
Styrkir og sjóðir BÍ
Sjóðir BÍ styrkja félagsmenn í lífi og starfi
Félagsmenn BÍ geta sótt um styrki vegna náms, veikinda, heilsueflingar, menningarverkefna, endurmenntunar og fleiri þátta sem tengjast lífi og störfum blaðamanna. Hér finnur þú yfirlit yfir helstu styrki sem eru í boði og hvernig á að sækja um þá.
Samkvæmt kjarasamningi BÍ greiða atvinnurekendur í fjóra sjóði í eigu Blaðamannafélagsins, sem sjóðfélagar geta sótt um styrki í skv. sérstökum úthlutunarreglum. Atvinnurekendur greiða tiltekinn hluta af launum starfsfólks í sjóðina, en nánari upplýsingar um úthlutunarreglur, stjórnir og leiðbeiningar um umsóknir er að finna á síðum sjóðanna sjálfra.
Samkvæmt kjarasamningi BÍ greiða atvinnurekendur í fjóra sjóði í eigu Blaðamannafélagsins, sem sjóðfélagar geta sótt um styrki í skv. sérstökum úthlutunarreglum. Atvinnurekendur greiða 1,2% ofan á laun í menningarsjóð, 1% í styrktarsjóð, 0,7% í endurmenntunarsjóð og 0,25% í orlofsheimilasjóð.
Hér eru upplýsingar um þá styrki sem eru í boði. Smelltu á heiti styrks til að sjá nánar.
Hvernig sæki ég um? Veldu styrkinn hér að neðan og smelltu á „Sækja um“. Þá opnast umsókn fyrir réttan sjóð. Umsóknir fara í gegnum örugga gátt með rafrænum skilríkjum (Signet). Hafðu kvittanir og önnur gögn tilbúin.
Flokkur: Nám og endurmenntun – Námskeið, ráðstefnur, háskólanám og ferðir þeim tengdar.
Flokkur: Heilsa og forvarnir – Heilsuefling, skoðanir, meðferðir og hjálpartæki.
Flokkur: Veikindi og mikil útgjöld – Laun í veikindum og stuðningur vegna mikils kostnaðar.
Flokkur: Fjölskylda – Fæðing, ættleiðing, tæknifrjóvgun og dánarbætur.
Flokkur: Verkefni og leyfi – Verkefnastyrkir og styrkur í þriggja mánaða leyfi.
Menningarsjóður
Menningarsjóðsstyrkur (vegna þriggja mánaða leyfis)
Upphæð: 425.000 kr. eða 560.000 kr. eftir starfsaldri (fjárhæð 2024)
Flokkur: Verkefni og leyfi
Fastráðnir félagar sem greiða iðgjöld í Menningarsjóð eiga rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum þegar þeir eiga rétt á 3ja mánaða leyfi, samkvæmt kjarasamningum BÍ. Styrkur árið 2024 er 425 þús. fyrir félagsmenn sem hafa styttri en 18 ára starfsaldur og 560 þús. fyrir félaga með lengri starfsaldur en 18 ár.
Verkefnastyrkir
Upphæð: Hámark 500.000 kr. á fjórum árum · úthlutað í apríl og október
Flokkur: Verkefni og leyfi
Félagsmenn geta sótt um styrki vegna sérstakra verkefna tengdum blaðamennsku. Verkefnastyrkir Menningarsjóðs BÍ eru veittir tvisvar á ári, í apríl og október og auglýsir skrifstofa BÍ eftir umsóknum. Stjórn Menningarsjóðs metur umsóknir og tekur ákvarðanir um úthlutun styrkja.
Styrkirnir eru veittir til blaðamennskustarfa en ekki til útgáfu á verkum, kynningar eða annars kostnaðar.
Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar og gögn eftir því sem við á: Kynning á blaðamanni og starfsferli, til hvaða starfa er sótt um styrk, afrit af samningi við útgefanda eða framleiðanda, upplýsingar um verkefni og sýnishorn úr handriti, hvort umsækjandi þiggi laun eða aðra styrki. Mikilvægt er að láta öll gögn sem stutt geta við umsókn, sbr. afrit af útgáfusamningi eða sýnishorn úr handriti, fylgja með umsókn. Stjórn sjóðsins er heimilt að leggja til sérstakt eyðublað sem skal nýtt vegna umsókna um styrki.
Þeir blaðamenn ganga fyrir um styrk sem ekki þiggja aðra starfsstyrki eða laun fyrir verkefni sitt. Við mat á umsóknum hefur stjórn Menningarsjóðs BÍ til viðmiðunar að umsækjandi hafi ekki fengið styrk frá menningarsjóði BÍ síðustu 24 mánuðina. Að öðru jöfnu skulu þeir ganga fyrir um styrki sem:
- hafa ekki áður fengið verkefnastyrk frá Menningarsjóði BÍ - hafa lítil eða engin tök á að sækja í aðra sjóði en Menningarsjóð BÍ.
Hámarksupphæð styrks á fjögurra ára tímabili er 500 þúsund krónur.
Endurmenntunarsjóður
Styrkir vegna námskeiðsgjalda
Upphæð: Allt að 75% · hámark 200.000 kr.
Flokkur: Nám og endurmenntun
Sjóðurinn veitir styrki til að sækja námskeið innanlands og erlendis.
Greitt er allt að 75% námskeiðsgjalds, hámark 200.000 kr.
Styrkir vegna ráðstefna
Upphæð: Allt að 75% · hámark 200.000 kr.
Flokkur: Nám og endurmenntun
Sjóðurinn styrkir félaga til að taka þátt í ráðstefnum og málþingum bæði innanlands og utan. Greitt er allt að 75% þátttökugjalds, hámark 200.000 kr.
Ferðastyrkir vegna námskeiða eða ráðstefna
Upphæð: Allt að 75% · hámark 100.000 kr. á 24 mánuðum
Flokkur: Nám og endurmenntun
Ferðakostnaður vegna menntunar eða endurmenntunar er styrkhæfur.
Greitt er allt að 75% af fargjaldi og gistikostnaði í tengslum við þátttöku í námskeiði, ráðstefnu eða málþingi að hámarki 100.000 kr á 24 mánaða tímabili.
Styrkur vegna háskólanáms
Upphæð: Allt að 75% · hámark 300.000 kr.
Flokkur: Nám og endurmenntun
Veittir eru styrkir vegna náms til eininga á háskólastigi hérlendis og erlendis, eins og nánar greinir hér á eftir, samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins. Skrásetningargjöld og námsgjöld teljast styrkhæfur kostnaður.
Greitt er allt að 75% af kostnaði náms, að hámarki 300.000 kr.
Nám við Norrænu blaðamannamiðstöðina (NJC)
Upphæð: Allt að 75% · hámark 300.000 kr.
Flokkur: Nám og endurmenntun
Félagsmenn geta sótt um styrk vegna náms eða námskeiða við Norrænu blaðamannamiðstöðina NJC í Árósum í Danmörku.
Greitt er allt að 75% af kostnaði náms, að hámarki 300.000 kr.
Styrktarsjóður
Styrkir vegna heilbrigðisþjónustu eða heilsueflingar:
Laun í veikindum
Upphæð: 80% launa í 3 mánuði til viðbótar kjarasamningsbundnum rétti
Flokkur: Veikindi og mikil útgjöld
Styrktarsjóður tryggir laun í þrjá mánuði til viðbótar kjarasamningsbundnum réttindum, sem nema 80% af grunni inngreiðslna sjóðfélaga í sjóðinn síðustu 12 mánuði áður en greiðslur féllu niður, þó að hámarki skal miðað við 80% hámarkslauna skv. kjarasamningi (árið 2025 er hámarksupphæð sjúkradagpeninga kr. 643 þúsund á mánuði). Sjóðfélaga er heimilt að fá greiðslur úr styrktarsjóði BÍ á sama tíma og greiðslur sjúkradagpeninga frá Sjúkratryggingum Íslands án þess að þær skerði styrk úr sjóðnum.
Heilsuefling
Upphæð: Allt að 50% · hámark 20.000 kr. á ári
Flokkur: Heilsa og forvarnir
Veittur er styrkur vegna heilsueflingar sem getur numið allt að helmingi kostnaðar, þó ekki hærri en sem nemur 20 þúsund krónum á hverju almanaksári gegn framvísun frumrits reiknings. Ákvörðunin gildir vegna útgjalda sem stofnað hefur verið til á árinu. Ekki er endurgreitt vegna tækja- eða útbúnaðarkaupa.
Fæðingar og ættleiðingarstyrkir
Upphæð: 150.000 kr.
Flokkur: Fjölskylda
Veittir eru styrkir vegna fæðingar barns eða ættleiðingar að upphæð 150 þúsund krónur.*
*Um greiðslu fæðingarstyrkja gildir að leggja þarf fram greiðsluáætlun frá fæðingarorlofssjóði Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslur frá sjóðnum í fæðingarorlofi.
Tæknifrjóvganir
Upphæð: 50% skv. gjaldskrá SÍ · hámark 160.000 kr.
Flokkur: Fjölskylda
Heildarstyrkur vegna tæknifrjóvgunar sem nemur 50% af kostnaði skv. gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands, þó að hámarki 160 þúsund krónur. (Það er að segja það er aldrei hægt að fá meira en 160 þúsund krónur samanlagt úr sjóðnum undir þessum lið).
Hjartaskoðun
Upphæð: 50% kostnaðar
Flokkur: Heilsa og forvarnir
Eftirlit vegna hjartasjúkdóma er greitt að hálfu.
Sjúkraþjálfun og nudd
Upphæð: 50% · hámark 30.000 kr. á ári
Flokkur: Heilsa og forvarnir
Sjóðurinn greiðir helming kostnaðar vegna sjúkraþjálfunar og sjúkranudds hjá faglega viðurkenndum aðila sem hefur löggildingu viðkomandi starfsstéttar frá landlækni að hámarki 30 þúsund krónur á ári.
Endurhæfing
Upphæð: 50% kostnaðar (H-L stöðin)
Flokkur: Heilsa og forvarnir
Greiddur er helmingur kostnaðar vegna endurhæfingar hjá H-L stöðinni.
Krabbameinsskoðun
Upphæð: 50% kostnaðar
Flokkur: Heilsa og forvarnir
Krabbameinsskoðanir eru greiddar að hálfu.
Tannlæknakostnaður
Upphæð: 50% kostnaðar umfram 200.000 kr. · hámark 200.000 kr.
Flokkur: Heilsa og forvarnir
Greiddur er eingreiðslustyrkur sem nemur 50% kostnaðar umfram 200 þúsund krónur vegna tannlæknakostnaðar af heilsufarsástæðum. Styrkur getur aldrei orðið hærri en 200 þúsund krónur undir þessum lið.
Sálfræðikostnaður
Upphæð: 7.500 kr. á skipti, 15 skipti · hámark 112.500 kr. á ári
Flokkur: Heilsa og forvarnir
Greitt er allt að 112.500 krónur á ári samkvæmt nánari reglum. Greitt fyrir 15 skipti á hverjum tólf mánuðum að hámarki 7.500 krónur fyrir hvert skipti.
Gleraugnastyrkur
Upphæð: Allt að 50% · hámark 40.000 kr. á 36 mánaða fresti
Flokkur: Heilsa og forvarnir
Tekið er þátt í kostnaði vegna kaupa á gleraugum sem nemur allt að 50% kostnaðar samkvæmt framlögðu frumriti reiknings allt að 40 þúsund krónur á 36 mánaða fresti.
Heyrnartækjastyrkur
Upphæð: Allt að 50% · hámark 200.000 kr. á 4 ára fresti
Flokkur: Heilsa og forvarnir
Tekið er þátt í kostnaði vegna kaupa á heyrnartækjum sem nemur allt að 50% kostnaðar samkvæmt framlögðu frumriti reiknings allt að 200 þúsund krónur að frádregnum styrk frá Sjúkratryggingum. Sækja má um styrk á fjögurra ára fresti.
Lasermeðferð á augum
Upphæð: 75.000 kr. á hvort auga
Flokkur: Heilsa og forvarnir
Greiddur er 75 þúsund króna styrkur vegna aðgerðar á hvoru auga. Sama gildir fyrir augasteinaskipti.
Heilsustofnun
Upphæð: Allt að 50% · hámark 150.000 kr. á 48 mánuðum
Flokkur: Heilsa og forvarnir
Greitt er vegna dvalar á viðurkenndum heilsustofnunum innanlands að læknisráði allt að 50% kostnaðar þó ekki meira en 150 þúsund krónur á hverjum 48 mánuðum.
Göngumæling og innlegg
Upphæð: 75% · hámark 20.000 kr.
Flokkur: Heilsa og forvarnir
Greidd eru 75% kostnaðar, þó að hámarki 20 þúsund krónur vegna göngumælingar og innleggja samkvæmt læknisráði. Sambærileg endurgreiðsla vegna annarra minniháttar hjálpartækja.
Dánarbætur
Upphæð: 400.000 kr.
Flokkur: Fjölskylda
Sjóðurinn greiðir dánarbætur vegna andláts sjóðfélaga og barna þeirra. Styrkfjárhæð nemur 400 þúsund krónum
Mikil útgjöld vegna heilbrigðisþjónustu
Upphæð: Stjórn sjóðsins metur hverja umsókn
Flokkur: Veikindi og mikil útgjöld
Ef um mikil útgjöld er að ræða vegna heilbrigðisþjónustu, sem ekki fellur undir neinn lið hér að ofan er hægt að sækja sérstaklega um styrk vegna hluta kostnaðar til stjórnar sjóðsins. Umsókn skal studd gögnum, t.d. tilvísun, vottorð og/eða greinargerð frá lækni, sem og reikningum vegna útlagðs kostnaðar.
Styrktarsjóður
Styrkir vegna veikinda, heilsu, endurhæfingar, sjúkradagpeninga og heilbrigðiskostnaðar.
Reglugerðir og úthlutunarreglur
Allar reglugerðir og úthlutunarreglur sjóða BÍ á einum stað.
Menningarsjóður
Styrkir vegna sérstakra verkefna í blaðamennsku, þriggja mánaða leyfis og styrkir til lausamanna.
Endurmenntunarsjóður
Styrkir vegna náms, námskeiða, ráðstefna, fræðsluferða og endurmenntunar, bæði innanlands og erlendis.
