Blaðamannaverðlaun: Tilnefningafrestur til 1. febrúar 2019

Birgir Guðmundsson • 8. janúar 2019

Verðlaunanefnd Blaðamannaverðlauna BÍ óskar eftir tilnefningum til verðlauna fyrir árið 2018, en verðlaunin verða veitt í 16. skipti í mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er kl. 12 á hádegi föstudaginn  1. febrúar 2018 .

Eins og síðustu ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum:

  • Besta umfjöllun ársins 2018
  • Viðtal ársins 2018
  • Rannsóknarblaðamennska ársins 2018
  • Blaðamannaverðlaun ársins 2018

Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna til skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla  23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt verður hægt að senda tilnefningar inn rafrænt með hnappi hér á forsíðu vefsins (hægra megin við aðalmynd,) þar sem segir "Blaðamannaverðlaun ársins 2018".

Tilnefningar dómnefndar verða sem fyrr segir gerðar kunnar viku áður en verðlaunin sjálf verða afhent í byrjun mars..

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.