Alþjóðlegar siðareglur samþykktar
Hundruð fulltrúa á heimsþingi Alþjóðasambands blaðamanna í Túnis samþykktu nýjar alþjóðlegar siðareglur fyrir blaðamenn. Þessar reglur gilda þá fyrir yfir 500.000 blaðamenn víðs vegar um heiminn. Þessi nýi sáttmáli leysir af hólmi 65 ara gamlar reglur sem endurskoðaðar voru árið 1986, en talið var brýnt að semja nýjar reglur í ljósi gjörbreyttra aðstæðna í fjölmiðlaheiminum.
Nýju reglurnar eru m.a. bygaðar á ýmsum klásúlum úr alþjóðalögum og sáttmálum einkum Mannréttindayfirlýsingu Sþ. Um er að ræða 16 greinar í reglum þessum auk formála þar sem skyldur og réttindi blaðamanna eru áréttuð með almennum hætti. Þar segir m.a.: „Skyldur blaðamanna við almenning ganga framar öllum öðrum skyldum, ekki síst skyldum gagnvart vinnuveitenda og stjórnvöldum.“ Áréttað að blaðamennska sé faggrein sem kalli á að hafa bæði nauðsynleg tæki og tækifæri til að starfa ásamt því að kveða á um virðingu fyrir sannleikanum, að forðast skuli hagsmunaárekstra, tryggja beri verkd heimildamanna og forðast mismunun.
Drög að nýum siðareglum hafa legið fyrir um skeið og farið hefur verið yfir þær í aðildarfélögum IFJ á undanförnum mánuðum og er þær nú endanlega samþykktar í þessu formi. Þýðing á reglunum yfir á íslensku er væntanlega alveg á næstunni ( sjá þýðingu á drögum hér), en ensku útgáfuna má sjá hér á eftir:



