Blaðamannafélög hugi að framtíðinni

Birgir Guðmundsson • 12. júní 2018

Það að reyna í auknum mæli að ná til ungra blaðamanna og kvenna er meðal þeirra atriða sem blaðamannafélög í Evrópu þurfa að hafa huga að til að mæta þörfum framtíðarinnar. Þetta er meðal niðurstaðana vinnufundar um 40 forustumanna blaðamannafélaga í Evrópu sem haldin var í Lissabon í kjölfar ársfundar Evrópusambands blaðamanna í síðustu viku.

Í niðurstöðum vinnufundarins koma fram fimm svið sem talin eru mikilvæg fyrir blaðamannafélög að huga að.

Í fyrsta lagi eru það málefni tengd ungum blaðamönnum sem iðulega eru í mjög erfiðri stöðu og búa við ótrygga atvinnu og of lélegri kjör en eldri blaðamenn.

Í öðru lagi eru það málefni tengd konum í blaðamennsku en konur eru að verða sífellt stærri hluti stéttarinnar en samhliða er kynbundinn launamunur mikill. Á því þarf að taka.

Í þriðja lagi þarf að kortleggja betur hverjar eru þarfir og vandamál stéttarinnar þannig að hægt sé að reyna að mæta þeim með markvissari hætti.

Í fjórða lagi er það endurskipulagning á boðmiðlunarleiðum hjá blaðamanafélögum og taka upp aðferðir sem eru líklegar til að ná til yngri markhópa og þar sem fyrirmyndir að því sem vel er gert eru sýndar. Í því sambandi er bent á báráttuherferð fyrir sænska vinnumódelinu sem er beint sérstaklega að fólki undir 35 ára ( sjá video).

Í fimmta lagi að gæta þess að þjónusta og starfsemi blaðamannafélaganna taki mið af þarfagreiningu meðal blaðamanna þannig að tryggt sé að starfs félagsins skipti máli fyrir félagsmenn.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.