Lög og reglur sem tengjast blaðamennsku
Störf blaðamanna byggja á skýrum lagaramma sem ver tjáningar- og upplýsingafrelsi en setur fjölmiðlum jafnframt skyldur. Ramminn nær allt frá landslögum um fjölmiðla og Ríkisútvarpið til reglna um aðgang að upplýsingum, ritstjórnarlegt sjálfstæði og eftirlit með fjölmiðlum.
Lögin ramma inn starfsemi allra fjölmiðla Íslandi. Þau styðja við tjáningarfrelsi, upplýsingarétt og fjölbreytni í fjölmiðlun.
Tryggja aðgang að gögnum til að auka gagnsæi í stjórnsýslu, upplýsingarétt og efla aðhaldshlutverk fjölmiðla.
Lögin marka hlutverk RÚV og styðja lýðræðislega umræðu, auka menningarlega fjölbreytni og félagslega samheldni.
Ritstjórnarlegt sjálfstæði er einn af hornsteinum blaðamennsku. Fjölmiðlaveitur skulu setja sér reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði.
Lög Blaðamannafélags Íslands eru grundvallarreglur félagsins og lýsa tilgangi þess, skipulagi og starfsemi. Lögin eru samþykkt á aðalfundi.
Starfsreglur fjölmiðlanefndar útlista hvernig hún sinnir eftirlitshlutverki sínu. Þar er kveðið á um meðferð erinda, kvartana og þagnarskyldu.

