Ályktun stjórnar Blaðamannafélags Íslands um sölu á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar

Freyja Steingrímsdóttir • 13. mars 2026

Stjórn Blaðamannafélags Íslands fagnar því að fjárfest sé í íslenskum fjölmiðlum og ítrekar mikilvægi fjölbreyttra og sjálfstæðra fréttamiðla í tilefni frétta af fyrirhugaðri sölu Sýnar hf. á vef- og útvarpsmiðlum félagsins til Símans hf. Þeirra á meðal eru fréttamiðillinn Vísir.is og útvarpssstöðin Bylgjan.

Mikilvægi þessara miðla er ótvírætt, en endurspeglast einnig í söluverðmæti þeirra, sem eru rúmir 5,2 milljarðar króna. Þau verðmæti felast fyrst og fremst í þeim öfluga hópi blaðamanna, ljósmyndara og myndatökumanna, framleiðenda, klippara og annars starfsfólks sem hefur um áratugaskeið flutt Íslendingum fréttir um það sem máli skiptir. Mikilvægt er að standa vörð um störf og framlag þessa hóps til íslensks samfélags.

Verði af kaupunum skapast tækifæri hjá báðum fjölmiðlafyrirtækjum til frekari uppbyggingar, nýsköpunar í miðlun og aukinnar fjárfestingar í íslenskri blaðamennsku. Þótt ríkismiðillinn gegni mikilvægu samfélagshlutverki er mikilvægt að honum sé veitt samkeppni í miðlun frétta í sjónvarpi.

Öflug blaðamennska og sjálfstæðir fjölmiðlar er helsta vörnin gegn síaukinni upplýsingaóreiðu nútímans og aldrei hefur verið brýnna að standa vörð um hana en einmitt nú.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.