Atkvæðagreiðsla um samninga BÍ og FF við SA

Freyja Steingrímsdóttir • 28. maí 2024

Opnað hefur verið fyrir atkvæðagreiðslu um kjarasamninga Blaðamannafélags Íslands og Félags fréttamanna við Samtök atvinnulífsins.

Athugið að atkvæðagreiðslan er í tvennu lagi. Annars vegar um almennan kjarasamning BÍ og hins vegar um samning vegna Félags fréttamanna.

Atkvæðagreiðslan er opin til hádegis föstudaginn 31. maí. Innskráning er með rafrænum skilríkjum í gegnum hlekki hér að neðan .

Félagar í BÍ, sem taka kjör samkvæmt kjarasamningi BÍ við SA, greiða atkvæði um nýja kjarasamninginn með því að smella hér . Það eru m.a. félagsmenn BÍ á miðlum Árvakurs, RÚV (utan FF) og Sýnar.

Félagar í Félagi fréttamanna (sem jafnframt eru félagar í BÍ) taka einir þátt í atkvæðagreiðslu um kjarasamning FF við SA f.h. RÚV ohf, greiða atkvæði með að smella hér.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.