Atkvæðagreiðsla um samninga BÍ og FF við SA

Auðunn Arnórsson • 16. janúar 2023

Hér eru beinir tenglar á atkvæðagreiðslu um kjarasamninga BÍ og Félags fréttamanna við Samtök atvinnulífsins. Kosið er í tvennu lagi, annars vegar um almennan kjarasamning BÍ og hins vegar um samning BÍ fyrir félaga í Félagi fréttamanna á RÚV. 

Atkvæðagreiðslan er opin til hádegis fimmtudaginn 19. janúar. Innskráning með rafrænum skilríkjum.

Félagar í BÍ, sem taka kjör samkvæmt kjarasamningi BÍ við SA, greiða atkvæði um nýja kjarasamninginn með því að smella hér. 

Félagar í Félagi fréttamanna (sem jafnframt eru félagar í BÍ) taka einir þátt í atkvæðagreiðslu um framlengingu kjarasamnings FF við SA f.h. RÚV ohf.
Smelltu hér til að kjósa ef þú ert í Félagi fréttamanna. 

Ef þú færð meldingu um að þú sért ekki á kjörskrá - þá hefurðu smellt á rangan hlekk. Reyndu aftur í gegnum hinn hinn hlekkinn hér að ofan. 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.