BÍ og DV gera kjarasamning

admin • 27. janúar 2014

Blaðamannafélag Íslands og útgefendur dagsblaðsins DV og dv.is hafa undirritað nýjan kjarasamning, sem gildir til áramóta. Samningaviðræðurnar áttu sér skammann aðdraganda og gengu mjög vel. Samningurinn verður borinn undir atkvæði til samþykktar eða synjunar síðar í þessari viku. Viðræðum við aðra fjölmiðla, sem standa utan Samtaka atvinnulifsins, miðar vel.

Kjaradeildu Blaðamannafélagsins við Samtök atvinnulífsins hefur verið vísað til ríkissáttasemjara og hefur sáttasemjari boðað til fundar í deilunni á morgun, þriðjudag. Samtök atvinnulífsins fara með samninsgumboð fyrir Árvakur, útgefanda Morgunblaðsins, 365 og RÚV.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.