Herferð gegn ofbeldi gegn blaðamönnum

admin • 3. nóvember 2014

Í gær var fyrsti alþjóðlegi baráttudagur   Sameinuðu þjóðanna gegn ofbeldi sem beinist að blaðamönnum. Af því tilefni hefur Alþjóðasamband blaðamanna skipulagt mikla herferð þar sem blaðamenn og blaðamannafélög um allan heim eru hvött til að leggja þessu baráttumáli lið og styðja þá félaga sem lifa og starfa á svæðum og í löndum þar sem ástandið er slæmt í þessum efnum. Herferð IFJ hófst nú um helgina og stendur fram til 23. nóvember. Jim Boumelha, forseti Aljóðasambands blaðamanna, IFJ, hefur af þessu tilefni  talað inn á myndband þar sem hann fer yfir þessi mál.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.