Almennur fundur: Félagsdómur og staðan í kjaramálum
Birgir Guðmundsson • 21. febrúar 2020
Almennur fundur um niðurstöðu Félagsdóms og stöðuna í kjaramálum blaðamanna verður haldinn á mánudaginn kemur 24. febrúar 2020 klukkan 20 í húsnæði Blaðamannafélags Íslands að Síðumúla 23 . Lögmaður BÍ, Karl Ó. Karlsson, hrl., gerir grein fyrir niðurstöðu Félagsdóms og svarar fyrirspurnum þar að lútandi. Að því loknu verða umræður um stöðuna í kjaramálum blaðamanna.



