Áslaug Ragnars látin

Birgir Guðmundsson • 19. júlí 2018

Áslaug Ragnars, blaðamaður og rithöfundur, lést í gærmorgun. Áslaug   hóf blaðamennskuferil sinn á  á Morgunblaðinu og var þar blaðamaður í nokkur ár. Þá hóf hún þátttöku í stjórnmálum  og var meðal annars varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins 1974-78. Áslaug skrifaði tvær skáldsögur, Haustviku og Sylvíu , auk ýmis konar annarra rita og má þar nefna matreiðslubókina Matinn hennar mömmu , sem fjallar um íslenskan heimilsmat.  Áslaug starfaði síðar fyrir ýmsa aðra prent- og ljósvakafjölmiðla, og um miðjan tíunada áratug síðustu aldar gerðist hún blaðamaður á Tímanum og var þar í nokkur ár, en á seinni árum fékkst hún við ýmis ritstörf, þýðingar og útgáfu. Áslaug var félagi í Blaðamannafélagi Íslands og hefur undanfarin misseri verið virkur þátttakandi í föstudagsfundum eldri blaðamanna í hádeginum á föstudögum, en undir lokin átti hún við erfið veikindi að stríða.

Áslaug fæddist í Reykjavík 23. apríl 1943. Hún var elst fimm systkina. Foreldrar hennar voru Ólafía Þorgrímsdóttir fótaaðgerðafræðingur og Kjartan Ragnars, hæstaréttarlögmaður og sendifulltrúi í utanríkisþjónustunni.  Hún var þrígift, fyrst Magnúsi Þórðarsyni, síðar upplýsingafulltrúa Atlantshafsbandalagsins. Þau gengu í hjónaband 1964 og eignuðust synina Andrés, blaðamann á Englandi, og Kjartan, fyrrverandi borgarfulltrúa.  Annar eiginmaður Áslaugar var sr. Jón Ísleifsson og þriðji Aðalsteini Emilsson lífefnafræðingur. Blaðamannafélagið sendir sonum og öðrum aðstendendum Álaugar samúðarkveðjur.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.