Blaðamannadagurinn 1. apríl - takið daginn frá!
Blaðamannafélag Íslands stendur fyrir blaðamannadeginum 1. apríl nk. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi blaðamennsku, vekja áhuga á fjölmiðlum og stéttinni og veita innsýn í það mikilvæga starf sem blaðamenn vinna í þágu samfélagsins og lýðræðisins.
Hápunktur dagsins verður veiting blaðamannaverðlaunanna sem fram fer í húsnæði félagsins að Síðumúla 23 en áður en þau verða veitt verður haldið ör-málþing sem nánar verður auglýst síðar. Kvöldinu lýkur svo með drykk og veitingum í sal BÍ.
Við höfum sett okkur í samband við fulltrúa fjölmiðla og biðlað til þeirra um að taka þátt í þessum fræðslu- og uppskerudegi fjölmiðlafólks með hvaða hætti sem hentar, til dæmis með því að opna ritstjórnarskrifstofur og bjóða almenningi í heimsókn og mögulega samtal við blaðamenn.
Borgarbókasafnið ætlar líklega að taka þátt með því að stilla fram bókum um blaðamenn og blaðamennsku . Mögulega verða fleiri viðburðir einnig skipulagðir.
Þá er ætlunin að þennan dag verði haldinn fyrsti fundur samráðsvettvangs um fjölmiðla - sem samanstendur af BÍ og fulltrúum eigenda allra helstu fjölmiðla landsins. Markmið samráðsvettvangs er að þar geti farið fram samtal um hagsmuni stéttarinnar á breiðum grundvelli með öllum hagaðilum.
Nánari upplýsingar verða sendar út þegar nær dregur. Takið daginn frá.



