Belgía: Umgjörð fyrir lausamenn

admin • 15. apríl 2015

Samtök blaðamanna í frönskumælandi Belgíu (AJP/AGJPB), spurðu þess á dögunum hvernig væri hægt að bæta starfsskilyrði lausamanna í blaðamennsku (freelance)?

Svarið sem samtökn komu fram með var að „búa til varanlega umgjörð“ fyrir þessa starfsemi.  Þessari umgjörð var síðan ýtt úr vör á dögunum með því að búa til vefsetur þar sem lausamönnum standa til boða ýmis tæki til að auðvelda þeim að bjóða þjónustu sína og koma viðskiptahlið hennar á fastari grundvöll.  Meðal þess sem þarna er að finna er reiknivél til að finna verð á efni sem búið er til -  hversu mikið eðlilegt sé að greiða fyrir hverja skrifaða línu, fréttir af málefnum lausamanna, upplýsingar um ráðstefnur, atvinnutorg þar sem sérgreinar lausamanna eru tíundaðar (svipað því sem er hér á press.is)   og vettvangur til að skiptast á upplýsnigum

Sjá nánar hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.