BÍ stefnir Árvakri fyrir félagsdóm

Birgir Guðmundsson • 14. nóvember 2019

Blaðamannafélag Íslands hefur stefnt Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins fyrir félagsdóm vegna verkfallsbrota sem framin voru sl. föstudag þegar verkfallsaðgerðir BÍ stóðu yfir. Alls er um að ræða bort  í yfir 20 liðum sem framin voru af 9 einstaklingum.  Í stefnunni er þess krafist að viðurkennt sé með dómi að Árvakur hafi brotið gegn lögum um stéttafélög og vinnudeilur og verði dæmt til greiðslu sektar í ríkissjóðs og greiðslu málskostnaðar.

Málið verður þingfest næstkomandi þriðjudag. Á morgun föstudag hefst önnur lota vinnustöðvunar BÍ og mun hún standa í átta klukkustundir, en sáttafundur í dag skilaði ekki árangri.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.