Belgar kaupa Berlinske

admin • 2. júlí 2014

  Fjölmiðlafyrirtækið danska, Berlinske Media, hefur nú  skipt um eiganda, en fjölskyldufyrirtækið og útgáfurisinn frá Belgíu, De Pergroep,  hefur keypt fyrirtækið af breska fyrirtækinu Mecom Group sem átt hefur Belinske frá 2006. Samhliða kaupir De Pergroep annað stórt fjölmiðlafyrirtæki af Mecom, en það er hollenska fyrirtækið Wegener. Þar með á Mecom, sem verið hefur stór spilari á fjölmiðlamarkaði undanfarin ár, aðeins eitt fölmiðlafyrirtæki eftir, Media Groep Limburg. Fréttir herma að til standi að selja það fyrirtæki líka og þar með hverfur Mecom af þessu sviði.

Kaupverð Berlinske er rúmlega 1,8 milljónir danskra króna og fylgir öll starfsemi fyrirtækisins með í kaupunum.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.