348 blaðamönnum haldið föngnum

admin • 14. desember 2016

Samtökin Fréttamenn án landamæra hafa nú birt hina árlegu samantekt sína á því hversu margir blaðamenn eru í fangelsi, haldið sem gíslum eða er saknað í heiminum.   Mikil fjölgun, um 6% hefur orðið síðan sambærilegar tölur voru birtar í fyrra, en alls er 348 blaðamönnum haldið föngnum eða þeirra saknað nú. Fjöldi starfandi blaðamanna sem haldið er föngnum í Tyrklandi hefur aukist sérstaklega mikið eða um 22% og munar þar mest um atburðarásina sem varð eftir meinta hallarbyltingartilraun í júlí. Yfir 100 blaðamenn eru hún í haldi í tyrkneskum fangelsum og hefur samtökunum Fréttamenn án landamæra tekist að sýna fram á orsakatengsl milli fangelsunar 41 þessara blaðamanna og þess sem þeir hafa verið að fjalla um sem blaðamenn.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.