Nýr vefur BÍ kominn í loftið!
Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.

Blaðamannafélag Íslands hefur sett í loftið nýjan vef. Verkefnið hefur verið í undirbúningi og vinnslu í um ár en eldri vefur félagsins hefur verið í notkun frá árinu 2013 og því tímabært að gera á honum betrumbætur. Allar athugasemdir og ábendingar um nýja vefinn eru vel þegnar í gegnum press@press.is :) Það er von stjórnar og skrifstofu að nýi vefurinn nýtist félagsmönnum enn betur en hinn eldri.



