Aukin áhersla á mjúkar fréttir

admin • 20. desember 2016

Í nýútkomnu hefti af tímaritinu Stjórnmál og stjórnsýsla er grein eftir Valgerði A. Jóhannsdóttur kennara í blaðamennsku við Háskóla Íslands um markaðsvæðingu frétta. Það er gerð grein fyrir hluta af rannsókn sem hún hefur gert á innihaldi fjölmiðla og segir í útdrætti m.a. um niðurstöðurnar: „Þær benda til þess að umfang frétta af pólitík og efnahagsmálum sé hlutfallslega minna nú en var fyrir hrun, en svokallaðar mjúkar fréttir, af íþróttum, afþreyingu og frægu fólki séu að sama skapi hlutfallslega fleiri. Það á einkum við um vefmiðlana en síður um dagblöðin.“

Sjá greinina í heild hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.