Um Endurmenntunarsjóð
Langar þig að bæta við þig námi, fara á námskeið, ráðstefnu eða sækja þér annars konar þekkingu innanlands eða erlendis?
Endurmenntunarsjóður BÍ aðstoðar félagsfólk við að styrkja sig í sínu fagi, bæði með því að halda námskeið og fræðsluviðburði og með því að greiða sjóðfélögum styrk til að sækja sér endurmenntun.
Endurmenntunarsjóður Blaðamannafélags Íslands styrkir endurmenntun og fræðslu félagsfólks með margvíslegum hætti. Sjóðurinn veitir m.a. styrki til náms á háskólastigi, námskeiða, ráðstefna, málþinga, fræðslu- og kynnisferða innanlands og erlendis.
Nánar:
Reglugerð Endurmenntunar- og háskólasjóðs ·
Hver á rétt?
Sjóðfélagar Endurmenntunarsjóðs geta sótt um styrki til náms og endurmenntunar, innanlands og erlendis.
Hámarksstyrkur er 300.000 kr., miðað við fullan rétt í sjóðnum, á 24 mánaða tímabili. Félagsfólk af landsbyggðinni getur auk þess fengið jöfnunarstyrk til að sækja einn viðburð eða námskeið á vegum BÍ á ári.
Svona sækir þú um
- Skoðaðu hvaða styrkir eru í boði og reglurnar sem um þá gilda.
- Hafðu greiðslukvittanir og staðfestingu á þátttöku eða námi tilbúnar.
- Sæktu um rafrænt í gegnum örugga gátt (Signet) með rafrænum skilríkjum.
Styrkir í boði
Listinn hér birtist sjálfkrafa úr síðunni Styrkir og sjóðir (línurnar „Upphæð:“ undir hverjum styrk).
