Sjálfstætt starfandi blaðamenn

BÍ tryggir rétt sjálfstætt starfandi félaga sinna


Leiðbeinandi taxti fyrir sjálfstætt starfandi blaðamenn í BÍ

Réttindamál

Staða sjálfstætt starfandi er að mörgu leyti ólík stöðu launafólks. Lög og kjarasamningar tryggja launafólki ýmis réttindi sem ná almennt ekki til þeirra sem starfa sjálfstætt.

Sjálfstætt starfandi njóta til dæmis ekki:

  • launa í orlofi
  • orlofs- og desemberuppbótar
  • launa á viðurkenndum frídögum
  • slysatryggingar
  • launa í veikindum

Þetta er mikilvægt að hafa í huga þegar endurgjald er ákveðið, sjá kaflann um leiðbeinandi taxta hér fyrir neðan.

Leiðbeinandi taxti

 Blaðamannafélag Íslands gefur út leiðbeinandi verðskrá fyrir sjálfstætt starfandi blaðamenn sem starfa í verktöku. Til þess að tryggja að sjálfstætt starfandi félagsmenn njóti sömu kjara og réttinda og launþegar (orlof og orlofsuppbót, þriggja mánaða leyfi, lögbundnir frídagar o.fl.) er nauðsynlegt að bæta ofan á laun álagi til að mæta kostnaði sem fellur á verktakann, m.a. vegna launatengdra gjalda.

  Ef miðað er við hæstu laun í launatöflu BÍ 2025, sem eru mánaðarlaun upp á kr. 832.215 (sem er með við 21% vaktaálagi) er leiðbeinandi tímagjald því kr. 7.754 án VSK (ath. að ritstörf eru undanþegin VSK). Meðallaun blaðamanna eru þó hærri en sem nemur launatöflu, sé miðað við nýjustu launakönnun.

Miðað við hæstu laun

Hér má sjá forsendur fyrir útreikningum á tímagjaldi á útseldri vinnu m.v. mánaðarlaun skv. launatöflu:

Liður | Hlutfall / forsenda | Kr.

Mánaðarlaun m.v. launatöflu | | 832.215

Mótframlag í lífeyrissjóð | 11,50% | 95.705

Mótframlag í séreign | 2% | 16.644

Iðgjöld í sjóði BÍ | 4,40% | 36.617

Samtals | | 981.181

Tryggingagjald | 6,35% | 62.305

Orlofsdagar (30 daga orlofsréttur) | 13,04% | 69.351

Tryggingar | 2,8% | 23.302

Rauðir dagar | 4,62% | 38.448

Þriggja mánaða leyfi | uppsöfnun 7 dagar á ári m.v. réttindi á 5 ára fresti | 22.402

Orlofs- og desemberuppbót | 176.000 | 14.667

Áskriftir, sími, net skv. kjarasamn. | 29.000 | 29.000

Samtals laun, launatengd gjöld og annar kostnaður | | 1.240.657

Tímagjald | 160 klst. | 7.754

Með vsk* | 24% | 9.615

*Ath. að ritstörf eru undanþegin VSK. Auk þess er velta undir kr. 2.000.000 undanþegin VSK.

Miðað við framangreindar upphæðir og hlutföll má ætla að bæta þurfi um 50% á greiðslur til sjálfstætt starfandi til að staða þeirra verði sambærileg við stöðu launafólks. Þar er þó ekki tekið tillit til ýmissa útgjalda sem sjálfstætt starfandi bera sjálfir, svo sem aksturskostnaðar, rekstrarkostnaðar vegna bókhalds, innheimtu, búnaðar og verkfæra. Að auki þarf að gera ráð fyrir föstum kostnaði á borð við leigu, rafmagn, netaðgang og annan rekstrarkostnað sem fellur til við framkvæmd verksins.

Í sumum tilvikum leigja sjálfstætt starfandi einstaklingar sér sameiginlega vinnuaðstöðu, sem einnig þarf að endurspeglast í endurgjaldi. Þá ber jafnframt að hafa í huga að sjálfstætt starfandi þurfa oft að reikna biðtíma milli verkefna inn í þau verk sem þeir taka að sér.

Upptalning þessi er ekki tæmandi, en ætti engu að síður að varpa ljósi á helstu þætti sem nauðsynlegt er að hafa í huga við mat á endurgjaldi til sjálfstætt starfandi.

Iðgjöld í sjóði

Sjálfstætt starfandi blaðamenn hafa engan launagreiðanda sem greiðir iðgjöld fyrir þá. Þeir greiða því sjálfir bæði sinn hlut og þann hlut sem launagreiðandi greiðir annars. Þeir sem greiða iðgjöld öðlast rétt til styrkja og greiðslna úr sjóðum BÍ, t.d. sjúkradagpeninga úr Styrktarsjóði, þegar greitt hefur verið í sex mánuði.

Gjald | Hlutfall

Félagsgjald | 1%

Styrktarsjóður | 1%

Orlofssjóður | 0,5%

Endurmenntunarsjóður | 0,7%

Menningarsjóður | 1,2%

Samtals | 4,4%

Iðgjöldin reiknast af reiknuðu endurgjaldi, þ.e. þeim launum sem sjálfstætt starfandi reikna sér. Þau eru greidd með millifærslu eða beingreiðslu samkvæmt samkomulagi við skrifstofu BÍ.

Réttindi miðast við þau laun sem iðgjöld eru greidd af. Ef reiknað endurgjald er lágt verða sjúkradagpeningar og aðrar greiðslur líka lágar.


Útreikningar

Veikindaréttur og sjúkradagpeningar sjálfstætt starfandi blaðamanna

Veikindaréttur og sjúkradagpeningar

Langtímaveikindi


Um greiðslu sjúkradagpeninga til sjálfstætt starfandi blaðamanna gilda sömu reglur og launafólks. Styrktarsjóður tryggir laun í þrjá mánuði til viðbótar kjarasamningsbundnum réttindum.


Sjálfstætt starfandi blaðamenn þurfa að standa skil á greiðslum til sjálfs sín jafnlengi og ef um launagreiðanda væri að ræða, skv. kjarasamningi. Styrktarsjóður BÍ tekur við að þeim réttindum loknum.


Almennum launþegum eru tryggð laun í veikindum, og safna þeir sér auknum réttindum eftir lengd í starfi. Atvinnurekendum ber að tryggja launafólki minnst þrjá mánuði á fullum launum og þrjá mánuði á hálfum launum og lengst 6 mánuði á fullum launum og sex mánuði á hálfum launum. Greiðslur sjúkradagpeninga BÍ nema 80% af grunni inngreiðslna sjóðfélaga í sjóðinn síðustu 12 mánuði áður en greiðslur féllu niður, þó að hámarki skal miðað við 80% hámarkslauna skv. kjarasamningi.


Þau sem eru sjálfstætt starfandi og sækja um sjúkradagpeninga hjá Styrktarsjóði BÍ þurfa að skila inn eftirfarandi gögnum:


  • Sjúkradagpeningavottorð frá lækni
  • Yfirlýsingu um launaleysi eða staðfestingu frá tryggingafélagi um greiðslur vegna launamissis.
  • Veikindavottorð, dagsett við upphaf veikinda.


Tryggingar

Sjálfstætt starfandi blaðamenn njóta hvorki launa í veikindum né slysatryggingar launagreiðanda og þurfa því sjálfir að tryggja sig fyrir tekjutapi.

Fyrstu mánuðir veikinda. Sjúkradagpeningar Styrktarsjóðs taka ekki við fyrr en að loknu því tímabili sem launagreiðandi hefði greitt laun samkvæmt kjarasamningi (sjá kaflann um veikindarétt hér að ofan). Því er mikilvægt að kaupa tryggingu sem bætir tekjutap vegna veikinda og slysa á þeim tíma. Tryggingafélögin bjóða sérstakar tryggingar fyrir sjálfstætt starfandi. Berðu saman hve lengi þær greiða, hve háar bæturnar eru og hve langur biðtíminn er.

Aðrar tryggingar sem vert er að huga að:

  • Slysatrygging, í starfi og frítíma
  • Sjúkdómatrygging
  • Starfsábyrgðartrygging
  • Trygging fyrir tæki og búnað, t.d. myndavélar, tölvur og upptökubúnað

Gerviverktaka

Hér birtist sjálfkrafa Yfirlýsing vegna verktakavinnu úr kjarasamningi BÍ og SA.

Virðisaukaskattur

Ritstörf blaðamanna eru undanþegin virðisaukaskatti. Sjálfstætt starfandi blaðamenn innheimta því ekki virðisaukaskatt af ritstörfum sínum og þurfa ekki að skrá sig á virðisaukaskattsskrá vegna þeirra.

Undanþágan byggir á 12. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988, þar sem undanþegin er „starfsemi rithöfunda og tónskálda við samningu hugverka og sambærileg liststarfsemi“.

Önnur þjónusta getur verið skattskyld, t.d. ljósmyndun, ráðgjöf, prófarkalestur eða útleiga búnaðar. Þá ber að skrá sig á virðisaukaskattsskrá ef velta af henni fer yfir 2.000.000 kr. á 12 mánaða tímabili.

Heimildir: Lög um virðisaukaskatt nr. 50/1988 · Skatturinn