BÍ veitir verðlaun fyrir blaðaljósmyndun og blaðamennsku á hverju ári. Félagar sem hafa helgað sig blaðamennsku í 40 ár eða meira hljóta sömuleiðis heiðursmerki félagsins, Gullmerki BÍ.
Þau sem sköruðu fram úr í faginu hljóta Blaðamannaverðlaun fyrir störf sín á hverju ári.
Blaðaljósmyndarafélag Íslands veitir árlega verðlaun fyrir bestu frétta- og blaðaljósmyndir ársins.
Þeir félagar sem hafa helgað lífsstarf sitt blaðamennsku í fjóra áratugi eða meira eru sæmdir Gullmerki BÍ.
Til viðurkenningar fyrir framúrskarandi frammistöðu og gott fordæmi í íslenskri fjölmiðlun veitir BÍ Blaðamannaverðlaun í fjórum flokkum: Rannsóknarblaðamennska, umfjöllun, viðtal og Blaðamannaverðlaun ársins.
Veitt eru heiðursskjöl fyrir hvern flokk, minjagripur og vegleg peningaverðlaun. Tilnefndir blaðamenn fá sömuleiðis viðurkenningar og metur dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna tilnefningar og verðlaunahafa.

verðlaunahafar ársins 2025

verðlaunahafar ársins 2025

verðlaunahafar ársins 2025
Myndir ársins er árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands sem haldin er í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Á sýningunni eru myndir frá liðnu ári sem valdar hafa verið af óháðri dómnefnd úr 800 innsendum myndum íslenskra blaðaljósmyndara. Verðlaun eru veitt fyrir fréttamynd ársins og mynd ársins.
forsætisráðherra nær sjálfu með borgarstjóra, forseta og biskupi
Kjartan þorbjörnsson (Golli)
Alls voru 14 félagar BÍ síðast heiðraðir með Gullmerki félagsins fyrir að hafa helgað lífsstarf sitt blaðamennsku. Merkið hefur verið veitt á um það bil fimm ára fresti frá árinu 1982.

Heiðursfélagar ársins 2026
Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður BÍ, Þorsteinn J. Vilhjálmsson, Sigurður Már Jónsson, Broddi Broddason, Skapti Hallgrímsson, Páll H. Ketilsson, Jón G. Hauksson, Gísli Sigurgeirsson, Guðmundur Sv. Hermannsson, Bogi Ágústsson, Arnar Páll Hauksson, Árni Sæberg og Friðrik Þór Guðmundsson. Ekki á mynd: Helgi Bjarnason og Hjálmar Jónsson.
Ljósmynd: Eggert Jóhannesson

Arnar Páll Hauksson og Árni Sæberg ánægðir með viðurkenninguna.