Mál nr. 7/2025-2026

Kærandi: Axel Kjartan Baldursson

Kærðu: Ágúst Borgþór Sverrisson

Kæruefni: Frétt á dv.is 31. janúar 2026 undir fyrirsögninni „Varað við fjölskyldufyrirtæki á
Selfossi – „Þetta eru svik og stuldur, ekkert annað““. Í fréttinni er fjallað um gagnrýni
viðskiptavina og lögfræðings þeirra á viðskiptahætti fyrirtækis kæranda en þeim ber saman um að
hafa ekki fengið fyrirframgreiddar vörur og gengið illa eða alls ekki að fá endurgreitt. Jafnframt
er rætt við annan eiganda fyrirtækisins. Kærandi telur fréttina varða við 6. grein siðareglna og
„eflaust fleiri“ eins og það er orðað.

Málsmeðferð:
Kæran barst skrifstofu BÍ laugardaginn 31.01.2026. Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands fékk
málið sent á mánudeginum 02.02.2026 og afgreiddi málið á fundi 10.02.2024.

Málavextir:
Kærandi telur að blaðamaður hafi farið með ósannindi í fréttinni. Tilgreind mál sé frá árinu 2024
og séu öll frágengin með endurgreiðslum. Málið hafi því „skemmandi afleiðingar fyrir fyrirtækið
Byggjum Saman.“ Kærandi segist hafa sent blaðamanni tölvupóst en ekki fengið svar.

Umfjöllun nefndarinnar:
Í málsmeðferðarreglum siðanefndar og sérstöku kærublaði sem kærendur fylla út kemur skýrt fram
hvað þurfi að liggja fyrir svo kæra geti verið tekin til umfjöllunar. Kærandi þarf að hafa leitað
leiðréttingar hjá viðkomandi miðli. Hann þarf að vera aðili máls eða hafa ríkra hagsmuna að gæta.
Kæruefnið skal vera afmarkað með augljósum hætti og hin kærða umfjöllun skal fylgja með
kærunni. Kæran þarf að berast innan tveggja mánaða frá birtingu efnisins. Umrædd frétt birtist á
dv.is laugardaginn 31.01.2026 kl 9:00. Kæran barst BÍ þremur klukkustundum síðar eða kl 12:17.

Ljóst er að ekki hafði reynt á leiðréttingarkröfuna á þeim tíma og ekki kemur fram hvað fólst í
þeim tölvupósti. Hin kærða umfjöllun fylgir ekki kærunni, einungis skjáskot af fyrirsögn. Kæran
er óljós og ekki hægt að segja að kæruefnið sé afmarkað með augljósum hætti eins og áskilið er í
málsmeðferðarreglum siðanefndar. Siðanefnd telur kæranda ekki fullnægja málsmeðferðarreglur
við meðferð kæra vegna meintra brota á Siðareglum Blaðamannafélags Íslands og því beri að vísa
málinu frá að svo stöddu.

Úrskurðarorð:
Málinu er vísað frá Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands.

Reykjavík 10.02.2026
Pálmi Jónasson, formaður
Ásgeir Þór Árnason
Emma Björg Eyjólfsdóttir
Valgerður Anna Jóhannsdóttir
Jóhann Óli Eiðsson