Undirdeildir BÍ

Þrjár undirdeildir eru starfandi innan BÍ. Hver deild starfar að sérhæfðum hagsmunamálum félagsmanna sinna og eflir faglega umræðu á sínu sviði.

Blaðaljósmyndarafélag Íslands er félag innan Blaðamannafélags Íslands. Félagsmenn verða því að vera gildir meðlimir í Blaðamannafélaginu og hafa atvinnu af ljósmyndun fyrir fjölmiðla. Félagið var stofnað til að stuðla að heilbrigðu samstarfi innan stéttarinnar, til að bæta aðstöðu og aðgengi blaðaljósmyndara og berjast fyrir málum sem koma blaðaljósmyndurum við.



Félagið heldur sýninguna Myndir ársins árlega þar sem valdar eru bestu myndir félagsmanna liðins árs auk þess sem valdar eru Mynd ársins og Fréttamynd ársins.




Stjórn Blaðaljósmyndarafélags Íslands


Kjartan Þorbjörnsson (formaður)

Eyþór Árnason

Anton Brink

Ragnhildur Aðalsteinsdóttir


Lög Blaðaljósmyndarafélags Íslands – Lög og reglur BLFÍ

Myndir ársins – Árleg sýning blaðaljósmyndara

Blaðaljósmyndarafélag Íslands


Vertu með

Sæktu um aðild að félaginu og skráðu þig á póstlistann okkar