Blaðamennska á tímamótum: málþing um upplýsingaheilindi

Blaðamannafélag Íslands boðar til málþings um upplýsingaheilindi þriðjudaginn 17. nóvember. Þar verður rætt hvernig blaðamennska getur tekist á við áskoranir vegna gervigreindar, minnkandi trausts og vaxandi upplýsingaóreiðu. Aðalgestur er Nic Newman frá Reuters Institute við Oxford-háskóla, aðalhöfundur Digital News Report.
Á málþinginu kynnir Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, fyrstu niðurstöður NORDREN-verkefnisins um upplýsingaóreiðu á Íslandi og Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ, greinir frá niðurstöðum nýrrar könnunar um áhrif upplýsingaóreiðu á störf blaðamanna.
Nic Newman hefur í áraraðir fylgst með þróun fjölmiðla um allan heim. Hann fjallar um stöðu fréttamiðla í ölduróti gervigreindar, dvínandi trausts, upplýsingaóreiðu og pólitískrar skautunar.
Eftir kaffihlé ræða frétta- og ritstjórar fjögurra fréttamiðla niðurstöður könnunarinnar og leiðir fram á við. Þeir mynda saman aðgerðahóp BÍ um upplýsingaheilindi. Bogi Ágústsson, blaðamaður, á svo lokaorðin, þar sem hann fjallar um faglega blaðamennsku sem grundvöll upplýsingaheilinda.
Málþingið hefst kl. 9:00, en boðið er upp á kaffi og spjall frá kl. 8:30. Öll velkomin.
Dagskrá
8:30 – Morgunhressing
Kaffi og spjall.
9:00 – Setning
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður BÍ, setur málþingið.
9:05 – Tekist á við upplýsingaóreiðu á Íslandi: Fyrstu niðurstöður NORDREN-verkefnisins
Hulda Þórisdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
9:30 – Áhrif upplýsingaóreiðu á störf blaðamanna
Sigríður Dögg Auðunsdóttir kynnir niðurstöður könnunar.
9:45 – Hvernig getur blaðamennskan staðið af sér umrótið?
Nic Newman, Senior Research Associate hjá Reuters Institute for the Study of Journalism við Oxford-háskóla og aðalhöfundur Digital News Report.
10:35 – Kaffihlé
10:45 – Púlsinn tekinn á helstu fréttamiðlum
Pallborð með Baldvin Þór Bergssyni, varafréttastjóra RÚV, Kolbeini Tuma Daðasyni, ritstjóra fréttastofu Sýnar, Aðalsteini Kjartanssyni, aðstoðarritstjóra Heimildarinnar, og Skúla Halldórssyni, aðstoðarfréttastjóra mbl.is. Sigríður Dögg stýrir umræðum.
11:20 – Lokaorð: Akkeri í ólgusjó
Bogi Ágústsson blaðamaður.
11:45 – Fundi slitið



