Baráttudagur gegn friðhelgi kúgara

admin • 21. nóvember 2012

Alþjóðasamband blaðamanna hefur skipulagt “dag gegn friðhelgi” (Day against Impunity) þeirra sem gera blaðamenn að skotmörkum.  Dagur gegn friðhelgi verður haldinn á föstudag, þann 23. nóvember. Þetta er í annað sinn sem þessi baráttudagur er skipulagður, en dagsetningin er valin til að minnast Maguindano fjöldamorðanna á Filipseyjum þennan dag 2009, þegar 32 blaðamenn og almennir borgarar voru myrtir án þess að ódæðismönnunum væri í raun refsað fyrir það.  Á sérstakri heimasíðu bráttudagsins er að finna miklar upplýsingar um bæði fórnarlömb og eðli þeirrar friðhelgi sem fjölmargir sem ofsækja blaðamenn njóta, hvort sem það eru stjórnvöld í viðkomandi landi sem standa fyrir ofsóknunum eða einhverjir sem starfa í skjóli stjórnvalda.  Heimasíðan er öll hin athyglisverðasta og þar er einnig hægt að spila hlutverkaleiki sem hjálpa spilurum að setja sig í spor þeirra sem búa við kúgun af þessu tagi.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.