málinu vel eftir, komu stöðugt fram með nýjar hliðar þess og héldu fréttaflutningnum gangandi af festu.

Umfjöllunin smitaðist yfir í aðra fjölmiðla og umboðsmaður Alþingis tók einn anga málsins upp að eigin frumkvæði. Ráðuneytisskipan landsins var breytt, aðstoðarmaður ráðherra játaði á sig lekann og að lokum varð innanríkisráðherra Hanna Birna Kristjánsdóttir að segja af sér ráðherradómi. Enn teygir lekamálið anga sína út í samfélagið með ýmsum hætti.

Þrátt fyrir harða gagnrýni og ótal tilraunir til þöggunar stóðu blaðamennirnir í ístaðinu. Þolgæði þeirra varð til þess að ljósi var varpað á það sem raunverulega gerðist á bakvið tjöldin. Það minnir á mikilvægi gagnrýninnar blaðamennsku og að trúnaður blaðamanna sé fyrst og síðast við almenning í landinu og engan annan.

Blaðamannaverðlaun 2013

Tilnefningar dómnefndar til Blaðamannaverðlauna 2013 eru eftirfarandi:

Viðtal ársins 2013

Kristjana Guðbrandsdóttir, DV

Fyrir upplýsandi og vel skrifað viðtal við Gunnar Smára Egilsson þar sem hann gefur afar fróðlega innsýn inn í heim fjölmiðla og ákvarðanir sem þar eru teknar auk þess að kryfja sjálfan sig og reynslu sína til mergjar.

Orri Páll Ormarsson, Morgunblaðinu

Fyrir einstakt viðtal við Eyþór Eyjólfsson um ólíka stöðu samkynhneigðra milli heimshluta, þróun tíðarandans og hjartaáfallið sem hann fékk þegar hann sá maka sinn, Junya Nakano, látinn.

Stígur Helgason, Fréttablaðinu

Fyrir áhrifaríkt viðtal við Maríu Rut Kristinsdóttur sem upplifði kynferðisofbeldi sem hún tókst á við með aðstoð menntamálaráðherra. Nú formaður Stúdentaráðs berst hún við ráðherrann á opinberum vígstöðvum.

Rannsóknarblaðamennska ársins 2013

Eva Bjarnadóttir, Fréttablaðið

Fyrir greinargóða og yfirgripsmikla umfjöllun um viðkvæm málefni sem sjaldan er fjallað um, sjálfræðissviptingu og nauðungarvistun geðsjúkra.

Jón Bjarki Magnússon og Jóhann Páll Jóhannsson, DV

Fyrir upplýsandi og athyglisverða umfjöllun um hælisleitendur og fyrir að fylgja því m.a. vel eftir hvort mögulega hafi verið brotið á réttindum einstaklinga í hópi þeirra.

Ægir Þór Eysteinsson, Kjarninn

Fyrir markverða samantekt á rekstri, starfsháttum og lánveitingum Sparisjóðs Keflavíkur og sér í lagi fyrir úttekt á því hvernig stofnfjárbréf sjóðsins gengu kaupum og sölum árin fyrir fall hans.

Umfjöllun ársins 2013

Fréttastofa 365

Fyrir heildstæðan og ítarlegan fréttaflutning af skotárás í Hraunbæ þar sem stuðst var við fjölbreytt form fjölmiðla til að koma öllum hliðum sögunnar til skila.

Ritstjórn Kastljóss

Fyrir áhrifamikla umfjöllun um kynferðisbrot og afleiðingar þeirra með afhjúpun á brotum manns til áratuga. Í kjölfarið kom viðtal við tvo menn sem kærðu kynferðisbrot árið 2005 og ítarleg umfjöllun um útskúfun ungrar konu frá litlu samfélagi eftir að hún kærði mann fyrir nauðgun.

Ritstjórn RÚV

Fyrir umfangsmikla umfjöllun fyrir Alþingiskosningarnar 2013 þar sem tókst að koma sjónarmiðum allra 15 framboða á framfæri og gera baráttumál þeirra aðgengileg almenningi á þann hátt sem mikilvægt er í lýðræðisríki.

Blaðamannaverðlaun ársins vegna 2013

Bergljót Baldursdóttir Fréttastofu Ríkisútvarpsins

Fyrir víðtæka umfjöllun um ýmis vísindi og rannsóknir, ekki síst heilbrigðismál. Með sérhæfingu tekst henni að sýna erfiða stöðu í heilbrigðiskerfi landsmanna í fjárveitingum, húsnæði, tækjabúnaði, starfsmannamálum og vanda sjúklinga. Jafnframt hefur hún sýnt fram á góðan árangur heilbrigðisstarfsmanna við erfiðar aðstæður.

Helgi Seljan Kastljósi Ríkisútvarpsins

Fyrir margháttaða og ítarlega umfjöllun um fjármál, heilbrigðismál og lögreglu- og fangelsismál. Helgi hefur með víðfeðmri gagnaöflun beint kastljósinu að skattamálum stóriðjufyrirtækja, málefnum geðsjúkra, meðal annars fanga, og að kynferðisofbeldi.

Svavar Hávarðsson Fréttablaðinu

Fyrir yfirgripsmikil og vönduð skrif um ólík efni. Má þar nefna umfjöllun um vandamál tengd virkjun háhitasvæða sem fram hafa komið í Hellisheiðarvirkjun og rekstri hennar, síldardauða í Kolgrafafirði þar sem skoðaðar voru ýmsar hliðar á samspili manna og náttúru og um raforkusölu Íslands til Evrópulanda um sæstreng.

Vinningshafar og rökstuðningur dómnefndar:

Viðtal ársins

Viðtal Stígs Helgasonar sem birtist í Fréttablaðinu er áhrifaríkt og segir margbrotna sögu

Maríu á sterkan og beinskeyttan hátt, þar sem hugarfari, togstreitu og tilfinningum Maríu er listilega lýst.

Stígur varpar ljósi á flókið tilfinningasamband fórnarlambs kynferðisofbeldis til gerandans og lýsir vangaveltum hennar um áhrif fortíðarinnar á lífsleið hennar vel – Eins og hvernig ofbeldið leiddi til þess að hún missti áhugann á lögfræði, sem hún vildi læra, þar sem trúin á réttarkerfið hvarf við sýknudóm fósturföðurins. Einnig heilabrota um hvort vantraust hennar á karlmönnum hafi verið ástæða þess að hún kaus að búa með konu.

Stígur sýndi viðmælanda sínum verðskuldaða virðingu án þess að draga neitt undan. Viðtalið er hnitmiðað, áhrifaríkt og varpaði ljósi á óvenjulegar aðstæður í baráttu stúdenta við yfirvöld.

En fyrst og fremst vekur viðtalið von um að hægt sé að styrkjast við raunir lífisins.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Í umfjöllun sinni um hælisleitendur á Íslandi varpa blaðamennirnir, Jón Bjarki Magnússon og Jóhann Páll Jóhannsson, ljósi á aðstæður fólks hér á landi sem fæstir láta sig varða.

Þeir leiða lesendur sína inn í skúmaskotin, gefa röddum hælisleitenda vægi, benda á neikvæð og niðurlægjandi viðhorf, sýna fram á brotalamir í kerfinu og síðast en ekki síst fylgja mörgum þráðum vel eftir.

Með umfjölluninni í heild er vakin verðskulduð athygli á aðbúnaði og aðstæðum hælisleitenda á Íslandi og þá um leið á málaflokki sem hefur vaxið að umfangi í íslensku samfélagi síðustu misserin.

Umfjöllun ársins

Verðlaun fyrir umfjöllun ársins fær ritstjórn Kastljóss fyrir áhrifamikla umfjöllun um kynferðisbrot og afleiðingar þeirra. Kastljós afhjúpaði ítarleg kynferðisbrot Karl Vignis

Þorsteinssonar með játningum hans og afhjúpaði um leið vanmátt samfélagsins til að takast á við brot hans. Umfjöllun Kastljóss um vanmátt samfélagsins gagnvart kynferðisbrotum hélt áfram með áhrifamiklum viðtölum við Hilmar Þorbjörnsson og Eirík Guðmundsson um kærur þeirra fyrir kynferðisbrot á hendur kennara á Ísafirði. Einnig fjallaði Kastljós um mál

Guðnýjar Jónu Kristjánsdóttur sem fluttist frá heimabæ sínum eftir að hluti bæjarbúa studdi dæmdan nauðgara hennar opinberlega. Vönduð umfjöllun Kastljóss sýndi berlega hve erfitt það getur verið að leggja fram kæru vegna kynferðisbrots og standa í kjölfarið keikur gagnvart gagnrýni nærsamfélagsins en áhrifamáttur umfjöllunarinnar sást líka greinilega í verulegri fjölgun kæra í kjölfar hennar.

Blaðamannaverðlaun ársins

Bergljót Baldursdóttir hefur um árabil fjallað um margháttuð vísindastörf og rannsóknir.

Hefur hún farið inná ólík fræðasvið, ekki síst heilbrigðismál og þannig með tíma og fyrirhöfn aflað sér víðtækrar þekkingar. Með því hefur henni tekist að gefa innsýn í flóknar sérgreinar.

Á það bæði við um innlendar sem erlendar rannsóknir.

Bergljót hefur undanfarið leitt heilbrigðismálateymi fréttastofu Ríkisútvarpsins. Ásamt henni skipa það fréttamennirnir Sunna Valgerðardóttir og Valgeir Örn Ragnarsson. Teymið hefur fjallað um heilbrigðismál á landsvísu og dregið fram margháttaðan vanda sem oftar en ekki á rót sína að rekja til sílækkandi fjárframlaga og aðhalds í rekstri. Umfjöllun Fréttastofu

Ríkisútvarpsins sem Bergljót leiddi reis hæst í október þegar hún ræddi við starfsfólk og sjúklinga á þremur lyflækningadeildum Landspítalans. Þessar fréttir drógu í senn fram með skýrum hætti að ekki yrði gengið lengra í aðhaldi og sparnaði.

Blaðamannaverðlaun 2012

Tilnefningar dómnefndar:

Umfjöllun ársins

Egill Ólafsson, mbl.is (Morgunblaðinu), fyrir vandaðan, skjótan og alhliða fréttaflutning af illviðri og snjókomu í september 2012, þar sem frá upphafi var dregin fram og skilgreind yfirvofandi ógn fyrir fólk og búfénað.

Kristjana Guðbrandsdóttir, DV, fyrir viðamikinn og vandaðan greinaflokk um einhverfu, ýmsar birtingarmyndir hennar og vandamál við greiningu, ekki síst hjá stúlkum.

Sunna Valgerðardóttir, Fréttablaðinu, fyrir áhrifamikla, heildstæða og vel unna röð fréttaskýringa um stöðu geðfatlaðra.

Rannsóknarblaðamennska

Andri Ólafsson, Stöð 2, fyrir afhjúpandi fréttir af aðkallandi fjárhagsvanda hjúkrunarheimilisins EIR

Jóhann Bjarni Kolbeinsson, fréttastofu RÚV, fyrir uppljóstrandi og ítarlega umfjöllun um kadmíum í áburði annars vegar og notkun iðnaðarsalts í matvælum hins vegar.

Jóhannes Kr. Kristjánsson, Kastljósi, fyrir að draga fram óbirtar og gagnrýnar skýrslur

Ríkisendurskoðunar um bókhaldskerfi ríkisins og fyrir að varpa, ásamt Helga Seljan ljósi á umdeild atriði varðandi innleiðingu kerfisins.

Viðtal ársins

Anna Brynja Baldursdóttir, Vikunni, fyrir opinskátt viðtal við Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup sem tjáði sig þar með einlægum hætti um bæði persónuleg mál sín og atriði sem varða embættið.

Sigmar Guðmundsson, Kastljósi, fyrir sérstaklega áhrifaríkt og sterkt viðtal við Eirík Inga

Jóhannsson, sjómann sem komst lífs af þegar togarinn Hallgrímur fórst.

Skapti Hallgrímsson, Morgunblaðinu, fyrir sérstaklega vel skrifað og lifandi mannlífsviðtal við eistneska tónlistarmanninn Valmar Valjaots.

Blaðamannaverðlaun ársins

Ingi Freyr Vilhjálmsson, DV, fyrir umfjöllun um fiskveiðar Íslendinga við Afríku og ýmis skrif um viðskipti og uppgjör í kjölfar hrunsins.

Ragnar Axelsson, Morgunblaðinu, fyrir merka umfjöllun og myndir af stórum pollum á

Grænlandsjökli sem voru til marks um óvenju mikla bráðnun Grænlandsjökuls.

Una Sighvatsdóttir, mbl.is (Morgunblaðinu), fyrir greinaflokkinn Váin á vegum, þar sem fjallað var um umferðarslys frá mörgum sjónarmiðum með því að tvinna saman ýmsar fjölmiðlagáttir s.s. prentmiðilinn, netið, gagnvirka grafíska framsetningu og myndskeið.

Verðlaunahafar og rök dómnefndar:

Umfjöllun ársins 2012

Sunna Valgerðardóttir, Fréttablaðinu, fyrir áhrifamikla, heildstæða og vel unna röð fréttaskýringa um stöðu geðsjúkra. Fréttaskýringaflokkur Sunnu tók með yfirgripsmiklum hætti á flóknu og vandasömu vandamáli sem skoðað var frá mörgum hliðum. Í umfjölluninni voru ýmis álitamál dregin fram í dagsljósið sem ekki hafa farið hátt og nýju ljósi varpað á önnur sem urðu tilefni sjálfstæðra frétta, bæði á forsíðu blaðsins og víðar. Jafnvægi var í umfjölluninni, þar sem teflt var saman í hæfilegum hlutföllum lífsreynslusögum geðfatlaðra einstaklinga og sjónarmiðum hinna ólíku fulltrúa stjórn- og heilbrigðiskerfisins auk þess sem staða mála var borin saman við nágrannalönd. Greinarflokkurinn var vel skrifaður, uppbygging markviss og framsetning var lífleg og aðgengileg fyrir lesendur.

Rannsóknarblaðamennska ársins 2012

Jóhann Bjarni Kolbeinsson, fréttastofu RÚV, fyrir uppljóstrandi og ítarlega umfjöllun um kadmíum í áburði annars vegar og notkun iðnaðarsalts í matvælum hins vegar. Mikilvægt hlutverk blaðamanna er að veita valda- og stjórnkerfum samfélagsins aðhald, ekki síst þeim stofnunum sem sjálfar eiga að veita aðhald og eftirlit. Rannsókn Jóhanns Bjarna á starfsháttum Matvælastofnunar leiddi í ljós að stofnunin hefði brugðist hlutverki sínu í mikilvægum atriðum. Hann upplýsti um að allt of mikið af þungmálminum kadmíum hefði verið í þúsundum tonna af áburði frá Skeljungi sem notaður var vorið 2011 og að

Matvælastofnun hefði ekki stöðvað dreifinguna þrátt fyrir að hafa vitað af ágöllum áburðarins, heldur aðeins upplýst söluaðila sem síðan hélt viðskiptavinum sínum óupplýstum í hálft ár.

Jóhann Bjarni fylgdi málinu vel eftir og annað mál af svipuðum toga fylgdi beint í kjölfarið þegar hann upplýsti fyrstur manna um að Ölgerðin hafði í stórum stíl selt iðnaðarsalt til matvælaframleiðenda og að hvorki Matvælastofnun né Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur höfðu upplýst um málið eftir að það kom upp innanhúss hjá þeim. Í báðum þessum tilvikum voru fréttirnar og öll undirbúningsvinna traust og til fyrirmyndar, enda vöktu þessi mál almenna athygli og drógu fram í dagsljósið vinnubrögð og starfshætti sem rík ástæða var til að breyta.

Viðtal ársins 2012

Sigmar Guðmundsson, Kastljósi, fyrir sérstaklega áhrifaríkt og sterkt viðtal við Eirík Inga

Jóhannsson sjómann sem komst lífs af þegar togarinn Hallgrímur fórst. Eiríkur Ingi hafði stórbrotna harmsögu að segja aðeins viku eftir að hann hafði einn komist lífs af úr skelfilegu sjóslysi. Hér var Kastljós með efnivið um harmrænan atburð og alvarlega frásögn sjómannsins. Það er vandaverk sem krefst þekkingar og reynslu blaðamanns að koma bæði atburðinum til skila svo og frásögn sögumanns. Þetta kallaði á óvenjulega lausn. Sigmar

Guðmundsson sýndi bæði sögunni og sögumanni verðskuldaða virðingu þegar hann ákvað að þverbrjóta allar reglur Kastljóss um efnismeðferð og lét frásögn Eiríks flæða í fullri lengd og ótruflaða. Ritstjórn og blaðamennska felst iðulega í því að stytta, stýra og spyrja þannig að henti þeim miðli og því formi sem við á hverju sinni. Hér var efnið meðvitað ekki lagað að rammanum heldur ramminn að efninu í þessu lang lengsta sjónvarpsviðtali í manna minnum.

Viðfangsefnið var vandmeðfarið, ekki síst í ljósi þess hve stutt var frá slysinu og siðareglur blaðamennskunnar gera miklar kröfur í slíkum tilfellum. Þessum kröfum var mætt með góðum undirbúningi og viðtalið tekið eftir samráð við og samþykki sálfræðings Eiríks Inga og umræður við hann sjálfan.

Blaðamannaverðlaun ársins 2012

Ragnar Axelsson, Morgunblaðinu, fyrir merka umfjöllun og myndir af stórum pollum á

Grænlandsjökli sem voru til marks um óvenju mikla bráðnun jökulsins. Einlægur áhugi

Ragnars á mannlífi og náttúru á norðurslóðum hefur á umliðnum árum komið fram í glæsilegri umfjöllun í máli og myndum og vakið alþjóðlega athygli. Umfjöllun hans um fjölda stórra nýrra vatna eða polla norðarlega á Grænlandsjökli sem rekja má til hlýnunar jarðar er engin undantekning. Eftir að hafa sjálfur uppgvötað þessar náttúrufarsbreytingar á jöklinum úr flugvél fór blaðamaðurinn Ragnar Axelsson aftur á staðinn til að mynda og skoða fyrirbærið með það að markmiði að greina umheiminum frá því. En í stað þess að sýna sérfræðingum myndir og segja þeim frá málinu fékk hann Harald Sigurðsson jarðfræðing með sér á staðinn til að leggja mat á þær breytingar sem þarna höfðu orðið. Útkoman var stórglæsileg umfjöllun í máli og myndum sem ber vitni um vönduð vinnubrögð, skipulagningu og útsjónarsemi samfara næmum skilningi á samspili mynda og texta í fjölmiðlun, ekki síst í umfjöllun um umhverfismál.

Blaðamannaverðlaun 2011

Tilnefningar dómnefndar 2011

Blaðamannaverðlaun ársins 2011

Helgi Bjarnason, Morgunblaðinu, fyrir vandaðan og margháttaðan fréttaflutning af nýjungum í atvinnulífi og stöðu og íbúaþróun á Vestfjörðum og í landbúnaði, m.a. með ræktun repju til orkuframleiðslu.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, DV, fyrir fjölbreytt og mikilvæg skrif um samfélagsvandamál, svo sem ofbeldi, einkum er varða hlutskipti kvenna.

Jón Björgvinsson, Ríkisútvarpinu, fyrir einstakan fréttaflutning af vettvangi „arabíska vorsins“, uppreisnum gegn einræðisstjórnum í Norður Afríku.

Umfjöllun ársins 2011

Helga Arnardóttir, Stöð 2, fyrir umfjöllun um endurupptöku Geirfinnsmálsins m.a. á grundvelli nýrra gagna sem hún kynnti til sögunnar.

Skapti Hallgrímsson, Morgunblaðinu, fyrir umfjöllun um Helgu Sigríði Sigurðardóttur sem fékk hjartaáfall 12 ára gömul 2010.

Þóra Tómasdóttir, Fréttatímanum, fyrir umfjöllun um ofbeldi innan veggja Landakotsskóla.

Rannsóknarblaðamennska ársins 2011

Ingi Freyr Vilhjálmsson, DV, fyrir umfangsmikinn og ágengan fréttaflutning afuppgjöri og afleiðingum fjármálahrunsins.

Jóhannes Kr. Kristjánsson, Kastljósi, fyrir áhrifaríka umfjöllun um læknadóp, útbreiðslu þess og skelfilegar afleiðingar.

Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu, fyrir fréttaflutning af mengun vegna díoxíns frá sorpbrennslum í Skutulsfirði, á Kirkjubæjarklaustri og í Vestmannaeyjum.

Verðlaunahafar og rök dómnefndar

Blaðamannaverðlaun ársins 2011

Jón Björgvinsson, Ríkisútvarpinu, hlýtur Blaðamannaverðlaun ársins 2011 fyrir einstakan fréttaflutning af vettvangi „arabíska vorsins“, uppreisnum gegn einræðisstjórnum í Norður Afríku. Innslög Jóns í fréttatímum Ríkisútvarpsins á síðasta ári, og raunar miklu lengur, hafa vakið eftirtekt, enda mikilvægt fyrir almenning að fá beint og milliliðalaust upplýsingar og mat manns sem er á vettvangi heimsatburða. Staðlaðar og matreiddar fréttir alþjóðlegra fréttastofa eru vissulega mikilvæg uppspretta upplýsinga og gefa ákveðna heildarmynd sem fréttastofa RÚV gat notað sem umgjörð utan um fréttir Jóns. Hins vegar er ómetanlegt fyrir almenning á Íslandi að fá fréttir beint af vettvangi frá blaðamanni sem skilar frásögn sinni beint inn í íslenskan menningarheim og hugsunarhátt og segir frá á góðri íslensku. Á árinu 2011 færði Jón Björgvinsson þá mikilvægu heimsögulega atburði sem urðu í Egyptalandi, Túnis, Líbýu og víðar í Norður Afríku heim í íslenskar stofur á vandaðan og áhrifaríkan hátt, og sinnti þannig með eftirbreytniverðum hætti hlutverki sínu sem blaðamaður, stundum jafnvel við lífshættulegar aðstæður.

Rannsóknarblaðamennska ársins 2011

Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu, hlýtur Rannsóknarblaðamennskuverðlaun ársins 2011 fyrir fréttaflutning af mengun vegna díoxíns frá sorpbrennslum í Skutulsfirði, á Kirkjubæjarklaustri og í Vestmannaeyjum. Skrif Svavars um málið byggðu á umfangsmikilli og vandaðri gagnavinnslu og drógu fram í dagsljósið ýmsa vankanta og gloppur í stjórnsýslu umhverfismála ríkis og sveitarfélaga. Svavar velti við steinum og beindi athygli að einstökum atriðum varðandi sorpbrennslu samhliða því að málið var sett í víðara samhengi alþjóðlegra skuldbindinga og undanþága sem Ísland hefur fengið. Afhjúpanir Fréttablaðsins urðu tilefni almennra frétta og umfjöllunar í samfélaginu og áttu stóran þátt í að farið var í ýmis konar úttektir og rannsóknir á þessum málum á vegum opinberra aðila og umfangsmikla sýnatöku úr jarðvegi og heilsufarsrannsóknar á fólki sem búið hafði á mengunarsvæðunum. Vönduð rannsóknarblaðamennska Svavars, sem birtist m.a. í yfirvegun, eftirfylgni og frumkvæði, var þannig mikilvægur varðhundur almannahagsmuna á árinu 2011.

Besta umfjöllun ársins 2011

Helga Arnardóttir, Stöð 2, hlýtur verðlaun fyrir Bestu umfjöllun ársins 2011 fyrir umfjöllun um endurupptöku Geirfinnsmálsins m.a. á grundvelli nýrra gagna sem hún kynnti til sögunnar. Geirfinns- og Guðmundarmál hafa verið mikið rædd og rannsökuð og hafa komið upp með ákveðnu millibili í íslenskri fjölmiðlaumræðu undanfarna áratugi. Slíkt gerði það sérstaklega vandasamt að fjalla um málið svo að áhuga vekti og að bætt væri við mikilvægum upplýsingum sem máli skipta fyrir þjóðfélagsumræðuna. Þetta tókst Helgu sérstaklega vel í tveggja þátta umfjöllun sinni um málið. Samhliða því að hún rifjaði upp málavexti og staðreyndir málsins og blandaði smekklega saman nýju og gömlu myndefni, þá voru kynntar til sögu mikilvægar upplýsingar sem ekki höfðu komið fram áður. Það voru dagbækur Tryggva Rúnars Leifssonar frá því hann sat í gæsluvarðhaldi vegna málsins og var innihald þeirra borið undir Gísla Guðjónsson réttarsálfræðing. Bæði dagbækurnar og umsögn Gísla voru nýjar upplýsingar í þessu gamla máli og skiptu miklu um þá ákvörðun stjórnvalda að láta skoða málið enn á ný. Umfjöllun Helgu var í jafnvægi og framsetning áhugaverð og einkenndist af faglegum vinnubrögðum og góðri blaðamennsku.

Blaðamannaverðlaun 2010

Tilnefningar dómnefndar til Blaðamannaverðlauna B.Í. fyrir árið 2010:

Rannsóknarblaðamennska ársins 2010:

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir DV fyrir áleitna og vandaða umfjöllun um kynferðisbrotamál og forystu um skrif á þessu sviði, svo sem um biskupsmálið og önnur meint kynferðisbrot innan kirkju og trúfélaga.

Stígur Helgason og Trausti Hafliðason Fréttablaðinu, fyrir greinargóða og upplýsandi umfjöllun um málefni meðferðarheimilisins Árbótar. Umfjöllunin varpaði nýju ljósi á umdeild vinnubrögð í stjórnmálum og stjórnsýslu.

Þorbjörn Þórðarson Stöð 2, fyrir skilmerkilegan fréttaflutning af viðskipta- og fjármálum sem iðulega sviptu hulunni af framvindu meintra efnahagsbrotamála í aðdraganda og ekki síður eftir hrunið.

Besta umfjöllun ársins 2010:

Fréttastofa RÚV, Fréttastofa Stöðvar 2 og Ritstjórn Morgunblaðsins, fá sameiginlega tilnefningu fyrir umfangsmikla og vandaða en ólíka umfjöllun um eldgosin á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli.

Magnús Halldórsson Viðskiptablaðinu, fyrir skýra og umfangsmikla umfjöllun um fjármál sveitarfélaga í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.

Sigríður H. Björnsdóttir og Þóra Arnórsdóttir (ritstj.) ásamt fréttamönnum fréttastofu RÚV og Kastljóss, fyrir sérstakan þátt með greinargóðri og viðamikilli umfjöllun um Rannsóknarskýrslu Alþingis daginn sem hún kom út. Dæmi um hröð, vönduð og fumlaus vinnubrögð.

Blaðamannaverðlaun ársins 2010

Kristinn Hrafnsson RÚV/WikiLeaks, fyrir framúrskarandi úrvinnslu á myndbandi um þyrluárás í Bagdad sem hann vann ásamt Inga R. Ingasyni. Einnig fyrir störf hans sem fulltrúi WikiLeaks í samstarfi við helstu fjölmiðla heims við að koma mikilvægum upplýsingum á framfæri.

Pétur Blöndal Morgunblaðinu, fyrir fróðlegar og sérstaklega vel skrifaðar greinar um læknavísindi sem gáfu bæði innsýn í aðstæður sjúklings og lækna/heilbrigðisstarfsfólks.

Ritstjórn DV fyrir Stjórnlagaþingsvef sinn þar sem lesendum var með nýstárlegum hætti og lifandi framsetningu auðveldað að kynna sér hinn mikla fjölda frambjóðenda.

Verðlaunahafar og rökstuðningur dómnefndar

Rannsóknarblaðamennska ársins 2010

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir DV fyrir áleitna og vandaða umfjöllun um kynferðisbrotamál og forystu um skrif á þessu sviði, svo sem um biskupsmálið og önnur meint kynferðisbrot innan kirkju og trúfélaga.

Í skrifum sínum um kynferðisbrotamál náði Ingibjörg Dögg að sameina mikilvæga kosti vandaðrar rannsóknarblaðamennsku um viðkvæm mál. Annars vegar fjallaði hún um viðfangsefni sín af vandvirkni og sýndi viðmælendum þá virðingu sem leiðir til trúnaðar milli blaðamanns og heimildamanna. Hins vegar fylgdi hún málum eftir til enda, elti uppi lausa enda og velti við þeim steinum sem þurfti til að fá botn í málin. Árangurinn lét ekki á sér standa og bæði ný mál og mál sem um árabil hafa legið í þagnargildi komust uppá yfirborðið.

Besta umfjöllun ársins 2010

Fréttastofa RÚV, Fréttastofa Stöðvar 2 og Ritstjórn Morgunblaðsins fyrir umfangsmikla og vandaða en ólíka umfjöllun um eldgosin á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli.

Það er mikil áskorun fyrir fjölmiðla að fjalla um náttúruhamfarir á borð við eldgosin á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli. Þar kom saman stórfenglegt sjónarspil náttúrunnar, víðtæk félagsleg, tilfinningaleg og efnahagsleg áhrif á fólk á hamfarasvæðunum og lamandi áhrif á flugumferð og ferðamöguleika fólks í heilum heimsálfum. Því var það vandasamt að fjalla með heildstæðum og vönduðum hætti um svo margslungna atburði. Fréttastofur RÚV og Stöðvar 2 ásamt ritstjórn Morgunblaðsins sýndu hver með sínum hætti blaðamennsku í sérflokki í umfjöllun sinni um þessar hamfarir. Allir náðu þessir miðlar að fanga hið myndræna og hrikalega við gosin en tókst um leið að draga fram hinar margvíslegu afleiðingar fyrir menn, skepnur og samgöngukerfi heimsins. Umfjöllun þessara miðla var umfangsmikil, fjölbreytt og ábyrg, en umfram allt var hún upplýsandi fyrir almenning sem gat ávallt fylgst með stöðu mála og þróun í þessum ógnvænlegu samskiptum manns og náttúru.

Blaðamannaverðlaun ársins 2010

Kristinn Hrafnsson RÚV/WikiLeaks fyrir framúrskarandi úrvinnslu á myndbandi um þyrluárás í Bagdad sem hann vann ásamt Inga R. Ingasyni. Einnig fyrir störf hans sem fulltrúi WikiLeaks í samstarfi við helstu fjölmiðla heims við að koma mikilvægum upplýsingum á framfæri.

Myndbandið af þyrluárásinni á borgara í Bagdad í júlí 2007 sem lekið var til WikiLeaks vakti heimsathygli enda var þar um einstakt og áhrifamikið efni að ræða. Úrvinnslan og eftirfylgdin sem kom í kjölfarið og birtist m.a. í nokkrum hlutum í Kastljósi RÚV sýndi hið firrta eðli nútíma hernaðar og færði reynslu og örlög fórnarlamba heim í íslenskar stofur. Jafnframt var varpað fram mikilvægum spurningum um tilgang og framgang stríðsins í Írak. Tekið var jafnt á þjóðfélagslegum sem persónulegum hliðum málsins með aðgengilegum og yfirveguðum hætti. Kristinn Hrafnsson sýndi í þessu máli framúrskarandi blaðamennsku og hélt í framhaldi af því uppi merki faglegra gilda í starfi sínu hjá WikiLeaks, þar sem hann m.a. vann að því að miðla mikilvægum en viðkvæmum upplýsingum til þeirra alþjóðlegu fjölmiðla sem WikiLeaks var í samstarfi við. Kristinn var þannig í mikilvægu framvarðarhlutverki þegar blaðamennska í heiminum var að vinna ný lönd.

Blaðamannaverðlaun 2009

Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna 2009

Rannsóknarblaðamennska ársins 2009:Guðný Helga Herbertsdóttir, Stöð 2, fyrir fjölmargar áhugaverðar fréttir um skattalega meðferð mála í tengslum við fjármálakreppuna og fyrir fjölbreyttar og upplýsandi fréttir um hrunið hér heima og erlendis.Ingi F. Vilhjálmsson, DV, fyrir skrif um kúlulán og fjölmargar afhjúpandi fréttir um viðskiptahætti auðmanna og stórfyrirtækja í aðdraganda og eftirmála hrunsins.Þórður Snær Júlíusson, Viðskiptablaðinu (áður Morgunblaðinu) fyrir upplýsandi fréttir og greinaflokka um aflandsfélög og skattaskjól, einkavæðingu bankanna og umsvifamikil viðskipti stórfyrirtækja.

Besta umfjöllun ársins 2009:Magnús Halldórsson, Ragnar Axelsson ásamt Ágústi Inga Jónssyni, Morgunblaðinu, fyrir skilmerkilega, myndræna og upplýsandi umfjöllun sem varpaði ljósi á erfitt ástand á fasteignamarkaði á Íslandi. Lóa Pind Aldísardóttir, Stöð 2, fyrir vandaðar og aðgengilegar fréttaskýringar um flókin mál, sem varða almenning miklu svo sem um fjármál heimilanna og aðild Íslands að ESB.Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu, fyrir skilmerkilegan og ítarlegan fréttaskýringarflokk um endurskoðun stjórnarskrárinnar.

Blaðamannaverðlaun ársins 2009:Gunnar Karlsson, Fréttablaðinu fyrir „Spottið“ og Halldór Baldursson, Morgunblaðinu, fyrir „Halldór“, áhrifamiklar teikningar þar sem brennandi samfélagsmál eru sett í hárbeitt en um leið skoplegt ljós.Jóhann Hauksson, DV, fyrir leiðandi umfjöllun um fall og myndun ríkisstjórna og fréttaskýringar um mikilvæg þjóðfélagsmál.Þóra Arnórsdóttir, Kastljósi RÚV, fyrir mjög vel undirbúin og útfærð viðtöl við innlenda og erlenda sérfræðinga um ýmis málefni sem hátt bar í þjóðfélagsumræðunni.

Verðlaunahafar og rök dómnefndar

Rannsóknarblaðamennska ársins 2009Þórður Snær Júlíusson, Viðskiptablaðinu (áður Morgunblaðinu), fær verðlaunin fyrir upplýsandi fréttir og greinaflokka um aflandsfélög og skattaskjól, einkavæðingu bankanna og umfangsmikil viðskipti stórfyrirtækja. Fjármál og viðskipti voru helstu fréttamál ársins 2009 á Íslandi og í fjölþættum og vönduðum skrifum sínum tókst Þórði Snæ aftur og aftur að draga fram í dagsljósið atriði sem skiptu miklu fyrir umræðuna. Þetta á meðal annars við um fréttir hans af aflandsstarfsemi íslenskra fyrirtækja, skrif hans um endurskipulagningu Exista og starfsemi Milestone svo dæmi séu tekin. Þórður hefur lagt mikið af mörkum við að greiða úr þeim viðskiptaflækjum sem ofnar voru á „uppgangsárunum“ en áttu síðar sinn þátt í hruninu. Það er íslenskri blaðamannastétt mikilvægt að eiga ungt og áhugasamt fólk sem er duglegt að grafa upp heimildir og gefst ekki upp.

Besta umfjöllun ársins 2009Lóa Pind Aldísardóttir, Stöð 2, fær verðlaunin fyrir vandaðar og aðgengilegar fréttaskýringar um flókin mál, sem varða almenning miklu svo sem um fjármál heimilanna og aðild Íslands að ESB. Fréttaskýringar og fréttaflutningur Lóu sýnir hve góð tök hún hefur á miðlinum.Þau nýtir hún til að sinna hinu mikilvæga hlutverki blaðamannsins, það er að varpa ljósi á flókin fréttamál svo þau verða áhorfandanum auðskiljanleg. Hún er óhrædd við að fara ótroðnar slóðir í efnistökum og framsetning hennar er myndræn og skýr. Efnistök hennar eru jafnframt nákvæm, í jafnvægi og sanngjörn, og útkoman verður því blaðamennska sem er til fyrirmyndar.

Blaðamannaverðlaun ársinsJóhann Hauksson, DV, fær verðlaunin fyrir leiðandi umfjöllun um fall ríkisstjórnarinnar og þýðingarmiklar fréttaskýringar um mikilvæg þjóðfélagsmál. Jóhann er fagmaður með mikla og víðtæka reynslu og sambönd. Þessi staðreynd er sérstaklega mikilvæg á umbrotatímum í þjóðfélaginu þegar óvissa og ringulreið virðist ríkja. Jóhanni hefur tekist í fjölþættum skrifum sínum að útskýra og greina þjóðfélagsástandið, sýna lesendum undir yfirborðið og tengja saman hulda þræði. Á löngum ferli hefur Jóhann áunnið sér traust heimildarmanna og virðingu lesenda sem ásamt reynslu hans og þekkingu gera skrif hans um þjóðfélagsmál ómissandi í samfélagsumræðunni

Blaðamannaverðlaun 2008

Tilnefningar dómnefndar

BESTA UMFJÖLLUN ÁRSINS 2008

Baldur Arnarson, Morgunblaðið, fyrir greinaflokkinn Ný staða í norðri, þar sem farið var yfir þær náttúrufarslegu, efnahagslegu, félagslegu og pólitísku breytingar, sem hlýnun andrúmslofts og breytt staða á norðurslóðum hefur í för með sér.

Brjánn Jónasson, Fréttablaðið, fyrir upplýsandi og vel fram sett skrif um framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, þar sem fjallað var um málið og aðdraganda þess.

Ragnar Axelsson og Önundur Páll Ragnarsson, Morgunblaðið, fyrir umfjöllun um virkjunarkosti á Íslandi. Þar voru dregnir fram með öflugri samvinnu texta og mynda kostir og gallar hvers virkjunarkosts um sig og málið sett í skipulagt samhengi.

RANNSÓKNARBLAÐAMENNSKA ÁRSINS 2008

Atli Már Gylfason og Trausti Hafsteinsson, DV, fyrir ítarlega og afhjúpandi umfjöllun um kynþáttafordóma meðal ungs fólks á Suðurnesjum og margvísleg áhrif þeirra.

Brynjólfur Þór Guðmundsson og Erla Hlynsdóttir, DV, fyrir ítarleg og samfelld skrif og greiningu á eftirlaunum ráðamanna og áhrifum eftirlaunafrumvarpsins.

Sigurjón M. Egilsson, Mannlíf og Bylgjan, fyrir vandaðar og ítarlegar greinar um íslenskt efnahagsástand í Mannlífi, þar sem mál voru krufin með ítarlegri hætti en títt er í íslenskum fjölmiðlum. Samhliða stýrði Sigurjón útvarsþætti á Bylgjunni, þar sem íslensk þjóðmál voru í brennidepli.

BLAÐAMANNAVERÐLAUN ÁRSINS 2008

Jóhann Hauksson, DV, fyrir fréttaskrif og umfjöllun um mikilvæg þjóðfélagsmál sem báru vitni um mikil tengsl, reynslu og skilning, og voru iðulega fyrstu fréttum af málum. Dæmi um slíkt voru skrif Jóhanns um samkomulag íslenskra stjórnvalda og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins.

Sigrún Davíðsdóttir, RÚV –Spegillinn, fyrir pistla þar sem nýjum hliðum á fjölmörgum málum – m.a. í tengslum við bankahrunið og áhrif þess erlendis - var velt upp og þau sett í nýtt og upplýsandi samhengi.

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, mbl.is, fyrir vandaðar fréttir á mbl.is þar sem hún nálgaðist frumlega málefni líðandi stundar og netmiðillinn var nýttur með nýjum hætti í íslenskri fjölmiðlun.

Verðlaunahafar og rök dómnefndar

BESTA UMFJÖLLUN ÁRSINS 2008 Ragnar Axelsson og Önundur Páll Ragnarsson, Morgunblaðinu, fyrir umfjöllun um virkjunarkosti á Íslandi. Þar voru dregnir fram með öflugri samtvinnun texta og mynda kostir og gallar hvers virkjunarkosts um sig og málið sett í skipulagt samhengi. Umræðan um virkjanakosti á Íslandi er viðvarandi og mikilvæg. Sérstaklega er mikilvægt fyrir almenning að geta með heildstæðum hætti vegið og metið hvaða möguleikar eru fyrir hendi. Í þessu sambandi þarf að koma til skila bæði sjónrænum upplýsingum sem tengjast náttúrunni og gildi hennar og rökrænum upplýsingum sem tengjast hagkvæmni og hagsmunum. Slíkt verkefni krefst náinnar samvinnu blaðamanns og ljósmyndara, en líkt og svo víða í heiminum hefur slíkt samstarf oft mátt vera betra og meira á íslenskum ritstjórnum. Í greinaflokki sínum sýndu þeir Ragnar Axelsson, ljósmyndari og Önundur Páll Ragnarsson blaðamaður hins vegar hvernig samvinna ljósmynda og texta getur framkallað umfjöllun sem er í sérflokki.

RANNSÓKNARBLAÐAMENNSKA ÁRSINS 2008Sigurjón M. Egilsson, Mannlífi og Bylgjunni, fyrir vandaðar og ítarlegar greinar um íslenskt efnahagsástand í Mannlífi, þar sem mál voru krufin með ítarlegri hætti en títt er í íslenskum fjölmiðlum. Samhliða stýrði Sigurjón útvarsþætti á Bylgjunni, þar sem íslensk þjóðmál voru í brennidepli. Umfjöllun Sigurjóns M. Egilssonar í Mannlífi um íslensk efnahagsmál vakti talsverða athygli strax á fyrri hluta ársins 2008 fyrir þær grundvallarspurningar sem þar voru rannsakaðar og leitað svara við, m.a. varðandi bankakerfið og peningamálastefnu stjórnvalda. Umfjöllunin er þó ekki síður athyglisverð í ljósi þess sem síðar gerðist, enda var þar með ítarlegum og gagnrýnum hætti farið inn á fjölmarga þætti sem ótvírætt eru mikilvægir orsakavaldar í bankahruninu mikla. Í greinaflokkum sínum kafaði Sigurjón ofan í málin og dró fram sjónarmið fjölda fólks, stjórnmálamanna, sérfræðinga og hagsmunaaðila og greindi hver áhrifin voru af efnahags- og peningastefnunni og hverjar hættur voru yfirvofandi. Til viðbótar skrifum um þessi mál í Mannlífi tók Sigurjón ýmsa þætti þessarar umfjöllunar upp á vettvangi útvarpsþáttarins Sprengisands á Bylgjunni, sem hann hefur séð um.

BLAÐAMANNAVERÐLAUN ÁRSINS 2008Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, mbl.is, fyrir vandaðar fréttir á mbl.is þar sem hún nálgaðist frumlega málefni líðandi stundar og netmiðillinn var nýttur með nýjum hætti í íslenskri fjölmiðlun. Fjölmiðlun á Íslandi líkt og annars staðar í heiminum stendur frammi fyrir miklum tæknibreytingum og nýjar fjölmiðlagáttir hafa verið að ryðja sér til rúms. Þar eru netmiðlarnir mikilvægastir. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, sem er margreynd í hefðbundnum prent- og ljósvakamiðlum, hefur með fréttum sínum og innslögum á netmiðlinum mbl.is sýnt og sannað að hin sígildu grundvallaratriði góðrar blaðamennsku eru óháð tegund fjölmiðils. Þegar slík fagleg blaðamennska brýtur undir sig nýja tækni og ný form fjölmiðlunar eins og tekist hefur hjá Þóru Kristínu, er óhjákvæmilega eftir því tekið. Þóra hefur í efnistökum sýnt hugkvæmni og góða dómgreind sem iðulega hefur orðið til þess að hún er fyrst með fréttir eða varpar fram nýjum en mikilvægum hliðum á fréttaefni líðandi stundar. Þetta kom berlega fram í málum sem vörðuðu bankahrunið á seinni hluta ársins, en þar bættu fréttir mbl.is iðulega miklu við fréttir hefðbundnari miðla eða ruddu jafnvel brautina fyrir umfjöllun þeirra.

Blaðamannaverðlaun 2007

Tilnefningar dómnefndar:

BESTA UMFJÖLLUN ÁRSINS 2007:

Jóhannes Kr. Kristjánsson og Kristinn Hrafnsson, Stöð 2, fyrir umfjöllun í Kompási um byssur á svörtum markaði á Íslandi, um ástandið í Írak og um heilablóðfall.

Baldur Arnarson, Morgunblaðinu, fyrir fræðandi og áhrifaríka röð frétta og fréttaskýringa um svifryk, áhrif svifryksmengunar og hvað sé helst til ráða til að sporna við henni.

Kristín Sigurðardóttir, Fréttastofu Útvarpsins, fyrir röð frétta um gjaldtöku bankanna vegna svokallaðs “fit- kostnaðar”, sem hafði mikil áhrif í þjóðfélaginu.

RANNSÓKNARBLAÐAMENNSKA ÁRSINS 2007:

Ritstjórn DV, Sigurjón M. Egilsson, Valur Grettisson, Anna Kristine Magnúsdóttir, Sigtryggur Ari Jóhannsson, Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson, Jakobína Davíðsdóttir og Kristján Hrafn Guðmundsson, fyrir umfjöllun sína um meðferð barna og unglinga í Breiðavík og á öðrum vistheimilum ríkisins.

Þóra Tómasdóttir og Sigmar Guðmundsson, Sjónvarpinu, fyrir umfjöllun sína í Kastljósi um meðferð og örlög drengja sem vistaðir voru á uppeldisheimilinu í Breiðavík.

Svavar Hávarðsson, Fréttablaðinu, fyrir víðtæk fréttaskrif og góða eftirfylgd um sjóöryggi á siglingaleiðum við Suður- og Suðvesturland.

BLAÐAMANNAVERÐLAUN ÁRSINS 2007:

Kristján Már Unnarsson, Stöð 2, fyrir upplýsandi fréttir úr hversdagslífi á landsbyggðinni þar sem hann á látlausan en áhrifaríkan hátt varpaði ljósi á ýmsar þær þjóðfélagsbreytingar sem eru að verða á íslensku samfélagi.

Pétur Blöndal, Morgunblaðinu, fyrir fréttaskýringu og umfjöllun um eitt stærsta fréttamál ársins, sem var REI - málið og ýmsar pólitískar hliðar þess.

Óli Kristján Ármannsson, Fréttablaðinu, fyrir aðgengileg og upplýsandi skrif um efnahagsmál og viðskipti.

Verðlaunahafar og rök dómnefndar:

BESTA UMFJÖLLUN ÁRSINS 2007:

Jóhannes Kr. Kristjánsson og Kristinn Hrafnsson, Stöð 2, fyrir umfjöllun í Kompási um byssur á svörtum markaði á Íslandi, um ástandið í Írak og um heilablóðfall og heilablæðingu. Fréttaskýringaþátturinn Kompás hefur sett mark sitt með áberandi hætti á þjóðfélagsumræðuna á undanförnum misserum og svo var einnig á árinu 2007. Tilefni umfjöllunar þeirra Jóhannesar Kr. Kristjánssonar og Kristins Hrafnssonar um aðgengi að byssum á Íslandi var harmleikur þar sem margir áttu um sárt að binda og almenningur í landinu var sem steini lostinn. Þeim tókst að fylgja þessu vandasama máli eftir á skeleggan hátt og leiddu fram fjölmargar markverðar upplýsingar sem skipta miklu fyrir samfélagsumræðuna. Umfjöllun þeirra hvors í sínu lagi á vettvangi Kompáss um Írak annars vegar og heilablóðfall og heilablæðingu hins vegar eru síðan dæmi um sömu eiginleika. Þeir brutu land að því leyti að lítið eða ekki hafði verið um málin fjallað áður í fjölmiðlum á sambærilegan hátt. Þeim tókst að gæða málin lífi og gera þau áhugaverð.

RANNSÓKNARBLAÐAMENNSKA ÁRSINS 2007:

Tvær af tilnefningunum í þessum flokki deila með sér verðlaununum í ár. Annars vegar ritstjórn DV, Sigurjón M. Egilsson, Valur Grettisson, Anna Kristine Magnúsdóttir, Sigtryggur Ari Jóhannsson, Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson, Jakobína Davíðsdóttir og Kristján Hrafn Guðmundsson, fyrir umfjöllun sína um meðferð barna og unglinga í Breiðavík og á öðrum vistheimilum ríkisins. Hins vegar Þóra Tómasdóttir og Sigmar Guðmundsson, Sjónvarpinu, fyrir umfjöllun sína í Kastljósi um meðferð og örlög drengja sem vistaðir voru á uppeldisheimilinu í Breiðavík.

Breiðavíkurmálið og málefni fleiri vistheimila á vegum hins opinbera voru fyrirferðamikil í þjóðfélagsumræðunni á síðasta ári. Í umfjöllun um þessi mál var rifið ofan af gömlum sárum sem ekki höfðu náð að gróa með eðlilegum hætti í þögn undanfarinna áratuga. Þetta voru vandasöm mál þar sem mörgum steinum var velt við. Framganga fulltrúa kerfisins var leidd fram í dagsljósið og leitast var við að draga fram viðhorf og reynslu einstaklinganna sem í hlut áttu. Umræðan varð til þess að sett var á laggirnar sérstök nefnd á vegum stjórnvalda til þess að fara ofan í málið. Tveir miðlar tóku forustuna í þessari umfjöllun, DV og Kastljós. DV hóf umfjöllunina um málið og fylgdi því rækilega eftir. Fjallaði blaðið m.a. um ofbeldið sem börnin máttu búa við og ástæður og afleiðingar þess að þau voru vistuð á stofnunum. Sama er að segja um rannsókn og umfjöllun Kastljóss sem fjallaði um málið á margvíslegan hátt, m.a. með áhrifaríkum, erfiðum en nauðsynlegum viðtölum við Breiðavíkurdrengina sjálfa. Þessir ólíku fjölmiðlar fjölluðu á sannfærandi hátt um málið, ljósvakinn annars vegar og prentmiðillinn hins vegar. Að baki lá mikil heimildavinna sem svipti hulinni af viðkvæmu leyndarmáli.

BLAÐAMANNAVERÐLAUN ÁRSINS 2007:

Kristján Már Unnarsson, Stöð 2, fyrir upplýsandi fréttir úr hversdagslífi á landsbyggðinni þar sem hann á látlausan en áhrifaríkan hátt varpaði ljósi á ýmsar þær þjóðfélagsbreytingar sem eru að verða á íslensku samfélagi. Um árabil hefur Kristján Már Unnarsson sagt fréttir af daglegu lífi og umhverfi fólks um allt land. Hann hefur haft sérstakt lag á því að finna fréttnæma atburði ekki síst á landsbyggðinni, mál sem jafnvel hafa blasað við en þá fyrst orðið áhugaverð fyrir alla landsmenn þegar Kristján hefur dregið þau fram og þar með bent á mikilvægi þeirra. Þetta hefur Kristján gert á látlausan og alþýðlegan hátt. Gott dæmi um þetta er fréttasyrpa Kristjáns Más um mannlíf á Norðausturlandi og sömuleiðis umfjöllun hans um virkjanir og mannvirki fyrir austan. Þannig hefur Kristján af innsæi og skilningi stuðlað að sterkari samfélagsvitund landsmanna allra þar sem fólk í ólíkum landshlutum fær mikilvægar upplýsingar um samfélagsbreytingar, mannlíf og skoðanir annars staðar á landinu.

Blaðamannaverðlaun 2006

Tilnefningar dómnefndar:

BESTA UMFJÖLLUN ÁRSINS 2006:

Auðunn Arnórsson, Fréttablaðinu, fyrir ítarlega, aðgengilega og vandaða umfjöllun um Evrópumál í greinaflokknum “Ísland og Evrópusambandið.”

Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Kastljósi, fyrir tímabæra, upplýsandi og notendavæna greiningu á hugtökum og staðreyndum úr orðræðu stjórnmálamanna um skattkerfið og þróun þess.

Sigríður Víðis Jónsdóttir, Morgunblaðinu fyrir vandaða og viðamikla umfjöllun um úrræði í skólakerfinu fyrir börn með hegðunarfrávik og geðraskanir í greinaflokknum “Verkefni eða vandamál?”

RANNSÓKNARBLAÐAMENNSKA ÁRSINS 2006:

Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, Blaðinu fyrir uppljóstrandi fréttaröð í Fréttablaðinu um margfaldan verðmun á samheitalyfjum á Íslandi annars vegar og Danmörku hins vegar.

Henry Birgir Gunnarsson, Fréttablaðinu, fyrir fréttaskrif og eftirfylgd þar sem upplýst er um mikinn mun á launum og kjörum karla og kvenna í A-landsliðum Íslands í knattspyrnu.

Jóhannes Kr. Kristjánsson, Kompási fyrir nýstárlega, hugmyndaríka og afhjúpandi umfjöllun um bæði málefni barnaníðinga og um málefni Byrgisins.

BLAÐAMANNAVERÐLAUN ÁRSINS 2006:

Davíð Logi Sigurðsson, Morgunblaðinu fyrir skrif um alþjóðamál, þar á meðal skrif um Guantanamo-fangabúðirnar á Kúbu og Íslensku friðargæsluna.

Halldór Baldursson, Blaðinu og Viðskiptablaðinu fyrir skop- og ádeiluteikningar sínar og túlkun á fréttnæmum íslenskum þjóðfélagsviðburðum.

Kolbrún Bergþórsdóttir, Blaðinu fyrir fjölbreytileg og áhugaverð mannlífsviðtöl og menningarskrif sem dreifast yfir allt árið 2006.

Verðlaunahafar og rök dómnefndar:

BESTA UMFJÖLLUN ÁRSINS 2006:Auðunn Arnórsson, Fréttablaðinu, fyrir ítarlega, aðgengilega og vandaða umfjöllun um Evrópumál í greinaflokknum “Ísland og Evrópusambandið.” Greinaflokkur Auðuns Arnórssonar um Ísland og Evrópusambandið byggi á mikilli yfirsýn og yfirburða þekkingu á flóknu og vandasömu málefni, sem brýnt er að gera aðgengilegt almenningi. Hér er um að ræða eitt eldfimasta mál í íslenskri þjóðfélagsumræðu en umfjöllun Auðuns var í góðu jafnvægi og dró fram þá þætti og þær hliðar sem mestu skiptu. Greinaflokknum var haldið reglubundið úti yfir nokkurra mánaða tímabil og gátu lesendur gengið að upplýsandi umfjöllun um Evrópumál vísri. Þar voru jafnt stofnanakerfi sem ýmis hitamál Evrópusambandsins útskýrð og sett í íslenskt samhengi. Það var einkennandi fyrir umfjöllun Auðuns að honum tókst að gera mikilvægum og flóknum málum skil með alþýðlegum hætti samhliða því að hann tengdi þá við atburði líðandi stundar. RANNSÓKNARBLAÐAMENNSKA ÁRSINS 2006:Jóhannes Kr. Kristjánsson, Kompási fyrir nýstárlega, hugmyndaríka og afhjúpandi umfjöllun um bæði málefni barnaníðinga og um málefni Byrgisins. Jóhannes Kr. Kristjánsson, ritstjóri, hefur í fréttaskýringaþætti sínum, Kompási, slegið nýjan og áhrifaríkan tón í íslenskri rannsóknarblaðamennsku. Umfjöllun hans um mál barnaníðinga annars vegar og um málefni Byrgisins hins vegar afhjúpuðu hvor með sínum hætti ljótleika sem almenningi og yfirvöldum hafði verið meira og minna hulinn. Mikilvægi þessara afhjúpana sést best í þeirri feiknalegu umræðu sem fylgt hefur í kjölfarið og enn sér ekki fyrir endann á. Að hluta til má rekja uppljóstranir Jóhannesar og Kompáss til notkunar á þekktum, en um leið frekar óhefðbundnum og afar vandasömum aðferðum við fréttaöflun. líkar aðferðir krefjast vandvirkni, hugmyndaauðgi, ritstjórnarlegs aga og síðast en ekki síst hugrekkis. Það einstigi tókst að þræða í þessum mikilvægu þáttum um leið og rannsóknarblaðamennska á Íslandi öðlaðist sérstaka viðurkenningu og þakklæti í huga almennings. BLAÐAMANNAVERÐLAUN ÁRSINS 2006:

Davíð Logi Sigurðsson, Morgunblaðinu fyrir skrif um alþjóðamál, þar á meðal skrif um Guantanamo-fangabúðirnar á Kúbu og Íslensku friðargæsluna. Þrátt fyrir mikilvæga og þarfa þjónustu alþjóðlegra fréttastofa sem senda frá sér unnar og meira og minna staðlaðar fréttir af erlendum málefnum geta þær aldrei orðið íslenskum almenningi jafn mikilvæg upplýsingauppspretta og frásögn íslenskra blaðamanna sem fara á vettvang veraldarviðburða. Davíð Logi Sigurðsson hefur árum saman skrifað um erlend málefni og í því skyni farið vítt um heim. Iðulega koma upplýsingar hans og túlkun frá fyrstu hendi sem auðveldar skilning og færir lesendur nær viðfangsefninu. Greinar Davíðs Loga um Gantanamo og Íslensku friðargæsluna eru góð dæmi um þetta. Hann var fyrstur íslenskra blaðamanna til að heimsækja Guantanamo-fangabúðirnar á Kúbu og skrifaði um þær greinar þar sem aðbúnaði og viðhorfum er lýst með einstökum hætti. Jafnframt voru fengin fram sjónarmið fyrrverandi fanga sem fylltu upp í þá heildarmynd sem upp var dregin. Við skrif greina sinna um mýkri ásýnd Íslensku friðargæslunnar fór Davíð Logi í vettvangsheimsókn til Sri Lanka og dró upp mynd af aðstæðum og starfsumhverfinu þar. Þetta tengdi hann síðan viðbrögðum og starfseminni hér heima og þeim áhrifum sem stefnubreyting ráðherra hafði á embættismannakerfið. Meðal annars komu þá fram upplýsingar um greiningardeild sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli.

Blaðamannaverðlaun 2005

Tilnefningar dómnefndar:

BESTA UMFJÖLLUN ÁRSINS 2005

Auðunn Arnórsson, Jóhann Hauksson og Svanborg Sigmarsdóttir, Fréttablaðinu, fyrir upplýsandi og vandaða umfjöllun um ýmsar hliðar stjórnarskrármálsins undir heitinu „Stjórnarskrá Íslands endurskoðuð“.

Sigmar Guðmundsson, Kastljósinu, RÚV, fyrir að fylgja eftir á vandaðan hátt uppljóstrunum um kynferðislegt ofbeldi sem fram komu í bók um Thelmu Ásdísardóttur.

Sunna Ósk Logadóttir, Morgunblaðinu, fyrir ítarlega og greinargóða umfjöllun um rekstur og starfsemi Landspítala – háskólasjúkrahúss í kjölfar sameiningar.

RANNSÓKNARBLAÐAMENNSKA ÁRSINS 2005

Anna G. Ólafsdóttir, Morgunblaðinu, fyrir upplýsandi greinaflokk um fátækt og bresti í íslensku velferðarsamfélagi.

Jóhannes Kr. Kristjánsson, NFS, fyrir afhjúpandi umfjöllun í fréttaþættinum Kompási um sívaxandi hlut „læknadóps“ á fíkniefnamarkaði.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, Fréttablaðinu, fyrir úttekt á einkavæðingu ríkisbankanna og umtöluð fréttaskrif um aðkomu áhrifamanna í aðdraganda málaferla gegn forsvarsmönnum Baugs.

BLAÐAMANNAVERÐLAUN ÁRSINS 2005

Davíð Logi Sigurðsson, Morgunblaðinu, fyrir vönduð skrif um Afganistan, alþjóðasamstarf og stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna.

Gerður Kristný Guðjónsdóttir blaðamaður fyrir óhefðbundna blaðamennsku og ítarlegar rannsóknir við skrif á sögu Thelmu Ásdísardóttur „Myndin af pabba“.

Jón Björgvinsson, fréttaritari Útvarpsins, fyrir lifandi fréttaflutning af vettvangi heimsviðburða á hamfarasvæðum vítt og breitt um heiminn.

Verðlaunahafar og rök dómnefndar:

BESTA UMFJÖLLUN ÁRSINS 2005

Sunna Ósk Logadóttir, Morgunblaðinu, fyrir ítarlega og greinargóða umfjöllun um rekstur og starfsemi Landspítala – háskólasjúkrahúss í kjölfar sameiningar. Greinaflokkur unnu Óskar Logadóttur í Morgunblaðinu um spítala í spennitreyju dregur með skýrum og skiljanlegum hætti fram þann flókna veruleika sem rekstur Landspítala – háskólasjúkrahúss er. Þar birtast margir sjálfstæðir en þó samtengdir heimar, sem hver um sig hefur orðið að ganga í gegnum breytingar vegna sameiningar sjúkrahúsanna í Reykjavík og viðvarandi kröfu um aðhald og ráðdeild í rekstri. Um langt skeið hafa landsmenn orðið að láta sér duga brotakenndar fréttir, sem draga upp torskiljanlegar svipmyndir af starfsemi sjúkrahússins án þess að hafa haft möguleika á að skoða eða skilja samhengi heildarmyndarinnar. ú heildarmynd er einmitt dregin fram með einstökum hætti í greinaflokki unnu Óskar um leið og fjölmargar smærri fréttir og forvitnileg fyrirbæri koma í ljós þegar Landspítali - háskólasjúkrahús er skoðaður með kerfisbundum hætti.

RANNSÓKNARBLAÐAMENNSKA ÁRSINS 2005

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, Fréttablaðinu, fyrir úttekt á einkavæðingu ríkisbankanna og umtöluð fréttaskrif um aðkomu áhrifamanna í aðdraganda málaferla gegn forsvarsmönnum Baugs. Eitt mikilvægasta hlutverk blaðamannsins er að veita stjórnvöldum, hver svo sem þau eru, gagnrýnið aðhald. Þetta hefur ekki síst verið eitt meginviðfangsefni rannsóknarblaðamennskunnar sem veltir hlutum við og dregur fram mikilvæg atriði mála sem annars hefðu ekki legið ljós fyrir. Skrif Sigríðar Daggar Auðunsdóttur í Fréttablaðið um einkavæðingu ríkisbankanna og aðdraganda Baugsmálsins eru gott dæmi um slíka blaðamennsku. Í bankaumfjölluninni fór saman skilmerkileg framsetning og umfangsmikil úttekt á sölu ríkisbankanna, ferli þar sem um gríðarmikla almannahagsmuni var að tefla. Greinar Sigríðar Daggar vörpuðu nýju ljósi á ýmsa þætti málsins og hin víðtæka og heita umræða sem spratt upp í framhaldinu undirstrikaði þörfina á því að opna málið og að margt mætti af því læra varðandi einkavæðingu í framtíðinni. Í Baugsmálinu sýndi Sigríður af sér áræðni og nákvæmni í viðkvæmri og vandasamri úrvinnslu á tölvuskeytum sem Fréttablaðinu höfðu borist og gátu hafa skipt máli fyrir aðdraganda einnar umfangsmestu lögreglurannsóknar seinni ára. Hún fór ekki þá leið að birta hrá skeytin, heldur reyndi hún eftir mætti að sannreyna að þær óvæntu upplýsingar sem þar komu fram væru réttar. Hún sýndi góða blaðamennsku og uppsker verðlaun fyrir.

BLAÐAMANNAVERÐLAUN ÁRSINS 2005

Gerður Kristný Guðjónsdóttir blaðamaður fyrir óhefðbundna blaðamennsku og ítarlegar rannsóknir við skrif á sögu Thelmu Ásdísardóttur „Myndin af pabba“. Hinn háleiti kjarni blaðamennskunnar snýst um að leita sannleikans og segja frá honum með það að markmiði að þjóna almannaheill. Einstök bók Gerðar Kristnýjar Guðjónsdóttur, “Myndin af pabba”, er gott dæmi um þetta, enda hreyfði fátt annað eins rækilega við íslensku þjóðinni á síðasta ári. Kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum hefur verið falið þjóðfélagsmein sem vandasamt getur verið að fjalla um á opinberum vettvangi svo vel sé. Það var því ekkert sjálfgefið varðandi þann farveg og þann máta sem Gerður Kristný valdi til að koma þessari miklu og brýnu reynslusögu á framfæri við almenning. Það sem upphaflega hafði verið hugsað sem tímaritsgrein varð bók þar sem veruleiki kynferðisofbeldis er dregin fram svo enginn verður ósnortinn eftir.

Vinnubrögð Gerðar Kristnýjar einkenndust af traustri blaðamennsku, þar sem flettað var saman sjálfstæðri rannsóknarvinnu og viðtölum. Textinn er vel skrifaður og frásögnin einkennist af smekkvísi og nákvæmni. Hún velur áhrifaríkt form við að skrifa þessa miklu frétt þar sem viðmælandinn er alltaf í forgrunni.

Óhugnanlegur sannleikur um alvarlegan þjóðfélagsvanda og um samfélag sem brást var afhjúpaður í bókinni með víðtækum afleiðingum fyrir íslenskt þjóðfélag.

Blaðamannaverðlaun 2004

Tilnefningar dómnefndar:

RANNSÓKNARBLAÐAMENNSKA ÁRSINS 2004

Kristinn Hrafnsson, DV. Fyrir upplýsandi fréttir af örlögum íslensks drengs, Arons Pálma Ágústssonar, í fangelsi í Texas.

Ómar Þ. Ragnarsson, RÚV - Fréttastofu jónvarps. Fyrir að draga fram ný og óvænt sjónarhorn um umhverfisáhrif stórvirkjunar við Kárahnjúka.

Páll Benediktsson, RÚV – Í brennidepli. Fyrir umfjöllun um samfélag dósasafnara í Reykjavík.

BESTA UMFJÖLLUN ÁRSINS 2004

Bergljót Baldursdóttir, RÚV - Fréttastofu útvarpsins, Morgunvaktinni. Fyrir ítarlega og fróðlega úttekt á stöðu og velferð aldraðra.

Davíð Logi Sigurðsson, Morgunblaðinu. Fyrir skrif sín af vettvangi stríðsátaka í Írak og innsýn í daglegt líf fólksins þar.

Þórhallur Jósepsson, RÚV - Fréttastofu útvarpsins. Fyrir umfjöllun um Impregilo og starfsmannamál þess við Kárahnjúka.

BLAÐAMANNAVERÐLAUN ÁRSINS 2004

Árni Þórarinsson, Morgunblaðinu. Fyrir ítarlega og greinargóða fréttaskýringu um forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar í aðdraganda forsetakosninganna sl. sumar.

Gunnar Hersveinn, Morgunblaðinu/19. júní. Fyrir athyglisverð skrif um mannlíf á sviði jafnréttis-, uppeldis- og menntamála.

Sigríður D. Auðunsdóttir, Fréttablaðinu. Fyrir vandaðar og ítarlegar úttektir sem settar eru fram á myndrænan og skýran hátt.

Verðlaunahafar og rök dómnefndar:

RANNSÓKNARBLAÐAMENNSKA ÁRSINS 2004

Kristinn Hrafnsson, DV. Fyrir upplýsandi fréttir af örlögum íslensks drengs, Arons Pálma Ágústssonar, í fangelsi í Texas. Fréttir Kristins Hrafnssonar og DV af máli Arons Pálma Ágústssonar hristu rækilega upp í íslensku þjóðinni á síðasta ári og settu umræður um réttindi og stöðu barna í vestrænum lýðræðisríkjum í nýtt ljós. álið tvinnaði saman presónuleg örlög einstaklings og mikilvægar spurningar um þjóðfélagsleg grundvallaratriði. Þar á meðal voru spurningar um mismunandi sýn á réttarríkið, gildi Barnasáttmála ameinuðu þjóðanna og eðli refsinga og betrunar. álið krafðist vandaðra vinnubragða, rannsóknar og útsjónarsemi, enda þurfti að safna upplýsingum í stjórnkerfum og víðar bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi. Kristinn og DV fylgdu málinu vel eftir og tókst að halda aðalatriðum skýrum og auðskiljanlegum, þrátt fyrir að á köflum hafi óaðgengileg lagatæknileg atriði leikið stórt hlutverk í málinu.

BESTA UMFJÖLLUN ÁRSINS 2004

Bergljót Baldursdóttir, RÚV - Fréttastofu útvarpsins, orgunvaktinni. Fyrir ítarlega og fróðlega úttekt á stöðu og velferð aldraðra. Heildstæð úttekt orgunvaktarinnar á málefnum aldraðra í 12 þáttum í árslok 2004 dró fram fjölmargar óvæntar hliðar á kringumstæðum og þjóðfélagslegri stöðu þeirra sem komnir eru á eftirlaunaaldur – einkum þó þeirra sem þurfa á aðstoð að halda frá opinberum aðilum eða stofnunum. Aðalhöfundi þessa efnis, Bergljótu Baldursdóttur, tókst að bregða ljósi á ýmis atriði sem sjaldan hafa verið í opinberri umræðu, s.s. skert persónuréttindi aldraðra og ýmsar lítillækkandi aðstæður sem virðast kerfislægar. Málefni aldraðra voru skoðuð út frá fjölmörgum hliðum og studdi framsetning viðtala og önnur úrvinnsla vel við megininntak umfjöllunarinnar. Það jók enn á gildi þáttaraðarinnar að þar kom fram merkileg “hörð” frétt um einstakt tilvik þar sem gamall maður á öldrunarstofnun hafði fengið aðsvif, dottið og slasast. Hann lést síðan af völdum meiðslanna og voru ættingjar mjög óánægðir með viðbrögð starfsfólks og var málið í kjölfarið kært.

BLAÐAMANNAVERÐLAUN ÁRSINS 2004

Árni Þórarinsson, orgunblaðinu. Fyrir ítarlega og greinargóða fréttaskýringu um forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar í aðdraganda forsetakosninganna sl. sumar. Fréttaskýring Árna Þórarinssonar sem birtist í tvennu lagi í Tímariti orgunblaðsins og fjallaði um forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar í aðdraganda forsetakosninganna eru dæmi um mjög vandaða blaðamennsku. Þar er tekið á þjóðfélagslega mikilvægu en jafnframt mjög eldfimu máli af festu og hlutlægni og nýju ljósi varpað á viðfangsefni sem almenningur hefur haft daglega fyrir augum og taldi sig þekkja til hlítar. Fréttaskýringin var sérstaklega vel skrifuð - eins og raunar flestar greinar Árna - og hún bar vitni vandaðrar og víðtækrar bakgrunnsvinnu. ú rannsóknarvinna skilaði sér m.a. í því að fjölmörg ný atriði varðandi forsetann og forsetatíð hans komu fram í dagsljósið. Það þarf kjark til að ráðast í vandasamt verkefni eins og þetta á svo viðkvæmum tímapunkti og það þarf frábæra blaðamennsku til að klára það jafn vel og raun bar vitni.

Blaðamannaverðlaun 2003

Tilnefningar dómnefndar:

RANNSÓKNARBLAÐAMENNSKA ÁRSINS:

Brynhildur Ólafsdóttir, Stöð 2, fyrir öfluga umfjöllun um varnarmál og boðaða brottför hersins.

Guðrún Helga Sigurðardóttir, Frjáls verslun, fyrir kortlagningu á viðskiptaveldi Gaums, sem sett var fram á myndrænan og skýran hátt.

Þórhallur Gunnarsson og Jóhanna ilhjálmsdóttir, Stöð 2, fyrir umfjöllun sína í Íslandi í bítið um kynlífsmarkaðinn hér á landi þar sem m.a. var flett ofan af ólöglegu vændi í bílskúr í Hafnarfirði.

BESTA UMFJÖLLUN ÁRSINS:

Agnes Bragadóttir og Ómar Friðriksson, Morgunblaðinu, fyrir ítarlega umfjöllun um skattamál Jóns Ólafssonar.

Reynir Traustason, Fréttablaðinu, fyrir frumkvæði og heildstæða umfjöllun um rannsókn Samkeppnisstofnunar á samráði olíufélaganna.

Unnur Hrefna Jóhannsdóttir, Mannlífi, fyrir upplýsandi úttekt þar sem ljósi er varpað á þann grimma veruleika, sem HIV smitaðir einstaklingar á Íslandi búa við.

BLAÐAMANNAVERÐLAUN ÁRSINS

Agnes Bragadóttir, Morgunblaðinu, fyrir afhjúpandi greinaflokk sinn Baráttan um Íslandsbanka og hennar hlut í umfjöllun blaðsins um skattamál Jóns Ólafssonar.

Björn Jóhann Björnsson, Morgunblaðinu, fyrir hlutlæg og umfangsmikil skrif um stóriðju og virkjanamál á tilfinningaþrungnum umbrotatímum.

Reynir Traustason, Fréttablaðinu, fyrir beitt fréttaskrif og forystu í fréttaumfjöllun um samráð olíufélaganna og rannsókn Samkeppnisstofnunar.

Verðlaunahafar og rökstuðningur dómnefndar:

RANNSÓKNARBLAÐAMENNSKA ÁRSINS:

Brynhildur Ólafsdóttir, Stöð 2, fyrir öfluga umfjöllun um varnarmál og boðaða brottför hersins. Fréttir Brynhildar um herstöðvarmálið og fyrirhugaðan niðurskurð í varnarviðbúnaði á Keflavíkurflugvelli síðast liðið sumar vörpuðu nýju ljósi á samskipti íslenskra og bandarískra stjórnvalda og drógu meðal annars fram að málið hafði verið á borði ríkisstjórnarinnar frá því viku fyrir kosningarnar í maí. ið vinnslu þessara frétta þurfti Brynhildur að velta við steinum bæði hér á landi og í Bandaríkjunum, enda var sumt af því sem hún fjallaði um flokkað sem trúnaðarmál. Unnið var úr þessum rannsóknum af þekkingu og fagmennsku og því tókst henni að flytja landsmönnum áhugaverðar fréttir sem skiptu allan almenning verulegu máli.

BESTA UMFJÖLLUN ÁRSINS:

Reynir Traustason, Fréttablaðinu, fyrir frumkvæði og heildstæða umfjöllun um rannsókn Samkeppnisstofnunar á samráði olíufélaganna. Fréttir Reynis Traustasonar þar sem greint var frá niðurstöðum úr frumskýrslu Samkeppnisstofnunar settu allt samfélagið á annan endann í fyrrasumar. Ekki eingöngu sýndi Reynir útsjónarsemi við að komast yfir þessar fréttnæmu upplýsingar heldur fylgdi í kjölfarið umfjöllun af hans hálfu sem undirstrikar yfirsýn og skilning á hversu víðtæk áhrif þetta samráð hafði. Dögum saman leiddi Reynir með fréttum sínum af málinu umræðuna í þjóðfélaginu, og velti upp fjölmörgum flötum í málinu í eftirtektarverðri eftirfylgni með málinu. Þar komu við sögu hagsmunaaðilar í samgöngum og sjávarútvegi, stjórnmálamenn jafnt á landsvísu og í sveitarstjórnum, landamæradeilur Samkeppnisstofnunar og Ríkislögreglustjóra, og spurningin um fyrningu meintra saka vegna samkeppnislagabrota.

BLAÐAMANNAVERÐLAUN ÁRSINS 2003

Agnes Bragadóttir, Morgunblaðinu, fyrir afhjúpandi greinaflokk sinn Baráttan um Íslandsbanka og hennar hlut í umfjöllun blaðsins um skattamál Jóns Ólafssonar.

Greinaflokkur Agnesar Bragadóttur ,,Baráttan um Íslandsbanka” sem birtist í Morgunblaðinu í febrúar sameinar flest það sem einkennir vandaða blaðamennsku – fréttnæmi, dýpt, hlutlægni og framsetningu. Þar var upplýst um ótrúleg baksviðsátök í íslensku viðskiptalífi og dregin upp heildstæð mynd af veruleika sem flestum landsmönnum hafði verið hulinn áður. Mjög mikið af nýjum upplýsingum kom þarna fram og var allur þessi fróðleikur settur í samhengi þannig að skilningur almennings á hinum nýja og gjörbreytta veruleika íslensks viðskiptalífs er nú allur annar en áður. Greinarflokkurinn er í raun einstakt afrek og þegar til viðbótar kemur að Agnes er annar tveggja meginhöfunda annars stórs blaðamáls á síðasta ári, sem er umfjöllun Morgunblaðsins um skattamál Jóns Ólafssonar, þá er ljóst að Blaðamannaverðlaun ársins 2003 falla henni í skaut.