Baráttudagur fyrir atvinnu

admin • 14. nóvember 2012

Í dag, 14. nóvember, er  evrópskur baráttudagur fyrir atvinnuöryggi og samstöðu um réttinn til vinnu sem Samband stéttarfélaga í Evrópu, ETUC, stendur fyrir. Evrópusamband blaðamanna, EFJ, er þátttakandi í þessum degi og styður heilshugar þær kröfur og þau sjónarmið sem þessi baráttudagur snýst um.

Líkt og á við um fjölmargar atvinnugreinar á fjölmiðlun og blaðamennska undir högg að sækja í yfirstandandi kreppu á vinnumarkaði  og að mati EJC byrjuðu ekki þessir erfiðleikar á vinnumarkaði árið 2008, heldur miklu fyrr.  Útgefendur voru löngu áður farnir að reyna að kreista meira út úr starfsmönnum sínum með því að krefjast meira ritstjórnarefnis á tæknilegra og flóknara formi af sífellt færra fólki. En á síðustu þremur árum hefur ástandið orðið enn skelfilegra segir í frétt frá EFJ í tilefni dagsins.

Vítt um Evrópu eru nú blikur á lofti í atvinnumálum fjölmiðlafólks of full ástæða til að grípa til varna og sýna samstöðu. Meðal þeirra landa sem ástandið er erfitt eru Portúgal þar sem einkavæða á almenningsmiðla;, Grikkland þar sem stórfelldur niðurskurður blasir við á ölllum sviðum, uppsagnir og launalækkanir;  Spánn þar sem uppsagnir blasa við þriðjungi starfsmanna á hinu gamlagróna El Pais; og svo í löndum einsog Noregi, Frakklandi og Bretlandi þar sem stórfelld „hagræðing“ stendur fyrir dyrum á fjölmiðlum.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.