Aðeins helmingur man uppruna frétta

admin • 28. febrúar 2017

Í nýrri áhugaverðri rannsókn sem Pew stofnunin  í Bandaríkjunum gerði í samstarfi við fleiri aðila kemur í ljós að fréttaneytendur á netinu, fundu fréttir sem þeir lásu í gegnum tvo álíka mikið notaða megin farvegi. Annars vegar með því að fara beint á fréttasíður fréttamiðla og hins vegar í gegnum samfélagsmiðla.

Rannsóknin var að mörgu leyti óvenjuleg því fylgst var með fréttanotkun fólks í viku og haft samband við það tvisvar á dag og það spurt stuttleg um fréttanotkun og hvaðan það fékk upplýsingar um sínar fréttir.  Ýmislegt annað en ofangreint kom í ljós, m.a. að aðeins í um helmingi tilfella gat fólk tilgreint uppruna frétta, eða þær fréttastofur sem sögðu viðkomandi frétt, en slíkt er sérstaklega áhugavert í ljósi umræðu um falskar fréttir.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.