Leiðbeiningar um góð vinnubrögð

Þegar fjallað er um heilabilun

Orðaval skiptir máli

Heilahjálp – samtök um heilabilun hafa tekið saman ráðleggingar um orðaval í virðingarfullri umfjöllun um fólk með heilabilun.

„Einstaklingur með heilabilun / fólk með heilabilun“

Forðist að nota: Sá heilabilaði

Af hverju: Heilabilun skilgreinir ekki manneskjuna. Mikilvægt er að tala fyrst og fremst um einstaklinga og fólk.

„Hann er með heilabilun“

Forðist að nota: Hann er heilabilaður

Af hverju: Einstaklingur er meira en greiningin sín. Forðumst stimplandi orðalag.

„Hann flutti á hjúkrunarheimili“

Forðist að nota: Hann var vistaður á hjúkrunarheimili

Af hverju: Hjúkrunarheimili eru heimili þar sem fólk býr og lifir.

„Heilabilun á efri árum“

Forðist að nota: Elliglöp

Af hverju: Heilabilun tengist ekki eingöngu háum aldri.

„Heilabilun“

Forðist að nota: Vitglöp

Af hverju: Vitglöp er eldra hugtak sem endurspeglar ekki lengur þann skilning og þekkingu sem við höfum í dag á heilabilun.

Sækja leiðbeiningarnar á PDF (Heilahjálp)