Áhugavert tengslanet blaðamanna

Birgir Guðmundsson • 4. júlí 2018

„Fréttamenn á staðnum“ (Reporters in the Field) heitir evrópst verkefni á vegum frjálsra félagasamtaka sem miðar að því að efla samskipti og tengsl milli blaðamanna úr ólíkum löndum Evrópu.  Tengslahópum í kringum ákveðin verkefni stendur til boða styrkur upp á allt að 8.000 evrur og er hugmyndin að gefa þessum hópum tækifæri til að einbeita sér að verkefnum sem teygja sig yfir landamæri og kafa ofan í þau og rannsaka.  Það eru nokkrir útvaldir hópar blaðamanna, sem ráða sér sjálfur og lúta jafningastjórn,  sem munu hreppa styrki.  Sækja þarf um að komast í þetta blaðamannanet.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.