Auglýst eftir fréttamanni á RÚV
Birgir Guðmundsson • 11. janúar 2022
Fréttastofan leitar að öflugum fréttamanni í fullt starf á vöktum í starfsstöð RÚV í Reykjavík. Í starfinu felst að afla frétta og miðla þeim, í útvarpi, sjónvarpi og á www.ruv.is .
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öflun og vinnsla frétta af innlendum og erlendum vettvangi.
- Miðlun frétta á vef, í útvarpi og sjónvarpi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af fréttaskrifum og vinnslu frétta fyrir ljósvakamiðla eða vef.
- Gott vald á íslenskri tungu og góð tungumálaþekking.
- Góð framsögn.
- Geta til að vinna hratt og vel undir álagi.
- Góð samstarfshæfni og lipurð í samskiptum.
Nánari upplýsingar veitir Heiðar Örn Sigurfinnsson, starfandi fréttastjóri, heidar.orn.sigurfinnsson@ruv.is, s: 5153000.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um starfið, óháð kyni, uppruna, fötlun eða skertri starfsgetu.
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað rafrænt með því að smella hér.



